Norðurslóð - 24.01.2013, Side 2
2 - Norðurslóð
Norðurslóð
Útgefandi: Norðurslóð ehf. kt: 460487-1889
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hjörleifur Hjartarson, Laugasteini,
621 Dalvík, hjhj@simnet.is / nordurslod@simnet.is - sími: 8618884
Dreifing: Sigríður Hafstað, Tjöm. Sími: 466 1555
Umbrot: Hjörleifur Hjartarson
Prentvinnsla: Ásprent Stíll ehf., Akureyri
fmgar em hafnar hjá
leikfélagi Dalvíkur á
fjölskyldusöngleiknum Eyma-
langar og annað fólk eftir systumar
Iðunni og Kristínu Steinsdætur.
Tónlistin í verkinu er eftir Ragnhildi
Gísladóttur. Að sögn Kristjáns
Guðmundssonar formanns LD
mættu 40 manns á fyrsta samlestur
svo enginn vandi reyndist að
manna verkið. Alls eru 15 leikarar
í sýningunni og annað eins af
baksviðsfólki. Leikstjóri er Saga
Jónsdóttir. Kristján segir að verkið
sé sérlega skemmtilegt og tónlist
Ragnhildar frábær. Fmmsýning er
áætluð snemma í mars.
Fyrstu tónleikar tónleika-
raðarinnar Klassík í Bergi 2012
- 2013 fóru fram laugardaginn
12. janúar s.l. Þar léku Sæunn
Þorsteinsdóttir sellóleikari og
Sam Armstrong píanóleikari við
góðar undirtektir. Næstu tónleikar
í seríunni fara fram 16. febrúar
en þá mæta til leiks Bjami Thor
Kristinsson bassasöngvari og
Ástríður Alda Sigurðardóttir
píanóleikari. Petér Maté
píanóleikari mun síðan slá botninn
í seríuna þann 16. mars.
Jólabjór Kaldavarþriðjisöluhæsti
jólabjórinn á íslandi um þessi
jól. Alls seldust 65.074 lítrar af
Jólakalda sem er 10% söluaukning
frá því í fyrra og ryður Jólagulli úr
þriðja sætinu. I öðru sæti var Víking
jólabjór með 141.124 lítra sölu og í
fyrsta sæti Tuborg Christmas Bier
sem landsmenn svelgdu 205.329
lítra af yfir hátíðimar.
ú nýbreytni varð í
almenningssamgöngum
um áramótin að Strætó bs tók
við sérleiðum á Norður -og
Norðausturlandi og þar með talið
leiðinni Akureyri-Sigluljörður.
Um leið tók gildi ný og breytt
akstursáætlun sem valdið hefur
nokkurri óánægju, einkum
skólafólks á Dalvík sem sækir
daglega skóla á Akureyri og í
Ólafsfirði. Einkum voru gerðar
athugasemdir við það að strætó til
Ólafsijarðar fer ekki fyrr en kl 8:47
frá Dalvík sem þýðir að nemendur
í Menntaskóla Tröllaskaga koma í
skólann eftir fyrsta tíma ef þeir taka
strætó. Sömuleiðis var brottför frá
Akureyri kl: 15:30 en ekki 16:30
eins og fyrir áramót þ.e. áður en
skóla- og vinnudegi er almennt
lokið og síðasti strætó ekki fyrr en
eftir kvöldmat kl 19:22. Alls fer
strætó þrjár ferðir (Sigl. -Ak./Ak,-
Sigl.) á virkum dögum og eina á
sunnudögum. Vegna kvartana hefúr
Strætó bs nú breytt áætlun þannig
að miðdagsferðin frá Akureyri er
kl 16:30 en ennþá mæta dalvískir
nemendur í Ólafsfirði of seint á
morgnana efþeir ætla að taka strætó.
Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri
hvetur notendur Strætó til að senda
athugasemdir til Strætó (á straeto.
is) eða Eyþings (eything@eything.
is) sem hefur á að skipa nefnd um
skipulag almenningssamgangna á
svæðinu.
Iþróttamaður Dalvíkurbyggðar
2012 er Jakob Helgi Bjamason
skíðamaður í Skíðafélagi Dalvíkur.
Jakob Helgi hefur lagt mikið á sig
til að ná langt í skíðaíþróttinni og
er hann í fremstu röð í heiminum
í sínum aldursflokki. Árið 2012
varð Jakob Helgi tvöfaldur
íslandsmeistari í karlaflokki
þá 16 ára, hann var einnig
bikarmeistari SKI í 15-16 ára
flokki og unglingameistari í svigi,
alpatvíkeppni og samhliðasvigi.
ý lýðræðisstefna Dalvíkur-
byggðar var samþykkt á
fundi bæjarstjómar 15. jan sl.
Lýðræðisstefnan varðar upplýs-
ingagjöf og samráð í samræmi við
ný sveitarstjómarlög frá 2011.,,
Stefnan miðar að því að upplýsa íbúa
og virkja til þátttöku í málefnum
og stefnumótun sveitarfélagsins
og tryggja þannig aukna þátttöku
þeirra í ákvarðanatöku og mótun
nærumhverfis síns. Þannig verði
stuðlað að virku íbúalýðræði
sem leiði af sér þekkingu og sátt
um stefnumótun og ákvarðanir
sveitarfélagsins“ segir í formála
að stefnunni. Með bættri miðlun
upplýsinga er ekki síst horft til
öflugrar heimasíðu, íbúafunda
og kynningarbréfa. Erlendum
ibúum sveitarfélagsins verði
kynnt þjónusta og stjómkerfi
sveitarfélagsins. Stefnan kveður
einnig á um aukið samráð
m.a. með íbúakosningum.
10% kosningabærra manna
í sveitarfélaginu geta kallað
eftir íbúafundi og 25% minnst
geta kallað eftir almennri
atkvæðagreiðslu. Starfrækt skulu
unglingaráð og eldri borgara
ráð og kjömum bæjarfulltrúum
skal gefinn kostur á að sækja
námskeið í upphafi kjörtímabils
þar sem farið verði yfir leiðir til
að stýra uppbyggjandi samráði
við íbúa. Ymsar fleiri nýjungar er
að finna í lýðræðisstefnunni sem
væntanlega birtist á heimasíðu
Dalvíkurbyggðar innan tíðar í anda
eigin stefnumörkunar.
Klifur er íþrótt fyrir alla
segir Oliver Hilmarsson í Grjótglímufélaginu
Klifuraðstaða Grjótglímufélagsins
sem opnaði í Víkurröst á dögunum
er með þeim betri á landinu að
sögn Ólivers Hilmarssonar klifrara
og félagsmanns. Óliver segir
klifuríþróttina alls ekkert jaðarsport
fyrir fámennan hóp fjallamanna.
Allir geti stundað klifur, mjóir
og feitir, sterkir og aumir, ungir
og gamlir. Klifurveggimir í
Víkurröst eru margvíslegir og
hægt að velja um ótal miserfiðar
klifurleiðir. Lofthræddir geta líka
tekið þátt þvi gólfið þar sem áður
voru áhorfendabekkir hallar að
veggjunum og dýnur eru alls staðar
undir.
Aðstaðan er opin á sama tíma og
félagsmiðstöðin en þess utan verða
félagsmenn Grjótglímufélagsins
með opið á fimmdudögum frá
16:30-18.
Til stendur að halda klifurnámskeið
á næstunni að sögn Ólivers og
vonast menn til að á Dalvík geti
orðið til þéttur hópur klifrara
sem æfir reglulega. „Menn þurfa
að æfa svona tvisvar þrisvar í
viku til að komast í vemlega
gott form“ Reglulega eru haldin
klifurmót meðal íslenskra klifrara
og er stefnt að því að einhver hluti
Islandsmótsins getir farið hér fram
áður en langt um líður segir Óliver
Máni Dalstein Ingimarsson korninn upp á lagið
Helga Björt Möller leggur ungum klifurmúsum lifsreglurnar
Arctic Sea Tours
Helmings aukning hlutafj ár
Þann 11. jan sl var haldinn
kynningarfundur í Bergi á
vegum Arctic Sea Tours og Arctic
Fresh Food á Dalvík. Markmið
fundarins var að ieita eftir auknu
hlutafé í fyrirtækin.
Ágæt mæting var að sögn Freys
Antonssonar forstjóra og lýstu um
20 aðilar áhuga sínum á að leggja
fé til fyrirtækisins. Freyr stefnir að
því að auka hlutaféð um helming
eða sem svarar um 25 milljónum og
gerir ráð fyrir að það náist jafnskjótt
og ársreikningar hafa verið kláraðir
nú um mánaðamótin.
Mikil aukning hefur verið í
hvalaskoðuninni hér undanfarin
ár og hefur Arctic sea tours aukið
farþegafjölda sinn um 100% á milli
ára síðan 2009. Freyr segir að af
þeim 174.000 farþegum sem fara
í hvalaskoðun á ári á Islandi fari
aðeins um 7 þúsund í Eyjafirði sem
er þó eitt besta hvalaskoðunarsvæði
Hádegisfyrirlestur
í Bergi
Fimmtudaginn 7. febrúar
flytur Ragnar Stefánsson
jarðskjálftafræðingur
hádegisfyrirlestur í
Bergi.
Efni fyrirlestursins er:
Jarðskjálftar fyrir
Norðurlandi
Fyrirlesturinn hefst kl.
12:15
Allir velkomnir og enginn
aðgangseyrir
Bókasafn
Dalvíkurbyggðar
heims að hans mati. Arctic Sea
Tours gerir út einn eikarbát en
miðað við bókanir fyrir næsta
sumar segir Freyr fulla ástæðu til
að hafa augun opin fyrir öðrum bát,
helst eikarbát - að sjálfsögðu.
Arctic Fresh Food er annað
fyrirtæki sem Freyr veitir forstöðu
og lýtur það að framleiðslu og
markaðssetningu heilnæmrar
matvöru á erlendan markað. Allar
vörur fyrirtækisins eiga að vera
vottaðar af þriðja aðila. Aðföng
þurfa að vera úr sjálfbærum stofni
eðalífræntvottuðoghefurFreyrm.a.
verið í samstarfi við O Jakobsson á
Dalvík um hráefni. Hér er um að
ræða dýra og vottaða sérvöru fyrir
sérverslanir á þessu sviði. Vörumar
verði pakkaðar í umhverfisvænar
neytendapakkningar. Varan er í
bakka sem neytandinn getur eldað
vömna í og eftir það sett bakkann
í jarðgerðatunnu eða pappa í
endurvinnslu.
Þorrablót Svarfdæla 2013
Þorrablót Svarfdælinga - búandi og brottfluttra verður
haldið á Rimum laugardaginn 9. febrúar næstkomandi.
Borðhald hefst kl. 20:30 en húsið opnar kl. 19:30.
Miðaverð er kr. 2.500,- og þarfað panta miða fyrir kl.12:00 á
hádegi sunnudaginn 3. febrúar.
Miðapantanireru hjá eftirtöldum:
Sveinn og Þóra S: 466-1363/896- 3775
JónogLilla S: 466-1526/611-5985
Miðana þarf svo að sækja að Rimum fimmtudagskvöldið
7. febrúar á milli 20:00 - 22:00.
Greiða þarf með reiðufé því enginn posi verður á staðnum.
Þorrablótsnefndin ©
20% afsláttur er af gistingu á Húsabakka