Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2016, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2016, Síða 12
Vikublað 21.–23. júní 201612 Sport K annski er besta leiðin að liggja til baka gegn Austur- ríki,“ sagði Heimir Hallgríms- son landsliðsþjálfari á blaða- mannafundi í Frakklandi á mánudag. Ísland leikur á morgun við Austurríki í lokaumferð F-riðils á EM í knattspyrnu. Jafntefli gæti nægt til að fleyta liðinu í 16-liða úrslit en sig- ur gerir það örugglega. Austurríkis- menn hafa aðeins eitt stig og verða að vinna til að komast áfram. Hársbreidd frá 16-liða úrslitum Eins og segja má um marga undan- farna leiki Íslands er næsti leikur lík- lega mikilvægasti leikur sem lands- liðið hefur spilað. Liðið, sem er á sínu fyrsta stórmóti, getur tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. Það væri stórkostlegur árangur. Aðeins munaði þremur mínútum í leik gegn Ungverjum að strákunum tækist (næstum örugglega) að komast í 16-liða úrslit. En sjálfs- mark íslenska liðsins undir lok leiksins breytti því og jafntefli varð niðurstaðan í honum. Tvö lið komast upp úr hverjum hinna sex riðla á EM auk fjögurra liða sem hafna í þriðja sæti. Þegar þetta er skrifað hef- ur leikur Englendinga og Slóvaka í B-riðli ekki farið fram. Vinni Englendingar dugar Íslendingum jafn- tefli í leiknum gegn Austur- ríki. Fleiri möguleikar eru í stöðunni, svo sem ef Tékklandi mistekst að vinna Tyrkland og að Tyrkir vinni ekki stærra en 3–0. Íslendingum dugir líka jafntefli ef Svíum og Írum mistekst að vinna sína leiki gegn Belgum og Ítöl- um í E-riðli. Það er ekki ósennilegt, í sjálfu sér. Kostur og galli Til að gera langa sögu stutta munu Ís- lendingar vita fyrir leikinn hvort þeir þurfa á sigri að halda gegn Austur- ríkismönnum eða ekki. Heimir viður- kenndi á blaðamannafundinum að þetta væri ákveðinn kostur. Á móti kæmi að ef Ísland kæmist í 16-liða úr- slit keppninnar, væru í versta falli aðeins tveir dagar á milli síðasta leik riðilsins og fyrsta leiksins í 16-liða úrslit- um. Í besta falli væru þeir fjórir. Það væri því bæði kostur og galli við að leika í þeim riðli sem klárast síðastur. Heimir vildi lítið gefa upp um það á fundinum hvernig liðið myndi nálg- ast leikinn. Hann gaf þó í skyn að liðið myndi allt eins pakka í vörn. Austur- ríkismenn verði að vinna sigur og í því gætu tækifæri Íslands falist – þeir myndu taka áhættu ef leikurinn yrði markalaus lengi. Þá gætu Íslendingar refsað. Vantar ró í liðið Þó að Ungverjar hafi stýrt leiknum á laugardaginn nánast frá fyrstu mín- útu til þeirrar síðustu, benti Heimir á að Ís- lendingar hafi fengið bestu færin í leiknum. Liðinu hentaði ágætlega að bíða átekta aftarlega á vellinum. Það hefði sýnt sig í báðum leikjun- um til þessa að liðið fengi alltaf færi til að skora – jafnvel þó að andstæðingurinn hefði boltann stærstan hluta leiktímans. „Við viljum hins vegar vera skynsam- ari með boltann en við höfum verið,“ viðurkenndi hann. Að- spurður hvað ylli því að liðinu héldist illa á boltanum sagði Heimir: „Það vantar ákveðna ró. Í fyrsta lagi er þetta spenna og í öðru lagi andstæðingur- inn. Við erum að spila við sterkar þjóðir. Menn voru kannski að- eins og upptjún- aðir.“ Hann sagði að liðið gæti bet- ur. „Við vitum að við eigum helling inni.“ Austurríkismenn hafa ekki sýnt sínar bestu hliðar á mótinu. Liðið er feiknarlega sterkt og var fyrir mót talið til þeirra liða sem gætu komist langt í keppninni. Annað hefur komið á daginn og liðið á enn eftir að skora mark. Heimir sagði, á blaðamanna- fundinum, um austurríska liðið að það væri mjög skipulagt og hefði hæfileika ríka leikmenn innanborðs. Þeir væru góðir bæði í vörn og sókn. Endalausir möguleikar Ari Freyr Skúlason, vinstri bakvörður, sagði á blaðamannafundinum að liðið ætlaði að leika til sigurs gegn Austurríki. Þannig færu strákarnir inn í hvern leik. „Með okkar hugar- fari og baráttuvilja eru möguleikarnir endalausir.“ Hann sagði að vissulega fylgdust leikmenn með framvindunni í öðrum riðlum en að þeir ætluðu að treysta á sjálfa sig. „Það er ekki erfitt að mótivera sig fyrir svona leiki.“ Hann sagði að markmiðið fyrir keppnina hefði verið að komast í 16-liða úrslit. Miðvörðurinn Ragnar Sigurðsson sat einnig fyrir svörum á fundinum. Hann gaf lítið fyrir spurningu um hvort liðinu tækist að hrista af sér vonbrigði leiksins við Ungverja. „Já, og við höfum tvo daga í viðbót til að gera það. Þú sást hvernig við höndluðum þetta Króatíu- tap, við fórum inn í undankeppnina og kláruðum hana. Við höfum engar áhyggjur af þessu,“ sagði Ragnar. „Þetta er svolítið vitlaus spurning, þú þekkir okkur. Auðvitað voru allir svekktir og pirraðir og leiðir yfir þessu en við erum það góðir vinir að við getum talað hreint út ef það er eitt- hvað að og við gerum það,“ bætti Ari Freyr við. n Ögurstund á EM n Jafntefli gæti nægt en Austurríkismenn verða að vinna n Endalausir möguleikar Fagnað Vonandi hafa Gylfi Þór, Kolbeinn og Birkir ástæðu til að fagna annað kvöld. Staðan í F-riðli Þegar ein umferð er eftir leikir sigrar jafntefli töp m.munur stig Ungverjaland 2 1 1 0 2 4 Ísland 2 0 2 0 0 2 Portúgal 2 0 2 0 0 2 Austurríki 2 0 1 1 -2 1 Gerum við Apple vörur iP one í úrvali Sérhæfum okkur í Apple Allskyns aukahlutir s: 534 1400 Baldur Guðmundsson skrifar frá París baldur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.