Norðurslóð - 31.03.2005, Síða 5
Norðurslóð - 5
Nýtt fiskvinnshifyrirtæki vinn-
ur lifur, maga, hrogn og fleira
Nýtt fiskvinnslufyrirtæki IsDan
Seefood hóf starfsemi á Dalvík
fyrir skömmu. Eigendur fyrirtæk-
isins eru Sigurður Heimisson og
Freydís Antonsdóttir á Dalvík
og Bjarni Heimisson og Elsa
Eðvarðsdóttir sem búsett eru í
Danmörku. Gert er ráð fyrir að
starfsmenn fyrirtækisins á Dalvík
verði 3-4. Fyrirtækið mun leggja
aðaláherslu á að frysta og flytja
út lifur, en einnig svil, maga, roð
og grásleppuhrogn.
Að sögn Sigurðar Heimissonar
var ákveðið strax í upphafi að
vera ekki að fara í samkeppni
við aðila hér á svæðinu, heldur
myndi fyrirtækið einbeita sér að
ýmsum vannýttum möguleikum
og gæti þannig jafnvel stuðlað
að því að efla eigin framgang
sem og annarra fyrirtækja, með
því m.a. að vinna afurðir sem
fiskvinnslufyrirtæki bæði hér á
svæðinu og víðar hafa þurft að
leggja í kostnað við að urða fram
að þessu.
Megináherslan verður á lifrar-
frystingu, en einnig verða söltuð
grásleppuhrogn, fiskmagar
hreinsaðir og frystir og fiskiroð
verður fryst og flult út.
Sigurður Heimisson og Freyd-
ís Antonsdóttir.
Göngubrú yfir Svarfaðardalsá í farvatninu
Framfarafélag Dalvíkurbyggðar sendi er-
indi til Bæjarráðs Dalvíkurbyggðar á síðasta
fundi þess þar sem vakin var athygli bæjar-
stjórnar á því að í undirbúningi er átak sem
nefna má „Byggjum brú“. Hugmyndin mun
vera að setja á stofn vinnuhóp sem fari að
undirbúa verkefni sem felst í því að byggja
göngubrú yfir Svarfaðardalsá, en hún tengir
saman fremsta hluta Friðlands Svarfdæla og
útivistarsvæðið í Hánefsstaðaskógi.
„Þykir okkur mikils um vert,“ segir í bréf-
inu „að bæjarstjórn og starfsmenn hennar
kynnist sem fyrst og tengist þessari hugmynd.
Óskum við eftir því að bæjarstjórn tilnefni
einn eða fleiri fulltrúa í þennan vinnuhóp."
Hugmynd um að tengja gönguleiðir í
Friðlandi Svarfdæla og útivistarsvæðið í
Hánefsstaðaskógi hefur verið í umræðunni
hjá útivistarfólki og áhugamönnum í ferða-
þjónustu um alllangt skeið og nú á næstunni
verður blásið til fundar með öllum þeim ein-
staklingum og félagasamtökum sem áhuga
hafa á málinu og leggja vilja því lið. Brú
þessi er fyrst og fremst hugsuð fyrir gangandi
umferð en þó hefur koihið til tals að hægt
verði að teyma hesta yfir hana. Sjá menn
helst fyrir sér að steyptar verði varanlegar
undirstöður undir brúarsporðana en brúin
sjálf verði tekin af undirstöðunum yfir vetr-
artímann þegar hætta er á að jakahlaup geti
grandað henni.
Banaslys
Banaslys varð þegar bíll fór
út af þjóðveginum utan við
Rauðuvík sl. miðvikudag og
steyptist niður sæbratta hamra
ofan í fjöru. Ökumaður var
einn í bílnum og mun hafa
látist samstundis. Hann hét ívar
Páll Ársælsson til heimilis að
Hlíðarlandi á Árskógsströnd.
Hann var 18 ára gamall.
Ársreikningur Sparisjóðsins - þús. kr.: 2004 2003
Vaxtatekjur 236.164 230.456
Vaxtagjöld 76.826 73.142
Hreinar vaxtatekjur 159.338 157.314
Aðrar rekstrartekjur 232.597 105.769
Hreinar rekstrartekjur 391.935 263.083
Önnur rekstrargjöld 124.953 116.048
Framlag í afskriftareikning útlána 41.693 64.015
Hagnaður fyrir skatta 225.289 83.020
Skattar -41.802 -14.778
Hagnaður ársins 183.487 68.242
Eignir:
Sjóður, ríkisvíxlar og kröfur á lánastofnanir 589.195 567.912
Útlán 1.461.386 1.209.335
Markaðsverðbréf og eignarhlutir í félögum 662.475 450.868
Aðrar eignir 41.037 41.494
Eignir samtals 2.754.093 2.269.609
Skuldir og eigið fé: Skuldir við lánastofnanir 16.497 28.797
Innlán 1.870.641 1.708.592
Lántaka 153.941 31.458
Aðrar skuldir 23.897 25.823
Tekj uskattsskuldbinding 66.873 35.311
Eigið fé 622.244 439.628
Skuldir og eigið fé samtals 2.754.093 2.269.609
183 milljóna kr. hagn-
aður Sparisjóðsins
Methagnaður varð af rekstri Sparisjóðs Svarfdæla á á árinu 2004
eða 183,5 milljónir króna samanborið við 68,2 millj. kr. á árinu 2003.
Arðsemi eigin fjár var 41,7% samanborið við 18,4% arðsemi á árinu
2003 en nánari samanburður þessara ára sést í meðfylgjandi töflu.
Aðalfundur sparisjóðsins verður haldinn 28. apríl nk.
íþróttir
Ari Jóhann
✓
Islandsmeistari
Ari Jóhann Júlíusson j>erði góða
ferð á Meistaramót Islands 12-
14 ára í frjálsum íþróttum. Ari
Jóhann varð íslandsmeistari í 60
m hlaupi, hljóp á 8,46,varð annar
í langstökki án atrennu, þriðji í
þrístökki án atrennu og fjórði í
hástökki og langstökki.
Þess má geta að í stigakeppni
félaga í flokki pilta 13 ára varð
UMSE í þriðja sæti með 41 stig
og átti Ari öll stigin.
Lífsval
Sparnaðarform 21. aldarinnar
• Séreign sem erfist
Framlög hvers sjóðfélaga eru séreign hans, auk vaxta og
verðbóta.Við fráfall sjóðfélaga gengur séreign í erfðir.
• Viðbót á lífeyri
Allir hafa möguleika á því að greiða í séreignarsjóð og
bæta lífeyriskjör sín með tiltölulega lágu mánaðarlegu
viðbótariðgjaldi.
• Skattalegt hagræði
Iðgjald í séreignarlífeyrisjóð er frádráttarbært frá tekju-
skattsstofni og hvorki þarf að greiða fjármagnstekjuskatt
né eignarskatt af inneigninni. Skattgreiðslum er frestað til
efri áranna þegar persónuafsláttur nýtist yfirleitt betur.
• Sveigjanlegur útgreiðslutími
Útgreiðsla getur hafist hvenær sem er eftir sextugt og skal
dreifast jafnt fram til 67 ára aldurs.Við 67 ára aldur er hægt
að fá allan sparnaðinn greiddan út í einu ef óskað er.
Sífellt fjölgar þeim er tengjast heimabankanum
Ert þú einn af þeim?
Sparisjóður Svarfdæla
r
Askriftarreikningur
Hentar þeim sem vilja stunda reglubundinn sparnað og
njóta góðrar ávöxtunar - án nokkurs kostnaðar. Áskrift
ber háa vexti og er hentug fyrir þá sem þurfa aðhald við
langtímasparnað. Engar kröfur eru gerðar um lágmarks-
upphæð þannig að reikningseigandi sparar þá upphæð sem
honum hentar.
Dalvík Hrísey
460 1800 466 1700