Fréttablaðið - 23.06.2017, Blaðsíða 8
DÓMSMÁL Rannsókn Víðis Smára
Petersen, hæstaréttarlögmanns á
Lex lögmannsstofu, á 386 dómum í
einkamálum fyrir Hæstarétti bendir
til þess að líkur séu á því að fólk og
fyrirtæki höfði of oft dómsmál í stað
þess að reyna að ná sáttum. Hann
segir brýnt að lögmenn leggi ískalt
mat á það hvorum megin sigurlíkur
skjólstæðingsins liggi.
Víðir Smári skoðaði 386 dóma í
einkamálum fyrir Hæstarétti Íslands
á árunum 2013 og 2014. Í ljós kom að
þegar stefnendur eru einstaklingar
hafa þeir betur í aðeins 45 prósentum
tilvika og fá þá að meðaltali 63 pró-
sent af kröfu sinni dæmd. Hlutfallið
á milli stefnufjárhæðar og dæmdrar
fjárhæðar var með öðrum orðum 63
prósent. Í tilviki lögaðila reyndust
hlutföllin hærri. Sigurhlutfallið var
53 prósent og hlutfallið á milli stefnu-
fjárhæðar og dæmdrar fjárhæðar 91
prósent. Samantekið voru líkur ein-
staklinga á því að fá alla stefnufjár-
hæð sína dæmda 28,35 prósent en
48,23 prósent í tilviki lögaðila.
Víðir Smári segir að auk þess þurfi
að líta til vænts málskostnaðar. Svo
virðist sem sá sem vinni dómsmál fái
aðeins hluta málskostnaðar dæmd-
an. Í rannsókninni kemur fram að ef
einstaklingur vinnur dómsmál sem
hann höfðar fái hann að meðaltali
um 1,3 milljónir króna í dæmdan
málskostnað. Víðir Smári segir að
það jafngildi um fimmtíu klukku-
stunda vinnu lögmanns.
„Það er ósennilegt að það sé
meðaltalstími lögmanns til að reka
heilt mál. Flest mál taka lengri
tíma.“ Mikilvægt sé að hafa í huga
að munurinn á raunverulegum máls-
kostnaði og dæmdum málskostnaði
geti orðið mikill. Íslenskir dómstólar
séu íhaldssamir þegar komi að því að
dæma slíkan kostnað.
Víðir Smári segir að þetta séu
þættir sem menn þurfi að vega og
meta áður en þeir ákveða að höfða
mál. „Fyrsta spurningin sem maður
þarf að spyrja sig er: Hverjar eru
líkurnar á því að ég vinni málið? Ef
málið vinnst þarf ég að spyrja mig
hvort það sé líklegt að ég fái alla
kröfuna dæmda og málskostnað
greiddan. Ef málið tapast þarf ég hins
vegar að spyrja mig hve mikið ég
þurfi að greiða í málskostnað, bæði
minn eigin og hluta af málskostnaði
gagnaðilans.“
Víðir Smári hvetur lögmenn til
að leggja ískalt tölfræðilegt mat á
þessa áhættuþætti. „Þeir geta þá haft
hliðsjón af þessum meðaltalsniður-
stöðum, þótt slíkt sé ekki upphaf og
endir alls, þá sýna þær samt að ein-
staklingar vinna mál í aðeins 45 pró-
sentum tilvika. Það er því augljóslega
í sumum tilvikum höfðað dómsmál
þegar betra hefði verið að reyna að
sætta ágreininginn.“
Hann tekur þó fram að ofan-
greindar niðurstöður eigi aðeins við
þegar fjárhagslegir hagsmunir eru í
húfi. „Ég geng út frá því í rannsókn-
inni að það sé almennt þjóðhagslega
hagkvæmt að aðilar semji í stað þess
að þeir leysi úr ágreiningi fyrir dóm-
stólum, vegna þess að það léttir álagi
af dómskerfinu og sparar kostnað af
rekstri þess. En það geta verið aðrir
hagsmunir en fjárhagslegir í húfi.
Til dæmis mikilvægar prinsippað-
stæður. Í slíkum tilvikum eru það
aðrir hagsmunir en fjárhagslegir sem
mæla gegn því að aðilar reyni að ná
sáttum.“ kristinningi@frettabladid.is
Höfða mál í stað þess að reyna sættir
Nýleg rannsókn leiðir í ljós að einstaklingar sem höfða dómsmál hafa betur í aðeins 45 prósentum tilvika og fá að meðaltali 63 prósent
af kröfu sinni dæmd. Hæstaréttarlögmaður segir oftar en ekki betra að reyna að ná sáttum heldur en að höfða mál fyrir dómstólum.
Þótt meðaltals
niðurstöður séu
ekki upphaf og endir alls, þá
sýna þær samt sem áður að
einstaklingar vinna mál í
aðeins 45 prósentum tilvika.
Víðir Smári Petersen,
hæstaréttar
lögmaður á Lex
lögmannsstofu
Vega þarf og meta marga áhættuþætti áður en ákveðið er að höfða mál fyrir dómi. Oftar en ekki er vænlegra til
árangurs að reyna að ná sáttum, sér í lagi ef deilendur eru sammála um hvar sigurlíkurnar liggja. Fréttablaðið/Hari
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæwww.volkswagen.is
Við látum framtíðina rætast.
Nýr al-rafmagnaður e-Golf með fimm ára ábyrgð.
Hvers manns straumur.
Nýr e-Golf með 300 km drægni* er mættur á svæðið. Komdu í reynsluakstur og
finndu kraftinn í þessum magnaða bíl sem gengur 100% fyrir umhverfisvænni orku.
*S
kv
. N
ED
C
st
að
lin
um
.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæwww.volkswagen.is
ið látu fra tíðina r tast.
ýr al-raf agnaður e- olf eð fi ára ábyrgð.
Nýr e-Golf eð 300 k drægni* er ættur á svæðið. Ko du í reynsluakstur og
finndu kraftinn í þessu agnaða bíl se gengur 100% fyrir u hverfisvænni orku.
*S
kv
. N
ED
C
st
að
lin
um
.
2 3 . j ú n í 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U R8 F R é T T i R ∙ F R é T T A B L A ð i ð
2
3
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
2
A
-8
1
F
C
1
D
2
A
-8
0
C
0
1
D
2
A
-7
F
8
4
1
D
2
A
-7
E
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K