Fréttablaðið - 14.06.2017, Page 14
Fótbolti „Ég er mjög ánægður
með frammistöðuna,“ sagði Freyr
Alexandersson, þjálfari íslenska
kvennalandsliðsins í knattspyrnu,
eftir 1-0 tap gegn Brasilíu, einu besta
kvennalandsliði heims í gærkvöldi.
Marta, sem er jafnan talin besta
knattspyrnukona allra tíma, skor-
aði eina mark leiksins á 67. mínútu.
Hún slapp þá inn fyrir vörn Íslands
og setti boltann undir Guðbjörgu
Gunnarsdóttur og inn. Svekkjandi
niðurstaða eftir flottan leik.
Eitthvað til að byggja á
Freyr segir að frammistaðan hafi
verið góð og horfir, eðlilega, ekki
í úrslitin enda um vináttulands-
leik að ræða og aðalatriðið að liðið
spili sig enn betur saman fyrir stóru
stundina, en nú er rúmur mánuður
þangað til flautað verður til leiks í
Hollandi þar sem stelpurnar okkar
verða vonandi hrókar alls fagn-
aðar. Að tapa 1-0 gegn einu besta
liði heims er engin skömm og það
tekur Freyr undir:
Jákvæð teikn þrátt fyrir tap
Ísland hefur leik á EM í Hollandi eftir rúman mánuð. Íslenska liðið spilaði sinn síðasta vináttuleik í gær
gegn firnasterkum Brössum og tapaði með minnsta mun. Þjálfarinn horfir jákvæðum augum á framhaldið.
Brasilíski markvörðurinn Barbara lendir hér í kröppum dansi við samherja og mótherja í leiknum á Laugardalsvelli í gærkvöldi. FréttaBLaðið/anton Brink
„Ég sagði það fyrir leikinn og ætla
standa við það að úrslitin skipta
ekki máli,“ sagði Freyr.
„Frammistaðan var geggjuð eftir
minni tilfinningu og eftir þeim upp-
lýsingum sem ég fékk í hálfleik um
hvernig tölfræðin var. Þetta er eitt-
hvað til að byggja á og ég er stoltur
af liðinu.“
Vantaði endahnútinn
Frammistaða Íslands í leiknum var
eins og áður segir mjög góð, en það
sem vantaði var að koma boltanum
yfir línuna. Holningin á liðinu var
mjög góð og það lítur ansi vel út
fyrir Evrópumótið. Aðaláhyggju-
efni Freys er nú hvernig liðið ætlar
að skora mörk í sumar.
„Auðvitað er neikvætt í því líka
að við erum ekki að klára færin. Ég
er ósáttur við það og við verðum að
laga það. Þegar það verða stig í boði
þá verðum við að klára þessi færi.
Við getum ekki lagt svona mikið í
leikinn og fengið svona mörg færi
án þess að það gefi okkur neitt.“
Enn ein krossbandaslitin
Krossbandsslit hafa gert landsliðinu
erfitt fyrir undanfarin ár og í gær
varð ljóst að Margrét Lára Viðars-
dóttir er með slitið krossband og
getur því ekki spilað með liðinu á
EM í sumar, en Margrét Lára er fyrir-
liði liðsins.
H ó l m f r í ð u r M a g n ú s d ó t t i r
meiddist einnig fyrr á árinu og fleiri
lykilmenn eins og Dóra María Lárus-
dóttir hafa einnig lent í erfiðum
meiðslum, en ætlar þetta engan
enda að taka?
„Jú. Þetta er búið núna. Þetta er
ótrúlegt. Ég á ekki til orð og auð-
vitað er þetta sorglegt fyrir hana
[Margréti Láru] sem fyrirliða liðsins,
þennan stórkostlega íþróttamann.
Það er ekki meira af meiðslum. Nei,
takk!“ sagði þjálfarinn ákveðinn.
Glaður Freyr á koddann í kvöld
Ég held að það sé engin spurning
að Freyr Alexandersson var glaður
þegar hann lagðist á koddann í gær-
kvöldi. Að tapa með minnsta mun
og mögulega ósanngjarnt gegn
einu besta kvennalandsliði heims
er ekkert til að skammast sín fyrir.
Leikkerfið og uppleggið í leiknum
svínvirkaði og allir leikmenn lögðu
sig virkilega fram í allt sem var lagt
upp með.
Það verður erfitt fyrir leikmenn-
ina af bekknum að brjótast inn í
liðið eftir frammistöðu þeirra ellefu
sem byrjuðu leikinn í kvöld. Eitt er
víst að þetta íslenska lið, með Söru
Björk Gunnarsdóttur í fararbroddi,
mun berjast til síðasta blóðdropa á
EM í sumar og rúmlega það.
anton@365.is
Við getum ekki lagt
svona mikið í
leikinn og fengið svona mörg
færi án þess að það gefi
okkur neitt.
Freyr Alexanders-
son, landsliðs-
þjálfari
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og
glæsileik
i
endalaus
t úrval af
hágæða
flísum
Finndu okkur
á facebook
18.55 Huesca - Getafe Sport 2
19.45 Grindavík - FH Sport
Pepsi-deild karla
19.15 ka - Ía Akureyrarv.
19.15 Breiðablik - Valur Kópav.
20.00 Grindavík - FH Grindavíkurv.
inkasso-deildin
19.15 Þróttur - Leiknir r.Eimskipsv.
Í dag
Nýjast
Ísland - Brasilía 0-1
0-1 Marta (67.).
Byrjunarlið Íslands: Guðbjörg Gunnars-
dóttir - Glódís Perla Viggósdóttir, Sif Atla-
dóttir (73. Málfríður Erna Sigurðardóttir),
Ingibjörg Sigurðardóttir - Gunnhildur Yrsa
Jónsdóttir (78. Anna María Baldursdóttir),
Sigríður Lára Garðarsdóttir, Sara Björk
Gunnarsdóttir, Hallbera Gísladóttir (53.
Rakel Hönnudóttir) - Agla María Alberts-
dóttir (85. Elín Metta Jensen), Katrín
Ásbjörnsdóttir (63. Berglind Björg Þorvals-
dóttir), Fanndís Friðriksdóttir (85. Svava Rós
Guðmundsdóttir).
Vináttulandsleikur
VErður ýMi HENt Í Þá DJúpu?
Ísland mætir tékklandi í Brno
í gríðarlega mikil-
vægum leik í undan-
keppni EM 2018 í
handbolta klukkan
16.10 í dag. Óvíst er
með þátttöku varnar-
mannsins Bjarka Más Gunnars-
sonar en hann meiddist á æfingu
í fyrradag. Arnar Freyr Arnarsson
er einnig tæpur vegna meiðsla. Því
var Valsmaðurinn ungi ýmir Örn
Gíslason tekinn með til tékk-
lands. Og svo gæti farið að hann
léki sinn fyrsta keppnisleik fyrir
Ísland í dag. „Hann hefur ákveðna
eiginleika sem við erum að leita
eftir upp á varnarleikinn sem við
ætlum að reyna að þróa. Hann
staðfesti það á æfingamótinu í
Noregi. Það er ekki stærsta sviðið
en gaf ákveðnar vísbendingar. Þess
vegna ákváðum við að taka hann
með, bæði svo hann fengi reynslu
en kannski er hann á leið í djúpu
laugina, hver veit?“ sagði lands-
liðsþjálfarinn Geir Sveinsson við
íþróttadeild í gær.
MArGrÉt LárA FEr EKKi á EM
Margrét Lára Viðarsdóttir, fyrir-
liði íslenska kvennalandsliðsins í
fótbolta, verður ekki með á EM í
Hollandi sem hefst 16. júlí. Mar-
grét Lára er með slitið krossband
í hné og því er tímabilinu lokið
hjá henni. Margrét Lára meidd-
ist í 1-4 sigri Vals á
Haukum í 29. maí
síðastliðinn og um
helgina kom svo í
ljós að krossband í
hné er slitið. Þetta
er mikið áfall fyrir
Ísland en Margrét
Lára er ekki bara
fyrirliði landsliðs-
ins heldur einnig
markahæsti leik-
maður
þess frá
upphafi
með 77
mörk
í 117
leikjum.
AglaMaría kjúlli á að vera
sjá um boltana þessa vikuna
á æfingu, en er bara því
miður að brillera með A
landsliðinu.
Berglind Hrund Jónasdóttir
@beGGaNN
1 4 . j ú N í 2 0 1 7 M i Ð V i K U D A G U R14 S p o R t ∙ F R É t t A b l A Ð i Ð
sport
1
4
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
9
-5
0
3
4
1
D
1
9
-4
E
F
8
1
D
1
9
-4
D
B
C
1
D
1
9
-4
C
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
3
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K