Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2016, Blaðsíða 24
Vikublað 21.–23. júní 201620 Menning
U
mtalaðasta listaverk
síðustu viku var vafalaust
gjörningurinn Nektarskrið,
eða Naked Crawl, sem Curver
Thoroddsen sýndi á opnun menn-
ingarhátíðar Íslendinga, Air d‘Islande,
í Marseille á 17. júní.
Curver skreið nakinn um gólf í kok-
teilboðinu í Théâtre de la Criée í rúm-
lega klukkutíma, en þar voru meðal
annars mennta- og menningarmála-
ráðherra, formaður KSÍ og fjallkonan,
sem flutti ljóð eftir Jónas Hallgrímsson
á nokkrum tungumálum.
Gjörningur Curvers hefur fengið
blendnar viðtökur, sumir hafa endur-
gert gjörninginn og birt myndir á
netinu en aðrir hafa bölsótast yfir hon-
um í kommentakerfum vefmiðla.
Curver segir í samtali við DV að
nektarskrið sé sparigjörningur sem
hann flytji ekki nema við sérstök tæki-
færi, enda taki hann mikið á líkamlega,
hann fái brunasár og smáskurði, þar
sem hann dregur sig áfram á höndun-
um eftir mörkum rýmisins.
Hann segir inntak gjörningsins
vera algjörlega opið fyrir túlkun áhorf-
andans enda fylgi honum engar frek-
ari upplýsingar. „Fyrir mitt leyti fjall-
ar hann um okkur mannskepnurnar,
barning okkar í gegnum lífið og þær
hindranir sem okkur mæta,“ segir
Curver en þó geti fleiri áhugaverð hug-
renningatengsl kviknað við áhorf á
gjörninginn.
„Meðan ég var að gera gjörn-
inginn í þetta skiptið var ég mikið að
hugsa um allt flóttafólkið og þann
hrylling sem það er að upplifa. Í raun-
inni eru þau „að skríða“ gjörsamlega
varnarlaus um alla Evrópu að leita
að skjóli og frið. Á meðan erum við
Evrópu búarnir í brjálæðislega dýrum
ferðum til Frakklands til að horfa á fót-
boltaleiki og borða góðan mat,“ segir
Curver, sem segist þrátt fyrir vanga-
velturnar hafa stutt íslenska landsliðið
á vellinum í Marseille á laugardag. n
GOTT ÚRVAL
FÆÐUBÓTAREFNA
Glæsibæ • Netverslun: www.sportlif.is
Gera upp
sögufrægt
hús í Aþenu
sem listarými
n Eva Ísleifsdóttir myndlistarkona er í alþjóðlegum hópi sem byggir
upp nýtt verkefnarými í miðborg Aþenu n „Aþena er borg sem tifar“
Í
slenska myndlistarfólkið Eva Ís-
leifsdóttir og Brynjar Helgason
eru í alþjóðlegum hópi lista-
manna, arkitekta og hönnuða
sem vinna nú að því að gera upp
sögufrægt en niðurnítt hús í miðborg
Aþenu í Grikklandi og byggja þar
upp listarými með vinnustofum og
sýningarrými.
Markmið hópsins, sem safnar
nú fyrir verkefninu á hópfjár-
mögnunarsíðunni We Make It, er
að skapa alþjóðlegan vettvang þar
sem mismunandi skapandi grein-
ar og geta mæst og átt í samtali og
þannig myndað nýjar og áhugaverð-
ar tengingar, auk þess sem unnið
verður að samstarfsverkefnum með
samfélögum í nágrenni hússins.
Féllu fyrir borginni
Hópurinn sem nefnist A-Dash á
uppruna sinn í vinnustofudvöl Evu
Ísleifsdóttur í Aþenu árið 2015 þar
sem hún kynntist svissnesku lista-
konunni Noemi Niederhauser.
„ Okkur kom svo vel saman og féllum
algjörlega fyrir borginni þannig að
við tókumst í hendur að lokinni dvöl
og ákváðum að flytja til Aþenu á nýju
ári,“ segir Eva.
Fljótlega eftir að þær höfðu upp-
fyllt loforðið bættust Zoe og Catriona
Gallagher í hópinn og ekki leið að
löngu þar til sú hugmynd kviknaði
að gera upp sögufrægt hús í eigu fjöl-
skyldu Zoe sem lista- og verkefna-
rými. Húsið er byggt um 1900 í ný-
klassískum stíl og er friðað, en engu
að síður hefur það verið í niður-
níðslu undanfarin ár.
„Vegna fjárskorts og áhugaleysis
stjórnvalda hefur húsið að mestu
leyti grotnað niður og er að verða
að rústum – eins og svo mörg hús í
Aþenu. Hér eru ótal tóm og yfirgefin
hús, en stjórnvöld hafa jú meira
að hugsa um varðandi lífsskilyrði
borgar búa og flóttamannavandann
sem geisar. Það er mikið atvinnu-
leysi, heimilisleysi og almenn krísa,“
segir Eva.
Að lokum bættust Benjamin
Cohen og Brynjar Helgason í hópinn.
„Af einskærum áhuga og vináttu
komu þeir til Aþenu til þess að hjálpa
við að gera upp húsið,“ segir Eva.
Sögufrægt hús öðlast nýtt líf
Eva segir bygginguna og staðsetn-
inguna vera um margt sögufræga,
þar ku gríska frelsishetjan Yannis
Makriyannis hafa dvalist um hríð
og þar var síðar vinsæll veitinga-
staður um margra ára skeið. Þegar
hópurinn hefur unnið í húsinu hefur
því verið mikið um að eldra fólk úr
hverfinu kíki inn, rifji upp minningar
sínar af staðnum og forvitnist um
hvað muni rísa næst í þessu forn-
fræga húsi.
„Við sjáum fyrir okkur að húsið
verði lifandi vera, með sinn karakter
og sögu. Húsið er tveggja hæða og
hægt að ganga inn í það að framan-
og aftanverðu. Svo erum við með
port eða garð þar sem hægt verður
að setjast út og sýna bíómyndir og
myndbandsverk. Einnig eru hug-
myndir um að hafa súpukvöld einu
sinni til tvisvar í mánuði. Þar væri þá
„Við sjáum fyrir
okkur að húsið
verði lifandi vera, með
sinn karakter og sögu.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Skreið nakinn undir
ræðu ráðherra
Curver sýndi gjörninginn Nektarskrið á 17. júní í Marseille
Nektarskrið
Curver sýndi
gjörninginn
Nektarskrið á
meðan Illugi
Gunnarsson,
mennta- og
menningar-
málaráðherra,
flutti ræðu á
opnun menn-
ingarhátíðar í
Marseille.
MyNd JóhaNNeS
SteFáNSSoN
Hollywood-leikarinn Anton Yelchin, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Star Trek-
myndunum, lést í bílslysi á
sunnudag. Hann var aðeins 27
ára gamall.
Í lok síðustu viku var opnuð ný álma Tate-nútímalistasafns-ins í London. Álman er hönnuð
af svissnesku stjörnuarkitektun-
um Herzog og de Meuron, en
það eru þeir sömu og hönnuðu
aðalbyggingu safnsins í gömlu
orkuveri við ána Thames. Nýja
byggingin, sem er kölluð The
Switch House, er 10 hæðir og í
henni eru þrjú gallerí og þakhæð
með útsýni yfir borgina. Með nýju
byggingunni
getur safnið,
sem er eitt
mikil-
vægasta
listasafn
heims í
dag, sýnt
60% fleiri
verk hverju
sinni.
Talandi um söfn, þá verð-ur opnað nýtt safn í Älmhult í Svíþjóð í lok júní tileinkað
sænska húsgagnarisanum IKEA.
Á safninu verður saga húsgagna-
fyrirtækisins sögð í máli og Billy-
hillum, og starfsemi fyrirtækis-
ins kynnt. Safnið verður staðsett
í byggingunni sem hýsti fyrstu
IKEA- verslunina
árið 1958. Að-
gangseyrir er
60 sænskar
krónur
fyrir al-
menning
en frítt fyrir
starfsmenn
IKEA.
Úr listheiminum