Norðurslóð - 27.09.2012, Page 2

Norðurslóð - 27.09.2012, Page 2
2 - Norðurslóð Norðurslóð Útgefandi: Norðurslóð ehf. kt: 460487-1889 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hjörleifur Hjartarson, Laugasteini, 621 Dalvík, hjhj@simnet.is/nordurslod@simnet.is - sími: 8618884 Dreifing: Sigríður Hafstað, Tjöm. Sími: 466 1555 Umbrot: Hjörleifur Hjartarson Prentvinnsla: Ásprent Stíll ehf., Akureyri Fréttahorn Asíðasta fundi Bæjarráðs Dalvíkurbyggðar var tekið fyrir erindi frá þrýstihópi um gervigrasvöll á Dalvík. Markmið hópsins er að vinna að því að settur verði gervigrasvöllur á æfmgarsvæðið á Dalvík sumarið 2013. Bæjarráð óskaði eftir kostnaðaráætlun og að hópurinn kanni möguleika á styrkjum í samvinnu við íþrótta- og æskulýðsfulltrúa. Jafnframt óskaði ráðið eftir fundi með hópnum ásamt íþrótta og æskulýðsráði. Sóknamefnd Upsasóknar hefur óskað eftir því við bæjarráð að gerður verði göngustígur frá Böggvisbraut á móts við kirkju og niður að Dalbæ. Erindinu var vísað til umhverfisráðs. Viktor Hugi Júlíusson og Helgi Halldórsson hafa óskað eftir að kannaður verði möguleiki á að útbúa hjólabrettaaðstöðu fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar. Bæjarráð vísar ofangreindu til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa til skoðunar. r Afundinum var einnig tekið fyrir erindi frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu er varðar auglýsingu umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins með umsóknarfresti til og með 28. september 2012. Bæjarráð fól bæjarstjóra að sækja um byggðakvóta. Samkvæmt bréfi frá Jöfnunar- sjóði sveitarfélaga, þar sem fram kemur uppgjör á framlagi til Dalvikurbyggðar vegna lækkaðra fasteignaskattstekna 2012. Að teknu tilliti til þess fjármagns sem nú liggur fyrir til ráðstöfunar er úthlutað framlag til Dalvíkurbyggðar 2012 kr. 54.809.062. Samkvæmt fjárhagsáætlun 2012 er gert ráð fyrir kr. 56.103.000. Munurinn er um 1.3 milljónir. Næstkomandi sunnudag, 30. sept.kl 16:00 verða tónleikar með Kammerkór Norðurlands í Bergi í tilefni þess að 110 ár voru liðin frá fæðingu Halldórs Laxness þann 23. apríl sl. Á efnisskránni verða þekkt kórlög við ljóð Laxness og einnig hefur kórinn fengið til liðs við sig nokkur tónskáld sem hafa samið ný lög fyrir þetta tilefni. Flutt verða lög eftir; Jóhann G. Jóhannsson, Báru Grímsdóttur, Jón Ásgeirsson, Hróðmar Inga Sigurbjömsson, Jón Nordal, Heimi Sindrason og Hauk Tómasson. Stjómandi Kammerkórs Norðurlands er Guðmundur Oli Gunnarsson. Nýr rafknúinn hverfisteypuofn og ný húsakynni verða formlega tekin í notkun hjá Promens á Dalvík þann 11. október n.k. Daginn eftir, þann 12. október verður opið hús hjá fyrirtækinu og húllumhæ fyrir bæjarbúa. Dagskrá dagsins fékkst ekki upp gefin þegar blaðið leitaði eftir henni en þó mun það hafa lekið út að hljómsveitin Teigarbandið komi þar eitthvað að málum. Sjálfboðaliðar á Húsabakka Bjóða frí tungumálanámskeið Judith Imgrund frá Þýskalandi, Joaquim (Quim) Gatell Pach frá Katalóníu á Spáni og Gema García-Luján Ávila frá Mexíkó heita þrír sjálfboðaliðar sem stödd eru á Húsabakka þessa dagana. Þau sjá þar um ýmis störf í kring um gistinguna og félagsheimilið en auk þess hafa þau unnið við að þýða sýningartexta fuglasýningarinnar á Húsabakka á spænsku, frönsku, þýsku, og katalónsku. (ítalinn Valerio sem nú er farinn, snaraði textanum á ítölsku). Þessa dagana bjóða þremenningamir upp á kennslu í spænsku, katalónsku og þýsku fyrir almenning hér á svæðinu. Ekki er annað að sjá en áhugi sé nægur. Fjórtán nemendur hafa meldað sig og hófst kennslan í síðustu viku. Kennslustundimar eru frjálslegar að þeirra sögn og enn er ekki of seint að skrá sig hafi menn áhuga á að læra undirstöðuatriði þessara tungumála. Aðspurð um hvenær þau hyggist snúa aftur heim, yppa þau öxlum og segjast hafa hug á vetursetu. Þau langar að upplifa íslenska veturinn og hafa raunar gert það fyrr en ráð var fyrir gert. Gema og Quim em par og reka saman litla bókaútgáfu sem enn sem komið er hefúr gefið út tvær bækur. Þriðja bókin er í vinnslu og sú bók leiddi þau til Islands. Það er Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason. I frístundum sínum keppast skötuhjúin við að þýða Draumalandið á spænsku og fmnst ekki annað tækt en að dvelja hér á landi á meðan til að kynnast sem best landi og þjóð. Judith hefur lengi starfað sem leiðsögumaður bæði í heimaborg sinni Gelsenkirchen og nágrannabyggðum í Ruhr-héraðinu og einnig í öðrum löndum. Frá 2009 hefur hún unnið mest sem leiðsögumaður með þýskum gönguhópum á Islandi á sumrin og kann því svolítið fyrir sér í íslensku. Síðustu vikurnar segist hún þó hafa lært meira í spænsku en íslensku þökk sé Gemu og Quim. Quim, Gema og Judith Þau tvö koma sitt úr hvorri áttinni. Hún frá litlum bæ, Torreón, Coahuila í Norður-Mexíkó og hann frá útborg Barcelona á Spáni. Hún flutti til Barcelona fyrirum 10 árum og þar bar fundum þeirra saman. Lengst af hafa þau verið á faraldsfæti um heiminn í sitthvoru lagi. Hún er háskólakennari og hefúr kennt ijölmenningarleg samskipti við háskóla víðs vegar um Evrópu og Ameríku og þess á milli unnið ýmis störf. Hún talar ensku, frönsku og spænsku án vandræða og auk þess hrafl í ítölsku. Hann hefur verið enn víðar og starfað sem rafvirki, pípulagningamaður og einnig töluvert við uppsetningu á sólar- rafhlöðum. Um skeið rak hann lítið fýrirtæki á þeim vettvangi með þrem félögum en hætti því og snéri sér að hjálparstörfum fyrir samtökin „Læknar án landamæra“. á þeirra vegum ferðaðist hann víða um heim. Eitt sinn fór hann á reiðhjóli frá Barcelona til Skotlands og lagði ýmislegt fyrir sig á leiðinni. Hann vann sem rafvirki í París, við byggingu stráhúsa á Bretaníuskaga og sem barþjónn í London svo eitthvað sé nefnt. Þar var hann raunar rændur öllu nema nærfötunum en það var ekkert stórmál. Kominn aftur til Barcelona ruglaði hann og Gema saman fátæklegum reytum sínum, settu á stofn bókaútgáfú og eru nú komin í Svarfaðardal til að vinna að þessu hugðarefni sínu. “Við erum bæði áhugasöm um að ferðast og með hjálp netsins er hægt að reka bókaútgáfu með þessum hætti. Við verðum kannski ekki rík en getum fengist við það sem hugur okkar stefnir til“ segir Quim. Draumalandið verður bókin sem kemur útgáfunni á flug ef allt fer samkvæmt áætlun. Þau gera sér háar væntingar um að henni verði vel tekið á Spáni. „Evrópubúar og þá kannski sérstaklega Spánverjar horfa mikið til íslands þessa dagana. Á Spáni segjamenn, - íslendingar kváðuupp dóm yfír sínum stjómmálamönnum. Af hverju gemm við það ekki? Það er stemmning fyrir Islandi og íslenskum stjómmálaviðhorfum á Spáni sem við vonum að hjálpi til með að koma þessari bók á markað þar. Þess utan er bókin svo frábær að hún á erindi við alla” segir Gema. Öll kunna þau vel við sig í Svarfaðardal, finnst fólkið vingjamlegt og landið fagurt, og vilja dvelja hér sem lengst. „Fjöllin, snjórinn og litimir í landslaginu em óviðjafnanlegir. Eg kem frá rykugum bæ í Mexíkó þar sem hitinn fer yfir 50 gráður á sumrin. Hér er kalt og þægilegt. En að vísu - þegar rigndi samfleytt í tvær vikur var ég næstum búin að tapa mér “ segir Gema. Upplýsingar um námskeið fást í síma 857 96 94 (Judith). Enn lokað hjá Norðurströnd „Það er engin launung að það er þungur reksturinn þessa dagana“ segir Guðmundur St. Jónsson framkvæmdastjóri Norðurstrandar ehf en húsið hefur verið lokað frá því í sumar vegna hráefnisskorts. „Við höfum verið í fjárhagslegri endurskipulagningu með bankanum og jafnframt að leita nýrra leiða í vinnslunni. Við héldum fund með starfsfólki í vikunni þar sem við gerðum því grein fyrir stöðunni en við gerum okkur vonir um að geta byrjað aftur vinnslu, jafnvel í næstu viku.“ Guðmundur segir vandann sprottinn af kreppunni hérheima að viðbættri Evrukreppunni núna. Fyrirtækið situr uppi með lán sem tvöfölduðust í efnahagshruninu og hvorki hafa fengist leiðrétt né afskrifuð. „Menn tala gjarnan um að þeim sé borgið sem hafa tekjur í erlendum gjaldeyri en gleyma því þá um leið að allur kostnaður er líka algerlega háður genginu, allt nema launakostnaðurinn. Þar við bætist erfið staða á mörkuðunu í Evrópu sem mjög er farin að segja til sín núna með minnkandi eftirspurn." Þrjátíu og fimm manns starfa hjá Norðurströnd. Fyrirtækið hefur fyrst og fremst fengist við vinnslu á steinbít en lítið selst af honum þessa dagana. Væntanlega verður því áherslan á þorskvinnslu þegar húsið opnar aftur. Arskógarskóli Formleg vígsla Föstudaginn 7. september var nýr leik- og grunnskóli í Dalvíkurbyggð, Árskógarskóli, settur formlega í fyrsta sinn. Skólinn varð til við sameiningu leikskólans Leikbæjar og Árskógardcildar Grunnskóla Dalvíkurbyggðar og heitir nú Árskógarskóli. Skólinn er fyrir nemendur á aldrinum 9 mánaða til 12 ára. Skólinn er Grænfánaskóli en þeim áfanga höfðu fyrri skólastofnanir þegar náð. Einnig starfar skólinn samkvæmt Uppbyggingarstefnunni. Umhverfi skólans býður upp á fjölbreytta náttúru og lögð er áhersla á að tengja nám og leik við þessa paradís. Skólinn gefur sig því út fyrir að vera útiskóli þar sem mörgum markmiðum má ná utan dyra. Áhersla er lögð á skapandi verkefni í list- og verkgreinum og að upplýsingaöflun og úrvinnsla sé samofín leik og námi. Skólinn leggur áherslu á íjölbreyttar kennsluaðferðir og að leikurinn sé lykilþáttur í námi. Áhersla er lögð á fjölbreytta námshópa þar sem einstaklings- og hópamiðað nám er miðað við þroska, áhuga og getu hvers og eins. Þannig gefast tækifæri til að samþætta markmið skólagöngu nemenda frá níu mánaða til tólf ára. Árskógarskóli á að vera notalegur og uppbyggjandi staður þar sem öllum líður vel, vitsmunalega örvandi og umhverfið þannig að hver og einn einstaklingur fái tækifæri, óháð því hver hann er og hvaðan hann kemur, til þess að gera sem mest úr þeim hæfileikum sem hann býr yfir. Fréttatilkynnig

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.