Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2016, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.2016, Blaðsíða 16
16 Fréttir Erlent Panama-skjölin Vikublað 5.–7. apríl 2016 P anama-pappírarnir. Stjórn- málamennirnir, glæpa- mennirnir og svikabransinn sem felur peningana þeirra,“ er yfirskrift stærsta leka sögunnar. Skjölin sýna að 140 núver- andi og fyrrverandi stjórnmálamenn og opinberir starfsmenn tengjast aflandsfélögum víðs vegar um heim- inn. Tólf þjóðarleiðtogar eru á listan- um, þeirra á meðal forseti Úkraínu, forsætisráðherra Íslands og Pakistan. Umfang gagnanna er umtalsvert – um er að ræða 11,5 milljónir skjala og á tölvumáli er um að ræða 2,6 terra- byte af gögnum sem tekið hefur al- þjóðleg samtök rannsóknarblaða- manna (ICIJ) og blaðamenn þýska dagblaðsins Süddeutsche Zeitung umtalsverðan tíma að komast í gegn- um. Gögnin telja tölvupóst, fyrir- tækjaskýrslur, fjárhagsupplýsingar og afrit vegabréfa. Upplýsingarnar eru frá árunum 1977–2015. Süddeutsche Zeitung fékk gögnin frá ónafngreind- um heimildarmanni, sem sagði að líf sitt lægi við ef nafn hans kæmi fram. ICIJ tók þátt í verkefninu og skipulögðu starfsemi blaðamanna á heimsvísu til að taka þátt. Fór það svo að 370 blaðamenn í 76 löndum fóru yfir gögnin sem eiga uppruna sinn hjá lögfræðistofunni Mossack Fonseca, sem starfar í 38 ríkjum á heimsvísu. Fyrirtækið er eitt stærsta sinnar tegundar og hefur þá sérstöðu að stofna sérstök skúffufélög sem notuð eru til þess að fela eignarhald fyrir- tækja. En hvað er þetta? Vert er að taka fram að það er ekki ólöglegt að eiga aflandsfélag og er það talsvert not- að í alþjóðlegum viðskiptum. En séu aflandsfélögin notuð til að fela eignir, hylja slóðir eða koma í veg fyrir að fyrir tæki og einstaklingar greiði skatta er komið inn á siðferðilegt og lagalegt sprengjusvæði. Það þarf þó ekki að vera að einstaklingar og fyrirtæki hafi notað aflandsfélögin í óheiðarlegum hætti. Starfsemi sem þessi er lögleg, ef aðilar sem nýta sér hana fara að lögum. ICIJ segir að gögnin sýni að fyrirtæki hafi milligöngumenn á aflandseyjum, leynt færslum, hagrætt gögnum og þannig falið slóð sína og viðskiptavina. Félögin sem ICIJ hefur upplýsingar um eru 214.488 og ná til einstaklinga í 200 löndum. Mossack Fonseca segir sjálft að rannsókn blaðamannanna sé ekkert nema árás á Panama og eigi rætur að rekja til öfund sýki vegna umfangsmikilla viðskipta í Panama. „Ruddarnir tólf“ Á listanum – ásamt Sigmundi Davíð – eru Mauricio Macri, forseti Argentínu, Sjeik Hamad bin Khalifa Al Than, emír af Katar, Petro Poroshenko, for- seti Úkraínu, Ahmad Ali al-Mirghani, fyrrverandi forseti Súdan, Ali Abu al Ragheb, fyrrverandi forsætisráð- herra Jórdaníu, Vladimír Pútín, for- seti Rússlands, Salman bin Abdulaziz bin Abdulrahman Al Saud, konungur Sádi-Arabíu, Pavlo Lazarenko, fyrr- verandi forsætisráðherra Úkraínu, Hamad bin Jassim bin Jaber Al Thani, fyrrverandi forsætisráðherra Katar, Ayad Allawi, fyrrverandi forsætisráð- herra Íraks, Khalifa bin Zayed bin Sultan Al Nahyan, forseti Sameinuðu arabísku furstadæmanna, og Bidzina Ivanishvili, fyrrverandi forsætisráð- herra Georgíu. Þeir hafa verið kallað- ir „the dirty dozen“ sem er tilvísun í samnefnda kvikmynd frá árinu 1967. The Dirty Dozen fékk á sínum tíma ís- lenska heitið 12 ruddar. Hezbolla og Norður-Kórea Hér á eftir verður stiklað á stóru og aðeins farið yfir nokkra hluti tengda skjölunum, en ógjörningur er að komast yfir allt sem þar kemur fram. Í skjölunum má einnig finna 33 einstaklinga og fyrirtæki sem eiga sæti á svörtum lista bandarískra stjórnvalda sem telja sig hafa sönnun þess að þeir hafi átt í viðskiptum við mexíkóska glæpamenn, hryðjuverka- samtök eins og Hezbollah og óstöðug ríki svo sem Norður-Kóreu og Íran. Eitt fyrirtækjanna er meðal annars sakað um að hafa veitt sýrlenskum stjórnvöldum flugvélabensín. Flug- vélin var síðar notuð til að sprengja saklausa borgara í Sýrlandi. Gögnin tengja einnig menn sem hafa talað gegn notkun skattaskjóla af miklu kappi. Til dæmis tengist fað- ir Davids Cameron, forsætisráðherra Bretlands, aflandsfyrirtækjum. David Cameron hefur beitt sér gegn skatta- skjólum. Pútín-tenging Gögnin hafa einnig beinar tengingar við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Þar kemur fram að samstarfsmenn hans komu tveimur milljörðum Bandaríkjadala undan með aðstoð banka og félaga. Í umfjöllun ICIJ kemur fram að leynilegar aðgerðir þessara samstarfsmanna, fyrirtækja og banka hafi gert kleift að flytja allt að 200 milljónir Bandaríkjadollara milli félaga. Færslurnar voru faldar, skjöl voru dagsett aftur í tímann og náðu Pútín og félagar þannig leyndu taki á fjölmiðlum og í bílaframleiðslu Rússlands. Talsmenn forsetans hafa haldið því fram að hér sé um að ræða misvísandi „upplýsingaárás“ á Pútín og samstarfsmenn hans. Gömul mál í skúffum Þúsund ástralskar tengingar hafa fundist í gögnunum og hafa vega- bréf hundraða Ástrala fundist þar á meðal. Það þýðir að viðkomandi eru tengdir fyrirtækjunum sem forstjórar, hluthafar og eigendur. Skjólin varpa einnig ljósi á eldri mál, sum sem margir töldu jafnvel komin niður í skúffu. Í þeim kemur meðal annars fram að Gilbert R.J. Straub, sem dæmdur var fyrir peningaþvætti 1995, átti að hafa greitt fimmtíu þús- und dollara í ólögleg kosningafram- lög, en peningarnir voru á endanum notaðir til að greiða innbrotsþjófum í Watergate-málinu sem á endanum felldi Richard Nixon Bandaríkjafor- seta. Fleiri sprengjur Ljóst er að annarri sprengju verður varpað þegar gögnin verða svo öll af- hjúpuð í maímánuði, en þá verður list- inn eins og hann leggur sig birtur, það er nöfn aðila og fyrirtækja. Tuttugu og níu einstaklinga á FORBES-listan- um yfir ríkustu einstaklinga heims er einnig að finna þar. n Kalla þá ruddana tólf n listinn verður opinberaður endanlega í maí n teygir sig í gömul mál – og ný n 33 nöfn af svörtum lista Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is Vladimír Pútín Salman bin Abdulaziz bin Abdulrahman Al Saud Khalifa bin Zayed bin Sultan Al Nahyan Hamad bin Khalifa Al Than Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Ali Abu al Ragheb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.