Fréttablaðið - 23.06.2017, Síða 6
Mikil átök brutust út á milli mótmælenda og lögreglunnar í Venesúela í gær. Mótmælendur þustu út á götur til þess að sýna saksóknaranum Luisu
Ortega Diaz stuðning sinn. Hæstiréttur í landinu hefur samþykkt réttarhöld yfir Diaz fyrir alvarleg afglöp í starfi sem gætu orðið til þess að hún
verði rekin úr embætti. Diaz hefur gengið býsna hart fram í gagnrýni sinni á Nicolás Maduro, forseta landsins, undanfarið. Fréttablaðið/EPa
Iðnaður Reykjaneshöfn og eigandi
lóðar United Silicon í Helguvík hafa
samið um uppgjör á 190 milljóna
króna lóðargreiðslu sem hafði verið í
vanskilum síðan í nóvembermánuði
árið 2015. Dráttarvextir nema þar af
30 milljónum króna en fimm ár eru
liðin síðan lóðin var seld.
„Þetta er ekki lengur í vanskilum og
greiðslur hafa átt sér stað þó skuldin
sé ekki greidd að fullu. Menn horfa
björtum augum til framtíðar,“ segir
Halldór Karl Hermannsson, hafnar-
stjóri Reykjaneshafnar, sem undir-
ritaði samkomulagið við lóðareigand-
ann Geysi Capital ehf. um miðjan júní.
Höfnin seldi lóðina árið 2012, á
362 milljónir króna, til Stakksbrautar
9 ehf. sem síðar rann inn í Sameinað
sílikon hf. (United Silicon).
Tveimur árum síðar eignaðist
Geysir Capital, sem er í eigu hollenska
félagsins USI Holding BV, lóðina, en
þeir Magnús Garðarsson, fyrrverandi
forstjóri United Silicon, og Auðun
Helgason, lögmaður og stjórnarfor-
maður Geysis og fyrrverandi stjórnar-
maður kísilversins, hafa verið í for-
svari fyrir félagið.
Kaupverðinu var skipt í fjórar
greiðslur og voru fyrstu tvær greiddar
á settum tíma eða alls 200 milljónir
króna.
Þriðja greiðslan var upp á 100 millj-
ónir, var á gjalddaga í nóvember 2015
og fór í innheimtu hjá lögfræðingi
hafnarinnar nokkrum mánuðum
síðar.
Síðustu 62 milljónirnar átti svo að
greiða í apríl í fyrra. Auðun sagði í
ágúst 2016 að vanskilin mætti rekja til
tafa á hafnarframkvæmdum Reykja-
neshafnar, sem er í eigu Reykjanes-
bæjar, í Helguvík.
Semja um 190 milljóna
lóðarskuld kísilversins
Reykjaneshöfn samdi við eiganda lóðarinnar undir United Silicon í Helguvík
um 190 milljónir króna sem höfðu ekki verið greiddar. 30 milljónir bættust
ofan á vegna vanskila síðan árið 2015. Skuldin hefur ekki verið greidd að fullu.
Verksmiðja United Silicon stendur á lóðinni Stakksbraut 9 í Helguvík.
Fréttablaðið/VilHElm
Magnús hætti svo í stjórn verk-
smiðjunnar í apríl síðastliðnum en
rekstur hennar hefur gengið illa allt
frá gangsetningu í nóvember í fyrra
og líkt og greint hefur verið frá verið
plagaður af mengunaróhöppum.
Samkvæmt upplýsingum sem
Fréttablaðið hefur undir höndum
hófst vinna að samkomulaginu um
síðustu greiðslurnar tvær rétt eftir
áramót. Þar var samið við Geysi Capi-
tal en United Silicon hefur einnig
viðurkennt greiðsluskyldu. Þá hefur
blaðið heimildir fyrir því að ráðgert sé
að Geysir renni svo síðar á árinu inn í
rekstrarfélag kísilversins.
haraldur@frettabladid.is
Mótmælendur styðja saksóknarann
Þetta er ekki lengur
í vanskilum og
greiðslur hafa átt sér stað þó
skuldin sé ekki greidd að
fullu. Menn horfa björtum
augum til framtíðar.
Halldór Karl Hermannsson,
hafnarstjóri Reykjaneshafnar
Bretland Sams konar klæðning og
var utan á Grenfell-turninum finnst á
um það bil 600 öðrum turnum á Eng-
landi. Frá þessu greindi breska for-
sætisráðuneytið í gær en klæðningin
er talin hafa átt stóran þátt í stórbrun-
anum sem kostaði 79 lífið.
Nú þegar hafa tilraunir sýnt fram
á að þrjú sýnishorn af klæðningunni
eru einkar eldfim. Fleiri tilraunir verða
gerðar kunnar almenningi á næstu
dögum.– þea
Eldfim klæðning
á 600 turnum
SkIpulagSmál 361 íbúð verður
byggð á Útvarpsreitnum í Efstaleiti
á næstu þremur árum auk um 1.000
fermetra atvinnuhúsnæðis. Sam-
komulag milli Reykjavíkurborgar og
verktakans Skugga 4 þessa eðlis var
undirritað í gær. Í tilkynningu frá
Reykjavíkurborg segir að gert sé ráð
fyrir að fyrstu íbúðir verði afhentar
næsta sumar. Skuggi 4 selur íbúðir á
reitnum til aðila á frjálsum markaði,
meðal annars til leigufélaga til að
stuðla að félagslegri blöndun.
Samkvæmt samkomulaginu sem
undirritað var í gær selur Reykja-
víkurborg Skugga 4 byggingarrétt
sinn á reitnum fyrir 175 milljónir
og kaupir samhliða 15 íbúðir sem
verða dreifðar um reitinn. Íbúðirnar
sem Reykjavíkurborg mun kaupa
verða 40 til 60 fermetrar að stærð
auk 5 til 7 fermetra geymslu. – jhh
2 3 . j ú n í 2 0 1 7 F Ö S t u d a g u r6 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a ð I ð
atvInna Samkvæmt vinnumarkaðs-
rannsókn Hagstofu Íslands mældist
atvinnuleysi 5,3 prósent í maí.
Samanburður mælinga fyrir maí
2016 og 2017 sýnir að atvinnuþátt-
taka minnkaði um 0,9 prósentustig.
Starfandi einstaklingum fækkaði um
600 og hlutfall starfandi af mann-
fjölda lækkaði um 2,1 stig. Atvinnu-
lausum fjölgaði um 3.000 manns.
Fram kemur í tilkynningu að það
einkennir íslenskan vinnumarkað að
atvinnuleysi eykst alltaf á vormán-
uðum og þá sérstaklega í maí. Helsta
ástæðan er aukin eftirspurn ungs
fólks eftir atvinnu. Af öllum atvinnu-
lausum í maí voru 61,7 prósent á aldr-
inum 16 til 24 ára og var atvinnuleysi
á meðal þeirra 17,6 prósent.
Að jafnaði voru 203.900 manns á
aldrinum 16 til 74 ára á vinnumarkaði
í maí 2017, sem jafngildir 85 prósenta
atvinnuþátttöku. – sg
Starfandi fólki
fækkaði um 600
175
milljónir borgar Skuggi 4
fyrir byggingarrétt á reitnum
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr
Vinnustaðanámssjóði.
Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna
vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur
hluti af starfsnámi skv. aðalnámskrá framhaldsskóla.
Umsóknarfrestur er til 14. nóvember 2017, kl. 16:00.
Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til
þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám
sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim
kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.
Umsóknargögn er að finna á www.rannis.is.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi.
Nánari upplýsingar veitir
Jón Svanur Jóhannsson, sími 515 5820,
jon.svanur.johannsson@rannis.is
Vinnustaðanámssjóður
Umsóknarfrestur til 14. nóvember
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Hundruð íbúða
í Efstaleitið
2
3
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
2
A
-8
6
E
C
1
D
2
A
-8
5
B
0
1
D
2
A
-8
4
7
4
1
D
2
A
-8
3
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K