Fréttablaðið - 23.06.2017, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 23.06.2017, Blaðsíða 44
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is gæði... ending… ánægja. skoðaðu úrvalið á Weber.is Regalofagmenn www.regalo.is Fríða Rut Heimisdóttir Hárgreiðslumeistari Veldu með hjartanu 100% vegan hárvörur frá Maria Nila. Head & Hair Heal verndar lit hársins, örvar hárvöxt og vinnur á móti hárlosi, þurrum hársverði og flösu ásamt því að vera bólgueyðandi. Sjampóið og hárnæringin eru hönnuð til daglegra nota fyrir alla. Maskan má nota 1-2 í viku. Allar vörurnar í línunni innihalda vegan innihaldsefni, en hvorki súlföt, paraben né aðra ofnæmisvalda. Regalo ehf Iceland RAppARI OG pRÓDúSER Þórður Ingi Jónsson pLAY FOLLOW Föstudagsplaylista Lífsins má einnig finna á Spotify undir notandanafninu Vísir. The Pack In My Car WifiGawd Juggpacks Playboycarti Kelly K Darkthrone Cromlech Miles Davis Miles Runs the Voodoo Down Smokepurpp Audi. MC Bin Laden Minha Ex DJ Rashad Kush Ain’t Loud La Goony Chonga Tira Tira ft. Black Kray Spaceghostpurrp Friday FLYTJANDI LAG Föstudags- playlisti Lífsins „Þetta er playlisti með tónlist úr ýmsum áttum sem ég myndi persónulega dilla mér við á föstudagskvöldi, ef þið mynduð gera það líka fáið þið kúlstig!“ segir Lord Pusswhip, en það er listamannsnafn Þórðar Inga Jónssonar, rappara og pródúsers, sem er maðurinn bak við föstudagsplaylistann að þessu sinni. Kaupir bara það sem honum líkar Daði Lár er ekki eini áhugamaðurinn um skó en bæði pabbi hans og bróðir deila áhugamálinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Daði Lár Jónsson fékk áhugann á skóm í vöggugjöf en pabbi hans, Jón Kr. Gíslason körfuboltagoðsögn, sá til þess að hann væri alltaf vel skóaður þegar hann var lítill. Hann á nú hátt í 80 pör og eins og pabbinn er hann einlægur Nike-aðdáandi. Frá því að ég var kominn í þá skóstærð sem ég nota í dag sem var í kringum 2010 hef ég verið að safna skóm. Það má segja að ég hafi fengið áhugann á skóm í vöggugjöf en pabbi sá alltaf til þess að ég og bræður mínir værum í nettum Nike-skóm þegar við vorum litlir, enda er hann sjálfur einlægur Nike-aðdáandi. Sjálfur fór ég að hugsa mikið um skó snemma á unglingsárunum en það voru þá aðallega skór til að nota í körfu- bolta,“ segir Daði Lár Jónsson, mikill áhugamaður um skó – þá aðallega strigaskó eða „sneakers“ eins og þeir eru oft kallaðir. Daði Lár fær áhugann eins og hann segir úr körfunni, en hann er leikmaður Keflavíkur auk þess sem faðir hans er Jón Kr. Gíslason, ein af goðsögnum Keflavíkur í körfubolta. Það leikur enginn vafi á hvaða merki er í uppáhaldi hjá Daða en uppeldið hefur greinilega skilað sér – hann á einungis skó frá Nike í safninu. Daði segir að hann hafi byrjað safnið sitt á Nike Air Force 1, en um er að ræða þekktustu og vinsælustu skóna frá Nike sem virðast alltaf vera að skjóta upp kollinum sem tískugripur – þó að margir myndu segja þá sígilda. Daði segir að kvik- myndin Notorious, ævisaga rapp- arans Notorious B.I.G. eða Biggie Smalls, hafi spilað inn í að hann keypti sér fyrstu Air Force skóna. „Í dag er ég aðallega að safna Lebrons, en hann hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér, en skó- lína hans hefur þó dalað síðustu ár og ég er farinn að færa mig meira í Jordans og Kyries,“ segir Daði og á þá við skólínur NBA-leikmannanna Lebron James, Michael Jordan og Kyrie Irving. Hvað áttu orðið mörg pör og eru einhver sérstök pör í uppáhaldi? „Þetta eru rétt undir 80 pörum í dag og svo eru um 50 pör hérna í viðbót sem Dagur Kár bróðir minn á. Mínir uppáhaldsskór hafa alltaf verið Jor- dan 3 og af þeim fimm litum sem ég á þá eru það Fire red sem eru mér kærastir. Ég hlakka mikið til á næsta ári en þá koma Jordan 3 Black Cement út aftur og þið getið bókað að þeir bætast við safnið.“ Hefur þú einhvern tímann eytt óvenju miklu í eitt par? „Ég er alfar- ið á móti því að yfirborga fyrir skó og þessi endursölumarkaður sem er t.d. í kringum Yeezy-skó er ekki fyrir mig. Ég kaupi það sem mér líkar en ekki það sem er vinsælast. Ég hef alltaf verið duglegur að finna góð kaup á eBay og í outlet-búðum í Bandaríkjunum. Ég hef það nokk- urn veginn fyrir reglu að eyða aldr- ei yfir 250 dollurum í eitt par.“ Daði segist ganga í öllum skónum sínum reglulega. Hann vill njóta þess að nota þá og hefur engan áhuga á að selja þá aftur – en í sneaker-geiranum tíðkast það gjarn- an að menn geyma skóna í kössun- um eins og safngripi frekar en skó- fatnað. Hann segist þó eiga eitt par af Nike Flight 1 sem er einungis til sýnis en faðir hans spilaði í skónum „einhvern tímann fyrir aldamótin“. Þeir sem vilja fylgjast nánar með Daða og þróun safnsins hans geta fylgt honum á instagram @dadilar- jonsson en hann er duglegur að henda inn myndum af dýrgripunum sínum. stefanthor@frettabladid.is Uppeldið hefur greini- lega skilað sér – hann á einungis skó frá Nike í safninu. 2 3 . j ú n í 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U R32 l í F i ð ∙ F R É T T A B l A ð i ð 2 3 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 2 A -8 1 F C 1 D 2 A -8 0 C 0 1 D 2 A -7 F 8 4 1 D 2 A -7 E 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.