Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2016, Qupperneq 14
Vikublað 21.–23. júní 2016
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
14 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson
Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
S
tjórnmálamenn eiga að virða
þjóð sína og lögregluyfir
völd eiga ekki að líta á hana
sem ógnandi lýð sem þurfi að
hafa stöðugar gætur á. Slæm mistök
urðu við 17. júníhátíðarhöldin þegar
almenningi sem lagði leið sína á
Austur völl var markvisst haldið frá
því að geta fylgst með hátíðardag
skránni. Svæðið var hólfað af á svo
stórtækan hátt að þeir sem mættu
á Austurvöll til að sjá og heyra fóru
hálfgerða erindisleysu. Greinilegt
var að nærveru þeirra var ekki óskað
á þessum mikla hátíðardegi. Athöfn
in var einungis fyrir fáa útvalda.
Fyrirmenni voru á Austurvelli
við athöfn sem virtist ekki eiga að
koma neinum öðrum mikið við, alla
vega ekki því fólki sem hafði gagn
gert komið til að njóta hennar. Í ára
tugi hefur eldra fólk komið prúðbúið
á hverju ári á Austurvöll á 17. júní til
að fylgjast með athöfninni og þang
að kemur fólk með eftirvæntingarfull
börn sem veifa íslenska fánanum. Nú
var þess vandlega gætt að þetta fólk,
og aðrir áhorfendur, sæi sem allra
minnst af athöfninni. Eigum við að
trúa því að þjóðin sé svo hættuleg að
ekki megi hleypa henni að við athöfn
eins og þessa?
Af fréttaflutningi að dæma virðist
sem lögreglan hafi tekið þessa
ákvörðun í samráði við forsætisráðu
neytið og Alþingi vegna mótmæla
sem voru á þessum sama degi í fyrra.
Reyndar bendir forsætisráðuneytið
nú á lögregluna og lögreglan bendir
á forsætisráðuneytið, en þótt enginn
vilji kannast við ábyrgð vita þeir sem
þessa ákvörðun tóku vonandi upp á
sig skömmina.
Alls ekkert benti til þess að fjöl
sótt mótmæli yrðu við Austurvöll
á þjóðhátíðardaginn, líkt og var
fyrir ári þegar ekki heyrðist til for
sætisráðherra vegna hávaða mót
mælenda. Mikil og hávær mótmæli
voru vissulega á Austurvelli fyrir all
nokkrum vikum en fjöruðu furðu
hratt út, enda hafði forsætisráðherra
landsins vikið og kosningum lofað
með haustinu. Nú voru engin mót
mæli boðuð en lögregluyfirvöld, og
hugsanlega forsætisráðuneytið, virt
ust vera full tortryggni og gripið var
til aðgerða sem gerðu að verkum að
athöfnin á Austur velli varð bara fyrir
suma. Þetta er furðuleg ráðstöfun og
vonandi ekki lýsandi fyrir það sem
koma skal í samskiptum lögreglu við
borgarana. Við búum í lýðræðisríki
og ættum öll, þar á meðal stjórnvöld
og lögregla, að fagna því þegar fólk
kemur saman til að gleðjast en ekki
búa okkur undir allt hið versta.
Það er ekki gott ef íslensk yfirvöld
eru farin að gera sjálfkrafa ráð fyrir
því að borgarar landsins missi stjórn
á sér við hin ýmsu tækifæri. Fulltrúar
Reykjavíkurborgar hafa lýst yfir
óánægju sinni vegna þess hvernig
staðið var að málum þetta árið. Von
andi sjá menn í forsætisráðuneytinu
að þarna var ekki vel að verki stað
ið. Innan lögreglunnar hljóta menn
að átta sig á að mistök voru gerð á
Austur velli. Vonandi verður betur
staðið að málum næsta ár. n
Fjölmiðlakonan Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir er að smíða flugvél. – DV
Ég er slæpingi og geri
nánast ekki neitt
Er þjóðin hættuleg?
Hanna Birna í heilsugei-
rann?
Eftir ófarir sínar í
lekamálinu virð
ist Hanna Birna
Kristjánsdóttir hafa
komist að þeirri
skynsamlegu
niðurstöðu að hún
muni ekki ríða feit
um hesti frá prófkjöri Sjálfstæðis
flokksins síðar í sumar. Innan Sjálf
stæðisflokksins telja menn að hún
hafi einsett sér að komast í utan
ríkisþjónustuna og verða sendi
herra, en fengið blákalt afsvar við
þeirri ósk. Við þær aðstæður, segja
menn, rann upp fyrir henni að hún
átti engra kosta völ í pólitíkinni, og
afréð því að hætta. Telja flokksfé
lagar hennar líklegt að hún muni
eftir kosningar skjóta upp kollinum
í einkavædda heilsugeiranum sem
vinkona hennar Ásdís Halla Braga-
dóttir vinnur baki brotnu við að
koma upp með góðri aðstoð heil
brigðisráðherrans
Breidd í fylgi
Stundin birtir frétt um það að fólk
ið sem stýrir framboði Guðna Th.
Jóhannessonar eigi
það sammerkt að
gegna trúnaðar
störfum fyrir Sjálf
stæðisflokkinn.
Ekki virðast stjórn
málaskoðanir
þeirra sem ætla að
kjósa Guðna endurspegla þetta en
Kjarninn rýnir í nýjustu skoðana
könnun Gallup og segir frá því að
Guðni njóti yfir burða fylgis fólks
sem hygg st kjósa Við reisn, Pírata,
Bjarta fram tíð, Vinstri græn eða
Sam fylk ing una í alþingiskosning
um meðan Davíð Oddsson sæki
helst fylgi til sjálfstæðismanna og
framsóknarmanna. Það er því æði
vafasamt að segja framboð Guðna
á vegum Sjálfstæðisflokksins, þótt
einhverjir sjálfstæðismenn séu í
hans innsta hring.
Þór Viðar Jónsson er ósáttur við þátttöku sína í Biggest Loser-þáttunum. – DV
Þetta er bara sýning
Sonur Jónínu Óskar Lárusdóttur komst lífs af úr bílslysi um helgina. – DV
Sjokkið og doðinn kom
eiginlega mest eftir á
„Eigum við að trúa
því að þjóðin sé
svo hættuleg að ekki
megi hleypa henni að við
athöfn eins og þessa?
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Myndin Alþjóðlegur dagur flóttamanna Amnesty International, Mannréttindaskrifstofa Íslands, UNICEF og Rauði krossinn voru á Austurvelli á mánudag að kynna
almenningi aðstæður flóttafólks, meðal annars með þrívíddarheimildamynd frá Zaatari flóttamannabúðunum í Jórdaníu. mynd SIGTRyGGUR ARI
Karamella og perur Súkkulaði og ferskjur Vanilla og kókos
Bragðgóð grísk jógúrt að vestan