Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2016, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2016, Page 18
Vikublað 21.–23. júní 20164 Viðhald hússins - Kynningarblað PVC-þakefni og klæðningar með 50 ára ábyrgð Pace-varnarhúð á þök með meira en 1.000% teygju Þ egar húsveggir, húsþök, grindveggir og pallar eru klædd með PVC-efni hverf- ur öll viðhaldsþörf því efnið er viðhaldsfrítt. Það þarf aldrei að skrapa og mála aftur eða gera við sprungur.PVC þolir veðrun afar vel og upplitast ekki. PVC- klæðningar og -þakefni sem fyrir- tækið Flott hús selur hér á landi er með 50 ára ábyrgð. Efnið er afar umhverfisvænt því hver einasta plata er 70% úr endurunnu efni. Á vandaðri heimasíðu fyrirtæk- isins www.flotthus.is, er að finna gagnlegar upplýsingar og skemmti- legan fróðleik í máli og myndum um PVC-klæðningarnar og þakefni, en fyrirtækið gerir tilboð í verkefni af þessu tagi fyrir stóra og smáa að- ila. PVC-efnið sem Flott hús selur kemur frá einum helsta framleið- anda byggingarefnis í Norður-Am- eríku, Ply Gem (sjá heimasíðuna plygem.com) en eins og fyrr segir er þetta efni með 50 ára ábyrgð. Ply Gem verður oftar en ekki fyrir valinu sem samstarfsaðili í vinsælum raunveruleikaþáttum í sjónvarpi um húsaviðgerðir og endurbætur, til dæmis Extreme Home Makeover. Þá hefur Ply Gem unnið til fjöl- margra umhverfisverndarverð- launa enda óhætt að segja að fram- leiðslan er hágræn með hinu háa hlutfalli af endurunnu efni í plötun- um. Ply Gem PVC-klæðningar eru samkeppnisfærar við allar aðrar utan hússklæðningar í verði. Eins og myndirnar bera með sér eru klæðningarnar afar áferðar- fallegar en ólíkt fallegum húsum með klæðningar úr öðru efni þá helst þetta fallega útlit árum og ára- tugum saman án nánast nokkurs viðhalds. Ekki nýtt þak heldur betra þak Fyrir þá sem vilja halda gamla þak- inu sínu en fá það eins og nýtt eru PACE þakefnin afar góður kostur. Þessa lausn býður Flott hús und- ir merkum Pace Iceland (sjá vef- svæðið http://consortium1964. wix.com/paceiceland eða tengill frá flotthus.is) Um er að ræða var- anlega varnarhúð á gamalt járn, ál, tjörupappa o.fl. Hundruð bygginga á Íslandi hafa fengið þessa varnarhlíf og endingin er ótrúleg. Það stafar ekki síst af því að efnið er að minnsta kosti 1000% teygjanlegt og brotn- ar því ekki eða springur í kulda. Þó að sprunga komi í steypuna teygist PACE-húðin fyrir ofan og heldur þakinu lokuðu. Pace fæst í mörgum litum. n Flott Hús Mánatún 3, 105 Reykjavík Símar: 844-5695 og 848-6746 www.flotthus.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.