Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2016, Blaðsíða 25
Vikublað 21.–23. júní 2016 Menning 21
Retor Fræðsla - Hlíðasmára 8, Kópavogi - Sími: 519 4800 - www.retor.is
Íslensku-
kennsla
fyrir erlent
starfsafl
eldað ofan í alla sem koma og fólk
gæti spjallað um lífið og tilveruna –
nú eða bara borðað og ekkert spjall-
að. Í grunninn er þetta einstakt tæki-
færi til að gera upp þetta sérstaka hús
áður enn það eyðileggst og skapa frá-
bærar vinnustofur og sýningarrými í
hjarta Aþenu,“ segir Eva.
Andrými í lifandi borg
„Aþena er borg sem tifar, Aþena er
lifandi,“ segir Eva um ástæður þess
að hópurinn hafi laðast að grísku
höfuðborginni.
„Þegar maður segir fólki hvað-
an maður er, hlær það oft og spyr
af hverju maður hafi verið að koma
hingað frá Íslandi ? Ég segi oft
„because of the micro-climate“,“ út-
skýrir Eva.
Virðist þér þá vera meiri möguleik-
ar í Grikklandi fyrir svona grasrótar-
verkefni en annars staðar?
„Það er gróska í myndlist þarna,
það er spurning hvort það sé þetta
andrými sem gefur færi á því. Það er
samt ekki þannig að það úi og grúi
af galleríum og verkefnarýmum,
heldur eru þetta frekar einstakir við-
burðir sem listamenn standa sjálfir
fyrir. En eftir hrun verður yfirleitt
eitthvert rof, það myndast eitthvert
rými. Það er eins og hvatinn til að
gera hlutina sjálfur verði sterkari
– „ef ég geri það ekki, þá gerir það
enginn!““ segir Eva og nefnir nokkur
önnur svipuð verkefni í Aþenu þar
sem hópar fólks hafa tekið sig
saman og gert upp niðurnídd
hús og skapað líflegan vettvang
fyrir list og nærsamfélög.
„Það er líka mikið um myndlistar-
verkefni sem koma annars staðar að
úr heiminum, með fjármagn annars
staðar að úr Evrópu. En það er mikil-
vægt fyrir okkur að vera ekki bara
einangraður hópur af erlendum
listamönnum sem heldur sig út af
fyrir sig í sínum vinnustofum og sýn-
ingarrýmum. Við viljum samstarf við
gríska myndlistarmenn og verkefni
sem eru frá Aþenu,“ segir Eva.
Hópurinn stendur nú fyrir hóp-
fjármögnun til að fjármagna lag-
færingu og vinnu við húsið á vefsíð-
unni We Make It. „Hópfjármögnun
varð fyrir valinu af því að við höfðu
heyrt af góðum árangri ýmissa ver-
kefna sem annars var erfitt að finna
peninga fyrir. Við erum líka að skoða
styrki samhliða söfnuninni, þá
mögulega styrki sem tengjast varð-
veislu menningarminja, eða sam-
starfsverkefnum listamanna frá
þessum löndum.“
Hægt er að leggja A-dash hópnum
lið og styrkja verkefnið á vefsíðunni
https://wemakeit.com/projects/a-
dash-project-space-athens n
Búa til listarými í
miðborg Aþenu Tveir
íslenskir myndlistar-
menn eru í hópnum
A-Dash sem gerir nú upp
sögufrægt hús í grísku
höfuðborginni Aþenu
og skapar þar nýtt
listarými.
Mynd A-dAsh
„Aþena er borg
sem tifar.
„Eftir hrun verður
yfirleitt eitthvert
rof, það myndast eitt-
hvert rými. Það er eins og
hvatinn til að gera hlutina
sjálfur verði sterkari.