Norðurslóð - 24.10.2013, Blaðsíða 6

Norðurslóð - 24.10.2013, Blaðsíða 6
Tímamót Þann 24. október varð 70 ára, Jóna Garðarsdóttir Skógarhólum 29, Dalvík. Þann 27. október n.k. verður 85 ára, Gísli Þorleifsson, Hofsá. Svarfaðardal. Þann 28. október n.k. verður 70 ára, Guðrún Skarphéðinsdóttir Hafnarbraut 16, Dalvík. Þann 30. október n.k. verður 80 ára, Erna Hallgrímsdóttir, Dalbæ Dalvík. Þann 29. október n.k. verður 75 ára, Fjóla Guðmundsdóttir Laugabrekku Svarfaðardal. Þann 14. október s.l. varð 75 ára, Hörn Harðardóttir Öldugðtu 11, Dalvík. Þann 15. október s.l. varð 80 ára, Jón Þórhallsson Karlsbraut 18, Dalvík. Þann 7. október s.l. varð 80 ára, Hildur Hansen Bárugötu 10, Dalvík. Skírnir Þann 11. ágúst sl. var skírður í Urðarkirkju, Bóas AtlL Foreldrar hans eru Karl Ingi Atlason og Erla Hrönn Sigurðardóttir, Hóli Svarfaðardal. Séra Einar Sigurbjömsson skírði. Þann 4. ágúst var skírð í Mímisbrunni Karítas Líf. Foreldrar hennar em: Anna Bima Jónsdóttir og Gunnlaugur Svansson Böggvisbraut 5 Dalvík Þann 9. ágúst var skírður í Tjamarkirkju Róbert Ari. Foreldrar hans em: Sigrún Bjötg Aradóttir og Einar Ingi Þorsteinsson til heimilis að Þverholti 22 Reykjavík Þann ó.október var skírður í Dalvíkurkirkju Adríel Ingi. Foreldrar hans em Katrin Sif Amadóttir og Reynir Þór Jónasson til heimilis að Goðabraut 18 Dalvík Þann 12 október var skítður í Dalvíkurkirkju Hermann Arni. Foreldrar hans em Anna Kristín Leifsdóttir og Hilmar Henning Heimisson til heimilis að Dalbraut 12 Dalvík. Þann 12.október var skírð að Sæbóli, Kristrún Lena. Foreldrar hennar em Guðlaug Ragna Magnúsdóttir og Kristján Bitgisson til heimilis að Karlsrauðatoigi 26 Dalvík Þann 18.október var skírður í Dalvíkurkirkju Stefán Haugen. Foreldrar hans em Agnar Snorri Stefánsson og Anne Stine Haugen til heimilis í Silkebotg Danmörku. Þann 19.október var skítð í Dalvíkurkirkju Freyja Sól. Foreldrar hennarem Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir og Jón Freyr Halldórsson til heimilis að Karlsbraut 15 Dalvík. Afmæli Andlát Húsabakki í FB Húsabakki í Svarfaðardal er kominníhóp 180 bændagististaða á vegum Ferðaþjónustu bænda. Félagið Húsabakki ehf sem tók við rekstri Húsabakka í fyrra sótti þá um aðild að samtökunum en ýmissa úrbóta var þá þörf á húsum og aðstöðu. Ráðist var í miklar endurbætur nú í vor og er skemmst frá því að segja að nú hefur öllum skilyrðum verið fullnægt og gott betur en það að sögn Berglindar Viktorsdóttur, gæðastjóra Ferðaþjónustu bænda. Stjóm samtakanna hafi því samþykkt 2. október sl. að bjóða Húsabakka ehf. hjartanlega velkominn í hópinn. Hún bætir því við að uppbyggingin á Húsabakka sé greinilega í anda hugsjóna og metnaðar að standa vel að verki. Staðurinn sé skemmtilegur í fallegu umhverfi og ýmislegt i boði fýrir gesti þar og í byggðarlaginu. Ferðaþjónustan hafi svo þá sérstöðu að fuglasetur sé undir sama þaki og Friðland Svarfdæla í næsta nágrenni. Kolbrún Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Húsabakka ehf., segir aðildina mikil og góð tíðindi. Starfsemin njóti hér eftir góðs af sameiginlegu markaðs- og kynningarstarfi Ferðaþjónustu bænda (Fb) og Húsabakki fái aðgang að bókunarkerfi Fb. Þá opnist áhugaverðir möguleikar til samstarfs við aðra bæi innan Fb á Norðurlandi um „pakkaferðir" og tilheyrandi. Húsabakki ehf. hóf gistirekstur á árinu 2012. Hafa umsvif þar aukist á skömmum tíma. Gestum í gistingu í húsum fjölgaði vemlega í sumar og gestum á tjaldstæði Qölgaði um ein 400% frá því í fyrra! Síaukin aðsókn í gönguferðir til íjalla í Svarfaðardal skýrir þetta að hluta og svo flykktust höfúðborgarbúar úr rigningarsuddanum syðra í blíðviðrið nyrðra. Fjallaskíðamennska er einn af vaxtarbroddum ferðaþjónustu í dalnum og Húsabakki nýtur greinilega góðs af því þegar horft er til bókana þar á komandi vetri. Unnið er nú að því að bæta aðbúnað skíðafólks þar með því að koma fyrir þurrkskápum og fleim sem gagnast skíðafólki sérstaklega. Atli Viðar markakóngur Dalvíkingurinn knái, Atli Viðar Björnsson, er markakóngur Islands 2013. og hlýtur fyrir það gullskó KSÍ. Hörð barátta var um markakóngstitilinn i lokaumferð Pepsi-deildar karla en fyrir lokaumferðina voru Viðar Öm Kjartansson úr Fylki og Gary Martin úr KR markahæstir með 12 mörk hvor en Atli Viðar sem leikur með FH var á hælum þeirra með 11 mörk. Atli skoraði tvö af fjórum mörkum FH í lokaleik félagsins gegn Stjömunni og laumaði sér þannig á síðustu stundu inn í toppbaráttuna. Viðar Öm og Gary Martin skoruðu hvor sitt markið i sínum lokaleikjum og höfðu þeirþví allir skorað 13 mörk í lok leiktíðar. Atli Viðar hafði hins vegar spilað færri leiki en hinir og dæmdist því ótvíræður sigurvegari. Þegar rætt er um bestu framherja landsins er oft miðað við það hverjir hafa skorað 10 mörk eða fleiri fyrir félag sitt á leiktíð. Með frammistöðu sinni í sumar hefur Atli Viðar náð þeim árangri í fimmta skiptið fyrir FH og er þar með sjöundi íslenski knattspymumaðurinn til að ná þeim árangri. Sá árangur er enn glæsilegri í ljósi þess að Atli spilaði alls ekki alla leiki með FH hvorki nú í ár né í fyrra auk þess sem hann lék sumarið 2007 með Fjölni í Grafarvogi. Umhverfis - og tæknisvið Dalvíkurbyggðar auglýsir til sölu hús sem staðið hafa á tj'aldsvæðinu á Dalvík Húsin eru tvö, það stærra er um það bil 20 fm og það minna er um það bil 16 fm. Húsin seljast D#lvlK'J"B,0GD í því ástandi sem þau eru. Þeir sem hafa áhuga á að skoða húsin geta haft samband við Ingvar Kristinsson í síma 460 4921 eða á ingvark@dalvikurbyggd.is en hægt er að fá að skoða þau frá 21.-25. október. Tilboðum skal skila á Umhverfis - og tæknisvið Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsi Dalvíkur, 620 Dalvík- merkt; Tjaldsvæðahús eða á netfangið borkur@dalvikurbyggd.is. Frestur til að skila inn tílboðum er 28. október 2013 Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Nánari upplýsingar veitir Börkur Þór Ottósson ísíma 460 4900 eða á netfanginu borkur@dalvikurbyggd.is Þann 13. nóvember sl. lést á Hornbrekku í Ólafsfirði, Hannes Vigfússon. Hannes fæddist á Gmnd í Þorvaldsdal 28. mars 1919. Hann var sonur hjónanna Vigfúsar Kristjánssonar, smiðs og útvegsbónda, (1889- 1961) og Elísabetar Jóhannsdóttur húsmóður (1891-1975). Systkini Hannesar em: Hulda (1914-2007), Georg (f. 1915), Kristján Eldjám,(1917- 2001), Jón, (f. 1920), Guðrún Jóhanna, (f. 1921), Jóhanna Gíslína, (f. 1925), Reynir, (1926-1929) og Reynir, (1929-1931). Árið 1925 flutti fjölskyldan í Litla-Árskóg á Árskógsströnd og bjó hann þar til ársins 1999, er hann flutti að Öldugötu 1 á Árskógssandi. Á yngri ámm vann hann ýmis störf til lands og sjós, en ævistarf hans var húsamálun. Hannes var sannkallaður alþýðulistamaður og liggur eftir hann fjöldi listmuna sem hann gerði einn og í samvinnu við Kristján bróður sinn, þar á meðal 10 skírnarfontar í kirkjur og kapellur. Sá Hannes meira urn útskurðinn. Þá gerðu þeir fjölda listmuna, sem notaðir voru til tækifærisgjafa. Listmunimir voru gefnir Minjasafninu á Akureyri árið 1967, en voru síðar fluttir í Byggðasafnið í Hvoli á Dalvík, þar sem hluti safnsins er tileinkaður alþýðulistamönnunum frá Litla-Árskógi, Jóni, Kristjáni og Hannesi Vigfússonum. Utför Hannesar var frá Stærri-Árskógskirkju 19. október s.l.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.