Norðurslóð - 27.09.2012, Side 5
5 - Norðurslóð
Barnamenningarhátíð í annað sinn
Barnamenningarhátíð í
Dalvíkurbyggð var haldin
dagana 13.-15. september en
þetta er í annað sinn sem slík
hátíð er haldin í sveitarfélaginu.
Hátíðin er samstarfsverkefni
Bergs menningarhúss og
forsvarsmanna fræðslu, - og
íþrótta- og æskulýðsmála í
sveitarfélaginu.
Líkt og í fyrra var hátíðin
byggð upp á vinnusmiðjum
fyrir böm á öllum aldri.
Hátíðin hófst á fimmtudegi
með hljómsveitarsmiðju í
tónlistarskólanum og spunadansi í
Bergi. A föstudeginum var boðið
upp á útilistaverkasmiðju upp í
Höfða og á laugardeginum voru
smiðjur í jazz ballett og ijölskyldu
yoga í félagsmiðstöðinni og
myndasögugerð og logosmíði í
Bergi. Einnig opnaði bókasafnið
nýtt barna-og unglingahom á
hátiðinni. Hápunktinum var svo
náð á laugardeginum en þá hélt
hljómsveitin Pollapönk tónleika í
Bergi.
Hátíðin var vel sótt og bömin
ánægð. Tónleikar Pollapönk slógu
í gegn en þangað komu liðlega 120
manns, foreldrar og böm, til að taka
þátt í gleðinni.
Bamamenningarhátíðin verður
að sjálfsögðu haldin aftur að ári og
spennandi að sjá hvað verður í boði
þá. (Fréttatilkynning)
Pollapönk í Bergi
Útilistaverk í smíöum
Sparisjóður Svarfdæla hefur verið starfræktur og þjónaó
sínum viðskiptavinum í 127 ár samfleytt.
S^SPARISJOÐURINN
Dalvík
Við leggjum áherslu á aö veita persónulega þjónustu.
Bjóðum viðskiptavini okkar hjartanlega velkomna
og leitumst við að aöstoóa eftir bestu getu.
Tvö ný
Upplýsingaskilti
Fyrir síðsta fundi
UmhverfisráðsDalvikurbyggðar
sem haldinn var sl þriðjudag
lá fyrir beiðni frá Skiltahópi
Dalvíkurbyggðar um að fá að
reisa tvö upplýsingaskilti í
bænum.
Annað á að standa við
gatnamót Skíðabrautar og
Mímisvegs og hitt við Upsi.
Meðfylgjandi voru teikningar
af umræddum skiltum.
Umhverfisráð gerði ekki
athugasemd við staðsetningu
skiltunum en bendir jafnframt
á að nauðsynlegt er að hafa
samráð við íbúa.
Bakhjarladálkurinn
Þessir styrkja útgáfu
Norðurslóðar
Dalvíkurbyggð
Vélvirki ehf.
Bessi markahæstur
Bessi Víðisson, 22ja ára
Dalvíkingur, gerði sér lítið fyrir
og skoraði fimm mörk í lokaleik
leiktíðarinnar gegn KFR sl.
laugardag. Leikurinn fór fram á
Dalvíkurvelli og buðu leikmenn
Dalvíkur Reynis þrjú hundruð
áhorfendum upp á markaregn
með 9-0 sigri. Aðrir sem skoruðu
voru Viktor Már Jónasson, Ulfar
Valsson, Isak Einarsson og Gunnar
Már Magnússon.
Eftir leikinn er Bessi markahæsti
leikmaður 2. deildar ásamt Þórði
Birgissyni, í KF. Báðir hafa skorað
18 mörk í sumar, Bessi í 19
leikjum en Þórður í 20.
Dalvík Reynir siglir áfram
lygnan sjó í 2. deildinni. Liðið 46 stig og í öðru sæti grannar okkar
endaði í 6 sæti deildarinnar með 36 í KF með 43 stig.
stig. I efsta sæti eru Völsungar með
Nýr opnunartími á bóka-
og héraðsskjalasafni
Dalvíkurbyggöar
Frá og með 1. október verður
opnunartími bókasafnsins:
Mánudaga - föstudaga - kl. 10:00-17:00
Laugardaga - kl. 14:00-17:00
Opnunartími héraðsskjalasafnsins:
Þriðjudaga - miðvikudaga - fimmtudaga
kl. 13:00-15:00
Vinnustofa með
Ijósmyndir í Bergi
Héraðsskjalasafnið mun í vetur standa fyrir
vinnustofu um skráningu Ijósmynda í samvinnu
við Félag eldri borgara og annarra áhugasamra í
Dalvíkurbyggð.
Vinnustofan verður í Bergi alla þriðjudaqsmorqna
kl. 10:00- 12:00.
Allt áhugafólk er velkomið.
Frekari upplýsingar gefa:
Anna Baldvina s. 460-4935 annab@dalvikurbyggd.is
og Laufey í s. 460-4930 laufey@dalvikurbyggd.is
»▲