Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2016, Qupperneq 22
Vikublað 21.–23. júní 201618 Lífsstíll
É
g ætla rétt að skreppa út á Velli
í Hafnarfirði að sækja mat,“
sagði vinur minn þar sem ég
sat hjá honum í heimsókn
síðdegis á föstudegi nýverið.
Ég hváði vitaskuld, enda ekki bein
línis skemmtilegt að keyra þá leið á
alversta umferðartímanum í viku
lokin. „Ég mundi keyra frá Akureyri
til þeirra að sækja mér mat,“ sagði
vinurinn áður en hann var rokinn.
Skömmu síðar var ég gestkom
andi í Grafarvogi, og varð þá vitni að
svipaðri senu. Manneskja með fullu
viti ákvað að „skreppa“ á Vellina til
að draga björg í bú. Ljóst var að þetta
þyrfti að kanna nánar.
Staðurinn sem var vinum mínum
svona hugleikinn reyndist vera taí
lenski veitingastaðurinn Ban Kúnn,
sem staðsettur er í sama húsi og
Bónus á Völlunum í Hafnarfirði. Það
eru hjónin Natthawat Voramool og
Svavar G. Jónsson sem reka staðinn
saman, og hafa gert á þriðja ár.
„Ég var nú spurð
ur hvort það væri
ekki í lagi með mig
þegar við vorum að
undirbúa opnun
ina,“ segir Svavar,
„fólk kallaði okkur
klikkaða og vildi
vita hvort við ættum
virkilega þessa pen
inga til að tapa.
Flestir bjuggust við
að hér mundum
við sitja í hálft ár, án
þess að einn ein
asti gestur kæmi,
og hunskast svo
burtu með skottið
milli lappanna.“
Annað kom þó á
daginn, því allt frá
opnun staðarins í janúar 2014 hefur
verið nóg að gera á degi hverjum, og
fljótt varð ljóst að fólki líkaði það sem
boðið var upp á. „ Kúnnarnir biðu hér
í röðum nánast frá fyrsta degi, svo
þetta hefur verið ævintýri líkast.“
Natthawat hafði lengi gengið um
með þann draum að stofna eigið
fyrir tæki, en hann er menntaður við
skiptafræðingur og kennari, auk þess
sem hann lærði taílenska matargerð í
heimalandinu. Hann kom til Íslands
árið 2004 og kynntist Svavari ári síðar,
fyrir helbera tilviljun niðri í miðbæ.
Þeir urðu strax kærustu par og gengu
síðar í hjónaband. Svavar hafði unnið
við ýmislegt, meðal annars verið lög
regluþjónn og öryggisvörður, en var
atvinnulaus og alveg að detta af bót
um þegar þeir slógu til. „Okkur lang
aði að opna staðinn í miðbæ Hafnar
fjarðar, en fundum ekkert hentugt
húsnæði. Lendingin var því hérna á
Völlunum og við sjáum ekki eftir því.“
Ban kúnn þýðir heima hjá þér
á taílensku, og það hafa Svavar og
Natthawat að leiðarljósi. „Fólki á að
líða vel hjá okkur. Við viljum að and
rúmsloftið sé afslappað og heimilis
legt. Fólki finnst maturinn góður, og
við heyrum að það kunni vel að meta
hversu hreint og snyrtilegt umhverfið
er. Við erum með marga fastakúnna,
og sumir koma reglulega langt að til
að borða hjá okkur. Það er til dæmis
fjölskylda á Selfossi sem kemur mjög
reglulega til okkar. Síðast héldu þau
upp á afmæli eins fjölskyldumeðlims
hér hjá okkur.“
Blaðakona og ljósmyndari sem
heimsóttu Svavar og Natthawat voru
GlerborG
Mörkinni 4, reykjavík | SíMi 565 0000 | www.GlerborG.iS
Er bíllinn klár fyrir
sumarið?
Við einföldum líf bíleigandans
Ferðabox
Reiðhjóla-
grindur
Þverslár
Taílenska undrið á Völlunum
n Gómsætir réttirnir laða að matgæðinga úr öllum áttum n Voru álitnir klikkaðir í byrjun
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
„Flestir bjuggust við
að hér mundum
við sitja í hálft ár, án þess
að einn einasti gestur
kæmi, og hunskast svo
burtu með skottið milli
lappanna.“
Hjónin Svavar og Natthawat hafa rekið Ban Kúnn saman í
tvö og hálft ár.
Pad-thai Vinsælasti rétturinn á matseðlinum.
Nam-tok Heiti réttarins þýðir foss og er dregið af því að vökva sem kjötið gefur frá sér við
steikingu er jafnóðum hellt af.