Norðurslóð - 27.09.2012, Qupperneq 1
36. ÁRGANGUR FlMMTUDAGUR 27. SEPT. 2012 9. TÖLUBLAÐ
Það var mikil sköpun i gangi á barnamenningarliátíð um miðjan mánuðinn. Hér eru ungir tónlistarmenn að
músísera með Armanni Einarssyni tónlistarskólastjóra. Sjá frétt á bls 6. (Mynd: Margrét Vikingsdóttir)
Sparisjóður Svarfdæla
Hætt við söluna
Samkeppnisstofnun gerir athugasemdir við söluferlið
Sem kunnugt er af fréttum tók
málefni Sparisjóðs Svarfdæla
nýja vinkilbeygju þann 6. sept.
sl. þegar samkomulag tókst á
milli Landsbankans og stjórnar
Sparisjóðsins um að falla frá
fyrirhuguöum kaupum bankans
á rekstri og eignum sjóðsins.
Tryggingasjóður Sparisjóðanna
hefur fallist á að leggja sjóðnum til
nýtt stofnfé og veita víkjandi lán
svo Sparisjóðurinn uppfylli skilyrði
Fjármálaeftirlitsins um 16% eigið fé.
Það er því útlit fyrir að Sparisjóður
Svarfdæla verði enn um sinn
rekinn sem sjálfstæður sparisjóður
ef stofnfjáreigendur samþykkja
tillögu um stofnfjáraukninguna.
Fundur með stofnfjáreigendum stóð
yfir þegar blaðið fór í prentun. Fyrir
liggur að Bankasýsla ríkisins sem
fer með 90% stofníjárhlut ríkisins
styður tillöguna.
Stofnfjáreigendur Sparisjóðs
Svarfdæla eru rúmlega 40 talsins
en þar af á ríkið 90% stofnfjár. Eins
og menn rekur minni til samþykkti
Eignasafn Seðlabankans að falla
frá kröfum á hendur ríflega 100
stofnfjárhöfum þegar kauptilboð
Landsbankans var samþykkt í
janúar síðastliðnum. Sú gjörð
stendur óhögguð og viðkomandi
aðilar eru því ekki iengur í tölu
stofnfjárhafa. Aftur á móti standa
yfir dómsmál tæplega 30 aðila úr
hópi stofnfjárhafa sem fjármagnaði
stofnfjáraukningu með öðrum hætti
en með láni frá Saga Capital á
sínum tíma. Þeirra hlutur er um 3%
en Eignasafnið á 7%. Mál þeirra
verður væntanlega tekið fyrir hjá
Hérðadómi Norðurlands á næstu
vikum.
Samkeppnisstofnun gerir
athugasemdir
Akvörðunin um að falla frá
kaupum Landsbankans kemur
í kjölfar athugasemda frá
Samkeppnisstofnun ríkisins 28.
ágúst sl. Stofnunin telur um samruna
sé að ræða sem muni „styrkja
markaðsráðandi stöðu Arion banka,
íslandsbanka og Landsbankans á
bæði Eyjafjarðarsvæðinu og landinu
öllu“. Þá segir í andmælaskjali
Samkeppniseftirlitsins: „Að
mati Samkeppniseftirlitsins voru
gallar á söluferli sparisjóðsins.
Þegar útboði á stofnfé ríkisins
í Sparisjóði Svarfdæla lauk án
árangurs hefði sparisjóðnum a.m.k.
borið að ganga úr skugga um
hvort þeir aðilar sem sýnt höfðu
sparisjóðnum áhuga í nýafstöðnu
en árangurslausu söluferli, hefðu
haft áhuga á kaupum á eignum og
rekstri sjóðsins áður en gengið var
til samninga við Landsbankann."
Hér er m.a. vísað til þess að KEA
hafði lýst yfir áhuga á söluferlinu
og gerði ýmsar athugasemdir við
það þann 21. maí sl.
Samkeppniseftirlitið lagði til
í áðum'efndu andmælaskjali að
viðkomandi fjárfestum verði nú
gefrnn kostur á kaupsamningi á
sömu forsendum og samið var
um við Landsbankann. Einnig að
leitað yrði eftir víkjandi láni frá
Tryggingasjóði sparisjóða til að
uppfylla kröfu FME um 16% eigið
fé. Það hefur nú fengist í gegn sem
áður segir.
Hretið
Búfé borgið
Bændur í Dalvikurbyggð prísa
sig sæla yfir því að fyrri göngur
voru afstaðnar áður en hretið
gekk yfir Norðurland sem
valdið hefur meiri fjárskaða en
dæmi eru um í seinni tíð.
Þrátt fyrir að gríðarlegum snjó
kyngdi niður á ljöllum og fram til
dala svo víða var ekki nokkra beit
að hafa er ekki vitað til að fé hafi
fennt til skaða.
Strax og upp stytti eftir hretið
fór Elvar Antonsson flugmaður í
könnunarleiðangur yfir svæðið
og kom auga á fé víða inni
króað vegna fannfergisins. Á
Holárdal var hópur, að nokkru
grafínn í fönn, einnig á Grýtudal,
Klaufabrekknadal. Víða voru
einstaka kindur í vandræðum og
voru famir margir leiðangrar til
að koma þeim til byggða. Tókst
það allt giftusamlega og er ekki
vitað um að neitt hafi drepist
vegna veðursins. Gunnsteinn
Þorgilsson fjallskilastjóri segir að
fé hafi skilað sér sjálft af fjalli að
undanfömu og sér virðist heimtur
á fé ekki verri nú en vant er,
jafnvel betri.
Hross í svelti
Meira hefur verið haft fyrir
hrossum en sauðfé hér vegna
fannkomunnar. I umræddu
könnunarflugi sáust tveir
aðskildir hrossahópar hátt í
hlíðum í botni Skíðadals. Var
gerður út leiðangur manna á
gönguskíðum sl. fimmtudag og
tókst þeim með harðfylgi að koma
hrossunum niður snarbrattar
hlíðarnar, grafa þeim slóðir yfir
gil og gljúfur og koma þeim á
jörð í niður-afréttinni. Mörg ung
tryppi eru afar illa á sig komin,
grindhomð, nöguð og veikluð
og telja menn ekki ólíklegt að í
Ný staða
Helga Björk Eiríksdóttir,
formaður Sparisjóðs Svarfdæla
segir að nú gefist olnbogarými
til að endurskipuleggja framtíð
Sparisjóðsins en ljóst sé að smærri
fjármálafyrirtæki eigi undir högg að
sækja í núverandi fjármálaumhverfi.
Helga Björk segir að staðan
hafi verið þannig þegar samið
var við Landsbankann um kaupin
í árslok 2011 að undanþága
Fjármálaeftirlitsins um 16% eigið
fé var að renna út um áramót.
Tryggingasjóður sparisjóðanna
hafi þá ekki verið tilbúinn að
veita víkjandi lán og enginn annar
aðili hafði sett fram bindandi
tilboð. Stjóm sparisjóðsins hafí
því samþykkt tilboð með fyrirvara
um samþykki stofnfjárhafa
sem samþykktu einróma tilboð
Landsbankans á fundi sínum undir
lok janúar.
Jafnframt hafi enginn aðili heldur
gefið sig fram til að leggja sjóðnum
lið fram að stofnfjárhafafundinum.
það minnsta annar hópurinn hafi
staðið þama í sjálfheldu frá því
nokkru fyrir hretið, jafnvel frá því
um mánaðamót.
Aðrar göngur fóru fram í
Svarfaðardal um síðustu helgi. í
Sveinsstaðaafrétt notuðu menn
tækifærið og ráku hrossastóðið
yfir í afgirt hólf í Holárkotsafrétt
en áður voru verst leiknu trippin
tekin úr stóðinu og eigendur látnir
sækja þau eftir föngum.
I viðureign við hrossin sem
leituðu jafnan fram en ekki niður
var einu afréttarskáldi á orði.
Svitinn eins og flæði foss,
finn ég verki í skrokknum
ég er að elta ofvirk hross
öll í Framsóknarflokknum.
þh
Annar bætti um betur:
Eins og kettir öll í kross
eða stóð af hænum.
Eru þessi ólmu hross
öll í vinstri grænum?
hjhj
“Stjóm sparisjóðsins þykir í
ljósi þess sérkennilegar þær
athugasemdir sem komið var á
framfæri við Samkeppniseftirlitið
við meðferð málsins og hversu
mikið vægi þeim var gefíð.
Miðað við afstöðu
Samkeppniseftirlitsins verður
fróðlegt að sjá hvemig eftirlitið
mun taka á yfirtöku Arion banka á
Sparisjóði 01afsijarðar.“ bætir hún
við.
„Við emm hins vegar fegin því
að niðurstaða er komin í málið og
þakklát tryggingarsjóðnum að hann
komi til aðstoðar nú,” segir Helga
Björk í samtali við blaðamann.
Hún vildi einnig þakka þann
stuðning sem Landsbankinn sýndi
með því að leggja fram kauptilboð
til að tryggja áframhaldandi rekstur
fjármálafyrirtækis í Dalvíkurbyggð
á sínum tíma. “Nú er staðan önnur
og betri en síðasta sumar og aftur
komið að því að finna sparisjóðnum
rekstrargrundvöll á svæðinu til
framtíðar,” bætir Helga Björk við.
Opnunartími: Mán. - fðs. 10-19 Matvöruverslun - rétt hjá þér
laug. 10-18 sun. 13-17 Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202 IQi