Fréttablaðið - 23.06.2017, Blaðsíða 44
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
gæði... ending… ánægja.
skoðaðu úrvalið á Weber.is
Regalofagmenn
www.regalo.is
Fríða Rut Heimisdóttir
Hárgreiðslumeistari
Veldu með hjartanu 100% vegan
hárvörur frá Maria Nila.
Head & Hair Heal verndar lit hársins,
örvar hárvöxt og vinnur á móti hárlosi,
þurrum hársverði og flösu ásamt því
að vera bólgueyðandi. Sjampóið og
hárnæringin eru hönnuð
til daglegra nota fyrir alla.
Maskan má nota 1-2 í viku.
Allar vörurnar í línunni innihalda
vegan innihaldsefni, en hvorki súlföt,
paraben né aðra ofnæmisvalda.
Regalo ehf Iceland
RAppARI OG pRÓDúSER
Þórður Ingi Jónsson
pLAY FOLLOW
Föstudagsplaylista Lífsins má einnig finna
á Spotify undir notandanafninu Vísir.
The Pack In My Car
WifiGawd Juggpacks
Playboycarti Kelly K
Darkthrone Cromlech
Miles Davis Miles Runs the Voodoo Down
Smokepurpp Audi.
MC Bin Laden Minha Ex
DJ Rashad Kush Ain’t Loud
La Goony Chonga Tira Tira ft. Black Kray
Spaceghostpurrp Friday
FLYTJANDI LAG
Föstudags-
playlisti
Lífsins
„Þetta er playlisti með tónlist úr ýmsum áttum sem ég myndi
persónulega dilla mér við á föstudagskvöldi, ef þið mynduð
gera það líka fáið þið kúlstig!“ segir Lord Pusswhip, en það er
listamannsnafn Þórðar Inga Jónssonar, rappara og pródúsers,
sem er maðurinn bak við föstudagsplaylistann að þessu sinni.
Kaupir bara
það sem
honum líkar
Daði Lár er ekki eini áhugamaðurinn um skó en bæði pabbi hans og bróðir deila áhugamálinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Daði Lár Jónsson fékk áhugann á skóm í
vöggugjöf en pabbi hans, Jón Kr. Gíslason
körfuboltagoðsögn, sá til þess að hann
væri alltaf vel skóaður þegar hann var lítill.
Hann á nú hátt í 80 pör og eins og pabbinn
er hann einlægur Nike-aðdáandi.
Frá því að ég var kominn í þá skóstærð sem ég nota í dag sem var í kringum 2010 hef ég verið að safna skóm. Það má segja að ég hafi fengið áhugann
á skóm í vöggugjöf en pabbi sá
alltaf til þess að ég og bræður mínir
værum í nettum Nike-skóm þegar
við vorum litlir, enda er hann sjálfur
einlægur Nike-aðdáandi. Sjálfur fór
ég að hugsa mikið um skó snemma
á unglingsárunum en það voru þá
aðallega skór til að nota í körfu-
bolta,“ segir Daði Lár Jónsson, mikill
áhugamaður um skó – þá aðallega
strigaskó eða „sneakers“ eins og þeir
eru oft kallaðir.
Daði Lár fær áhugann eins og
hann segir úr körfunni, en hann er
leikmaður Keflavíkur auk þess sem
faðir hans er Jón Kr. Gíslason, ein af
goðsögnum Keflavíkur í körfubolta.
Það leikur enginn vafi á hvaða
merki er í uppáhaldi hjá Daða en
uppeldið hefur greinilega skilað
sér – hann á einungis skó frá Nike
í safninu.
Daði segir að hann hafi byrjað
safnið sitt á Nike Air Force 1, en um
er að ræða þekktustu og vinsælustu
skóna frá Nike sem virðast alltaf
vera að skjóta upp kollinum sem
tískugripur – þó að margir myndu
segja þá sígilda. Daði segir að kvik-
myndin Notorious, ævisaga rapp-
arans Notorious B.I.G. eða Biggie
Smalls, hafi spilað inn í að hann
keypti sér fyrstu Air Force skóna.
„Í dag er ég aðallega að safna
Lebrons, en hann hefur alltaf verið
í miklu uppáhaldi hjá mér, en skó-
lína hans hefur þó dalað síðustu ár
og ég er farinn að færa mig meira í
Jordans og Kyries,“ segir Daði og á
þá við skólínur NBA-leikmannanna
Lebron James, Michael Jordan og
Kyrie Irving.
Hvað áttu orðið mörg pör og eru
einhver sérstök pör í uppáhaldi?
„Þetta eru rétt undir 80 pörum í dag
og svo eru um 50 pör hérna í viðbót
sem Dagur Kár bróðir minn á. Mínir
uppáhaldsskór hafa alltaf verið Jor-
dan 3 og af þeim fimm litum sem
ég á þá eru það Fire red sem eru
mér kærastir. Ég hlakka mikið til á
næsta ári en þá koma Jordan 3 Black
Cement út aftur og þið getið bókað
að þeir bætast við safnið.“
Hefur þú einhvern tímann eytt
óvenju miklu í eitt par? „Ég er alfar-
ið á móti því að yfirborga fyrir skó
og þessi endursölumarkaður sem
er t.d. í kringum Yeezy-skó er ekki
fyrir mig. Ég kaupi það sem mér
líkar en ekki það sem er vinsælast.
Ég hef alltaf verið duglegur að finna
góð kaup á eBay og í outlet-búðum
í Bandaríkjunum. Ég hef það nokk-
urn veginn fyrir reglu að eyða aldr-
ei yfir 250 dollurum í eitt par.“
Daði segist ganga í öllum skónum
sínum reglulega. Hann vill njóta
þess að nota þá og hefur engan
áhuga á að selja þá aftur – en í
sneaker-geiranum tíðkast það gjarn-
an að menn geyma skóna í kössun-
um eins og safngripi frekar en skó-
fatnað. Hann segist þó eiga eitt par
af Nike Flight 1 sem er einungis til
sýnis en faðir hans spilaði í skónum
„einhvern tímann fyrir aldamótin“.
Þeir sem vilja fylgjast nánar með
Daða og þróun safnsins hans geta
fylgt honum á instagram @dadilar-
jonsson en hann er duglegur að
henda inn myndum af dýrgripunum
sínum. stefanthor@frettabladid.is
Uppeldið
hefur greini-
lega skilað
sér – hann
á einungis
skó frá Nike í
safninu.
2 3 . j ú n í 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U R32 l í F i ð ∙ F R É T T A B l A ð i ð
2
3
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
2
A
-8
1
F
C
1
D
2
A
-8
0
C
0
1
D
2
A
-7
F
8
4
1
D
2
A
-7
E
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K