Norðurslóð - 24.10.2013, Side 1
Svarfdælsk byggð & bær
37. ÁRGANGUR FlMMTUDAGUR 24. OKTÓBER. 2013
10.TÖLUBLAÐ
Morgunbirtan getur verið mögnuð um þetta leyti árs þegar sól roðar ský og skuggar hopa hœgtfyrir geis/um hennar.
Þessa dulúðugu inyitd af Dalvíkurbœ tók Haukur Snorrason að morgni 12. okt. s.ll
Tréverk byggir á Deplum
Alþjóðlegur jjárfestingarisi reisir lúxusdvalarstað
Tréverk á Dalvík hefur mörg járn
í eldinum í vetrarbyrjun. Að sögn
Björns Friðþjófssonar forstjóra
er mestur kraftur núna settur í
að ljúka utanhússvinnu við 10
íbúðir, tveggja hæða raðhús við
Sómatún á Akureyri.
I vetur verður unnið innan dyra
og fyrstu íbúðimar verða afhentar í
vor. A Dalvík er Tréverk í ýmsum
smærri verkefnum s.s. lokafrágangi
á þaki Ungó og lokafrágangi á
fjósbyggingu á Hóli í Svarfaðardal.
Deplar Farm
Þá stendur til að hefja innan tíðar
framkvæmdir á ferðaþjónustuhúsi
að Deplum í Fljótum. Tréverk hefur
samið við fyrirtækið Fljótabakki
ehf, sem Orri Vigfússon er í forsvari
fyrir, um fyrsta áfanga viðamikillar
uppbyggingar ferðaþjónustuhúsa
þar. I þessum fyrsta áfanga verður
annars vegar byggt 230 m2hús með
eldhúsi, veitingasal og setustofú
og hins vegar ráðist í lagfæringar
og breytingar á íbúðarhúsinu að
Deplum. Að sögn Björns stóð til að
byrja nú í vikunni en veðrið setur
líklega strik í reikninginn. Stefnt
er að því að vinna eins mikið og
hægt er í vetur en um verkalok eru
ekki ákvæði í samningnum að sögn
Bjöms.
„Deplar í Fljótum em einn ellefu
lúxus „áfangastaða“ sem fyrirtækið
The Elleven Experience er að byggja
upp á völdum stöðum i heiminum
fyrir vel stæða ferðamenn. A
heimasíðu félagsins er að frnna
svohljóðandi lýsingu á verkefninu:
A noróvestur Islandi em heimkynni einnar
sérstæðnstu eignarinnar í Elleven safninu.
Nú er verið að breyta henni úr sauðjjárbúi
í lúxusdvalarstað. „Eleven Deplar Fann"
stendur í afskekktum dal umluktum 3000
feta háum jjallstindum. Gestir upplifa
stórbrotna þyrluskíðatúra, Jluguveiði á
Atlantshafslaxi og heimskautableikju.
Aœtlað er að Deplar Farm opni sumarið
2014. “
Samkvæmt grein á heimasíðu
Financial Times um verkefnið er
áætlað að nóttin að Deplum kosti
11-15 þúsund dollara (1.3 -1.8 millj
íslenskar krónur)
Byggðakvóti Dalvíkur minnkar
Atvinnuvegaráðuneytið hefur
sent frá sér tilkynningu um
byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið
2013/2014.
Dalvík fær samkvæmt henni 99
þorskígildistonn, Hauganes fær 15
tonn og Arskógssandur 300 tonn.
Hauganes og Arskógssandur hafa
verið með sama tonnafjölda um
árabil en sveiflur hafa verið á kvóta
Dalvíkur. Á síðasta fískveiðiári
fékk Dalvík 300 þorskígildistonn en
ekkert á fiskveiðiárinu 2011/2012.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Dalvíkurbyggð er reglugerð
um úthlutun byggðakvóta til
fiskiskipa efnislega óbreytt frá
fyrra ári. Ef sveitarfélög vilja
setja sérstök skilyrði umfram
ákvæði reglugerðarinnar þurfa
þau að skila rökstuddum
tillögum til ráðuneytisins eigi
síðar en 1. nóvember nk. Á
næstunni mun Atvinnumálanefnd
Dalvíkurbyggðar því fara yfir
reglugerðarákvæðin og gera þá
mögulega tillögur um breytingar til
sveitarstjómar.
Nökkvi í IJ-15
Stefnir á ólympíuleika œskunnar á næsta ári
Nökkvi Þeyr Þórisson, fjórtán
ára Dalvíkingur, var á dögunum
valinn í 18 manna landsliðshóp
karla undir fímmtán ára (U-15) í
knattspyrnu.
Fyrsta verkefni landsliðsins
var að taka þátt í forkeppni
Olympíumóts æskunnar í Genf
í Sviss nú um helgina 17.-22.
október. Liðið lék þar tvo leiki gegn
Finnlandi og Moldavíu, sigraði
báða leikina og tryggði sér með því
sæti á Olympíuleikunum sem fram
fara í Nanjing í Kína í ágúst á næsta
ári.
Að sögn Hugrúnar Felixdóttur,
móður Nökkva er þetta frábær
viðurkenning og tækifæri
fyrir hann. Þjálfarinn muni í
framhaldinu vísast skoða stærri
hóp knattspymustráka svo ekki sé
sjálfgefið að hann verði með í Kína.
„Nú þarf hann bara að sanna
sig áfram. Þorri Mar tvíburabróðir
hans hefur líka mikinn hug á því
að komast í landsliðshópinn svo
það verður ekki slegið slöku við á
heimilinu ef ég þekki þá rétt“ segir
Hugrún.
Þess má geta að þeir
tvíburabræður fengu fyrr í sumar
boð um að æfa með unglingaliði
FC í Kaupmannahöfn og dvöldu
þar við æfíngar í byrjun ágúst sl.
Gráhegrinn mættur
Gráhegrl hefur sést að
undanförnu híma hér og þar í
bleytunni í Friðlandi Svarfdæla.
Gráhegrar hafa sést hér mörg
undanfarin ár um þetta leyti.
Þeir em flækingar á Islandi og
hafa aldrei orpið hér á landi svo
vitað sé. Aftur á móti hanga
þeir stundum hér allan veturinn,
einkum á Suðurlandi, og fara svo
aftur burt þegar vorar. Gráhegrinn
hefur sést spígspora í leirunum
í Svarfaðardalsá sunnan við
Hrísatjömina. Myndin er að vísu
ekki af honum heldur fengin að
láni af netinu
Atak í nýtingu upplýsingatœkni í skólunum
Allir fá spj aldtölvu
Allir nemendur 7.
bekkur Dalvíkurskóla
og Árskógarskóla
munu í næsta mánuði
fá spjaldtölvu til
afnota í skólanum.
Þá munu allir
leikskólar sveitar-
félagsins eignast spjaldtölvur á
næstu vikum sem nýttar verða á
ýmsan hátt. Stefnt er á að fleiri
spjaldtölvur fylgi í kjölfarið á
næstu missemm og standa vonir
til þess að innan fárra ára muni
allir nemendur skólanna geta nýtt
sér spjaldtölvutækni við nám og
leik.
Þá hafa skjávarpar verið settir
upp í heimastofúm allra bekkja
Dalvíkurskóla. Starfsfólk skólans
mun í kjölfarið í auknum mæli
sækja sér menntun og þjálfun í
tæknivæddum kennsluháttum.
Bjöm Gunnlaugsson
skólastjóri segir að þessi
tölvuvæðing skólanna sé liður í
átaki sem byggðaráð
samþykkti á dögunum
en hún endurspegli
vissulega hans
persónulega áhuga og
bakgmnn í skólastarfí.
Bjöm er sem sagt
sérstakur áhugamaður
um nýtingu upplýsingatækni á
sviði menntunar og hefur sett þau
mál á oddinn eftir að hann tók við
stjóm skólans í haust. Hann segir
að þróun upplýsingatækni verði
hraðari með hverju árinu sem líður
og að íslenskt skólakerfi þurfi að
nýta sér möguleika hennar mun
betur en gert er. Víða um land séu
nemendur og kennarar í auknum
mæli að nýta sér tölvur, netið og
fartækni við nám og kennslu.
Ljóst er að á vinnumarkaðnum
er vaxandi eftirspum eftir
tæknimenntuðu fólki og þeim
störfum fjölgar sem hægt er að
vinna óháð staðsetningu með
aðstoð tækninnar.
Opnunartími: Mðn. - fös. 10-19 Matvöruverslun - rétt hjá þér
laug. 10-18 sun. 13-17 Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202 Iöj