Fréttablaðið - 23.06.2017, Síða 13

Fréttablaðið - 23.06.2017, Síða 13
takist að hrekja ISIS frá borginni en þar hafa samtökin ríkt frá árinu 2014. Orrustan um Mósúl hefur staðið yfir frá því í október síðastliðnum. Hafa Kúrdar og Arabar unnið með hernaðarbandalagi Bandaríkja- manna og tilkynnti ríkisstjórn Íraks að tekist hefði að vinna austurhluta borgarinnar af ISIS í janúar. Verr hefur gengið í vesturhlutanum en á sunnudag tilkynnti íraski herinn um lokakafla orrustunnar. Herinn telur að um 300 skæruliðar séu eftir í borginni, samanborið við 6.000 í október. Til að bæta gráu ofan á svart fyrir ISIS rannsakar rússneska varnar- málaráðuneytið hvort tekist hafi að fella al-Baghdadi sjálfan í loft- árás á Rakka. Óljóst er hvort sú sé raunin en margoft áður hefur dauða al-Bagh dadis verið lýst yfir. Fall ISIS er þó ekki gulltryggt með væntanlegum ósigrum sam- takanna í Rakka og Mósúl, að því er The Independent greinir frá í umfjöllun sinni. Segir þar að fólki í kalífadæminu muni vissulega snar- fækka og áhrif þess minnka en að kalífadæmið sjálft sé ekki nauðsyn- legt ISIS. Án kalífadæmisins getur ISIS enn þrifist utan stórborga Mið-Austur- landa, rétt eins og samtökin gerðu árið 2013. Gætu samtökin enn skipulagt hryðjuverkaárásir sem og haft áhrif á fólk á Vesturlöndum og hvatt til hryðjuverka líkt og þeirra sem áttu sér stað í París, Brussel og Manchester. thorgnyr@frettabladid.is Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtogi ISIS. NordIcphotoS/AFp Orrustan um Rakka í tölum l Hófst 6. júní 2017 l Allt að 117 almennir borgarar hafa farist l Á milli 142 og 312 vígamenn ISIS hafa fallið l Talið er að á milli 3.000 og 4.000 ISIS-liðar séu í borginni Orrustan um Mósúl í tölum l Hófst 18. október 2016 l Allt að 8.000 almennir borgarar hafa farist l Írakar telja 9.000 vígamenn ISIS hafa fallið l Bandaríkin telja 2.000 víga- menn ISIS hafa fallið l ISIS telja 9.100 íraska hermenn hafa fallið l Írakar segja 774 hafa fallið Hlaupið hefst og endar í Laugardalnum. Að því loknu er öllum þátttakendum boðið í sund. Skráning og afhending hlaupagagna fer fram í Laugardalshöll í dag frá kl.16 og þar til 45 mínútum fyrir hverja ræsingu. UPPLÝSINGAR Á MARATHON.IS MIÐNÆTURHLAUP SUZUKI Í KVÖLD Suzuki er stoltur samstarfsaðili Miðnæturhlaups Suzuki og Reykjavíkurmaraþons 2 1 km Ræst kl.21:00 10 km Ræst kl.21:00 5 km Ræst kl.21:20 SVÍÞJÓÐ Dæmi eru um að níu ára börn hafi verið látin sendast með vopn og fíkniefni í hverfum í Svíþjóð sem skilgreind hafa verið sem hættu- svæði. Ofbeldið er orðið grófara í þessum hverfum og lögreglan segir ástandið grafalvarlegt. Táningar hafa tekið þátt í skotbardögum glæpagengja. Áður hafi menn skotið andstæðinginn í fótinn til að hræða hann. Nú skjóti menn andstæðing- inn í höfuðið til að drepa hann. Í nýrri skýrslu sænsku lögreglunn- ar segir að ungmenni á aldrinum 15 til 25 ára beri ábyrgð á glæpaöldunni. Lögreglan bendir á að þau sem eldri eru virki eins og atvinnumiðlun fyrir þau yngri og ýti þeim út í glæpastarf- semi. Þess er getið að í hverfum þar sem ástandið er slæmt tíðkist oft við- skipti með leigusamninga sem hafi í för með sér að margar fjölskyldur búa í sömu íbúð. Afleiðingin sé sú að unglingar forðist að vera heima hjá sér. Í 61 hverfi sem lögreglan flokkar sem hættusvæði eru um fimm þúsund glæpamenn í um 200 gengjum. Innan við helmingur íbúanna hefur atvinnu og óánægjan með samfélagið er mikil. Tekið er fram að ástandið sé sérstaklega alvarlegt í 23 hverfanna. Það eru átta fleiri en í skýrslunni 2015. Í hverfunum sem skilgreind eru sem hættusvæði hefur byggst upp hliðarsamfélag með eigið „réttarkerfi“. Með hótunum, ofbeldi og skemmdarverkum eru verslunar- eigendur þvingaðir til að kaupa sér vernd eða selja starfsemi sína á undirverði. Glæpamenn sýna vald sitt með því að stela úr verslunum án þess að leyna því og borða á veit- ingastöðum í hverfunum án þess að greiða fyrir. Traust á opinbera rétt- arkerfinu er lítið og fáir þora að hafa samband við lögregluna. Grípi lög- reglan inn í gegn þeim sem stjórna er hætta á uppþotum. Spenna hefur einnig myndast í hverfunum vegna nærveru stuðn- ingsmanna ýmissa íslamskra öfga- samtaka. Lögreglan segir þessa þróun ekki hafa gerst á einni nóttu, heldur á nokkrum áratugum. Ástandið ógni lýðræðinu og réttarkerfinu. - ibs Níu ára sendast með vopn og fíkniefni í Svíþjóð Lögreglan segir ástandið í sumum hverfum grafal- varlegt. FrÉttABLAÐIÐ/EpA f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ðÐ Ð 13f Ö S t U D A G U r 2 3 . J ú n Í 2 0 1 7 2 3 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 2 A -6 4 5 C 1 D 2 A -6 3 2 0 1 D 2 A -6 1 E 4 1 D 2 A -6 0 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 2 2 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.