Norðurslóð - 24.10.2013, Blaðsíða 2

Norðurslóð - 24.10.2013, Blaðsíða 2
2 - Norðurslóð Norðurslóð Útgefandi: Norðurslóð ehf. kt: 460487-1889 Ritstjóri og ábyrgðannaður: Hjörleifur Hjartarson, Laugasteini, 621 Dalvík, hjhj@simnet.is / nordurslod@simnet.is - sími: 8618884 Dreifing: Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími: 466 1555 Umbrot: Hjörleifur Hjartarson Prentvinnsla: Asprent Stíll ehf., Akureyri Októbermót Blakfélagsins Rima var haldið í þriðja sinn í Iþróttamiðstöðinni á Dalvík um síðustu helgi. Alls mættu til leiks 29 lið (29 x 8 = 232 manns) þar af 7 karlalið og 22 kvennalið frá Sauðárkróki í vestri til Þórshafnar í austri. Karlalið Rima háði úrslitaleik við KA og tapaði naumlega 20-21 og 20-21. Framkvæmdir hafa að undanfömu staðið yfir við aðstöðuhús ogtjaldsvæðiðá Dalvík. Vinnu við Tjaldstæðið er að ljúka og búið að koma aðstöðuhúsum heilmiklar hugmyndir uppi um veglega dagskrá á afmælisári. Bæjarráð tók á dögunum fyrir erindifráVelferðarráðuneytinu um fyrirhugaða sameiningu heilbrigðisstofnana innan heilbrigðisumdæma. Ráðherra stefnir að sameiningu heilbrigðis- stofnana á Suðurlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi þannig að Heilsugæslustöðin á Dalvík yrði þá hluti af Heilbrigiðsstofnunum á Blönduósi, Sauðárkróki, Fjallabyggð, Heilbrigðsstofnun Þingeyinga og Heilsugæslustöðinni Vísnasafn, örsögur og létt sagnfræði Krosshólshlátur kemur út á bók og hljómdiski Bókin Krosshólshlátur kemur út viku af nóvember. Utgáfuteiti er fyrirhugað í Bergi á degi íslenskrar tungu þann 16. nóv. n.k. þar sem boðið verður upp á veitingar, afréttarsöng og upplestur. Sæmundur bókaútgáfa gefur bókina út. Krosshólshlátur er úrval af kveðskap og annálum sem skráð hefur verið í gestabækur Sveinsstaðaafréttar í Skíðadal ásamt skýringum og sögulegum fróðleik. Bókin er 215 blaðsíður og prýðir hana 150 myndir af mönnum og mannlífi í göngum og réttum í Svarfaðardal. Einnig fylgir bókinni hljómdiskur með tóndæmum af söng gangnamanna. Að útgáfunni stendur Gangnamannafélag Sveinsstaðaafréttar en Hjörleifur Hjartarson tók hana saman. Hjörleifur segir tilgang svona bókar marþættan. „Sönglíf og þjóðleg vísnagerð er engin sérgrein gangnamanna í Sveinsstaðaafrétt. Hins vegar kemur það mörgum gestum í Tungurétt spánskt fyrir eyru ef svo má segja að heyra nær eingöngu sungnar heimatilbúnar vísur og ljóð, oft miklar langrollur sem gangnamenn og aðrir innvígðir kunna utanbókar en aðrir ekki. Einn tilgangur bókarinnar er að birta eitthvað af þessum kveðskap á prenti svo aðrir fái notið og numið og sungið með ef svo ber undir.“ í Sveinsstaðaafrétt hefur alla tíð mikið verið ort en árið 1965 gaf Gunnar Jónsson, bílstjóri og afréttarmaður gestabók í „Braggann“ þar sem skrásetja skyldi þennan kveðskap og jafnframt rita annála um hverjar göngur. Bókin fékk nafnið Krosshólshlátur eftir þjóðsögunni gömlu en Bragginn stendur í landi Krosshóls. Allar götur síðan hafa gangnamenn samviskusamlega gert eins og Gunnar mæltist til um og er það safn nú orðið mikið af vöxtum og leynast þar innan um margir gimsteinar. „Bókin Krosshólshlátur er því vísnabók að stofni til en með áherslu á sögumar að baki vísunum. Hún er því líka nokkurs konar örsagnasafn með stuttum köflum, lesendur geta opnað hana hvar sem er og byrjað að lesa sér til skemmtunar. Svo er bókin líka sagnfræðirit þar sem leitast er við að segja sögu Sveinsstaðaafréttar frá því Svarfaðardalshreppur keypti jarðimar Sveinsstaði, Gljúfrárkot og Holárkot í byrjun síðustu aldar og girti þrúhundruð faðma afréttargirðingu. Sú saga endurspeglar um leið sögu og mannlíf dalsins í hundrað ár“. Hjörleifur segir þó að menn megi ekki skilja orð sín þannig að hér sé á ferðinni einhver þurr sagnfræði. „Alvöru hefur jafnan verið stillt í hóf í Sveinsstaðaafrétt og það sama gildir um bókina. Þetta eru gamansögur, einelti og ýkjur um menn sem ekkert hafa til saka unnið“ Hann segir bókina tvímælalaust skyldueign og skyldulesningu á öllum heimilum sem tengjast Svarfaðardal. „Jólagjöfm í ár - bók og diskur á einu bretti“ Menn þurfi þó alls ekki að vera staðkunnugir til að njóta hennar. Hún er skrifuð fyrst og fremst með almennan markað i huga eða eins og segir í formála. „Það er von okkar sem að bókinni stöndum að með því að opna glugga inn í þennan einkennilega og einangraða menningarkima í botni Skíðadals ljúkist lesendum um leið upp gáttir að frjóu og fyndnu íslensku sveitasamfélagi samtimans og lifandi íslenskri vísnahefð." fyrir. Eftir er að helluleggja í kring um húsin. Húsin eru raunar að stofni til misstórir gámar sem raðað er saman. Þar verða snyrtingar, starfsmannaaðstaða, eldunar- og þvottaaðstaða. Farið verður í innréttingar næsta vor að sögn Arna Jónssonar íþrótta- og æskulýðsfulltrúa. Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir næsta ár verður tekin til fyrri umræðu hjá sveitarstjóm nk. þriðjudag. Meðal kerfisbreytinga sem gert er ráð fyrir er yfirfærsla vinnuskólans frá umhverfis - og tæknisviði yfir á fræðslu og menningarsvið. Mun íþrótta og æskulýðsfulltrúi framvegis bera hita og þunga vinnuskólans en í náinni samvinnu við sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs. Þá hefur verið auglýst eftir umhverfisstjóra sem er nýtt starfsheiti hjá Dalvíkurbyggð stofnað í kjölfar þess að Jón Amar Sverrisson garðyrkjustjóri lét af störfum í haust. Hann hafi yfimmsjón með umhverfismálum sveitarfélagsins, opnum svæðum, sorphirðu, snjómokstri, dýrahaldi og meindýraeyðingu svo fátt eitt sé nefnt. Umsóknarfrestur er til mánaðamóta. Kristján Guðmundsson sé slasaðist illa í vinnuslysi fy tveim árum heldur fyrirlestur si um slysið og bataferlið „Gef: aldrei upp“ í Hofi á Akureyri þa 7. nóvember n.k. kl. 20.00. Leikfélag Dalvíkur heldur aðalfund sinn í Bergi þann 30. okt. nk. kl 20. í vetur verður Leikfélagið 70 ára og vísast á Akureyri. Byggðaráð svaraði erindinu og benti m.a. á að í ráðuneytinu lægi enn erindi frá Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð um málefni aldraðra og framtíð heilbrigðisþjónustu við utanverðan Eyjaljörð. Ráðið mæltist til að það yrði skoðað í kjölinn. Komi hins vegar til þessarar stóru sameiningar leggur byggðaráð á það áherslu að hún leiði ekki til skerðingar á þeirri þjónustu við íbúana sem í boði er hjá Heilsugæslustöðinni á Dalvík. Byrjað er að bóka þátttakendur á jólamarkaði á Skeiði sem haldinn verður 30.1 l.og 1.12. kl. 14-17. Þátttaka tilkynnist Myriam í síma 866 7036. Svellandi mamtlíf í Timgurétt um 1965. Ein fjölmargra Ijósmynda sem prýða bókina. Uppbygging á íþróttasvæði UMFS Stefnt að unglingalandsmóti 2017. Um árabil hefur verið rætt um uppbyggingu á vallarsvæði UMFS á Dalvík. Gjarnan hefur þá verið rætt um landsmót, ekki síst unglingalandsmót, en metnaður hefur verið til þess að minnast þess að fyrsta unglingalandsmótið var einmitt haldið á Dalvík. Fyrir nokkru var svo ákveðið að deiliskipuleggja íþróttasvæðið þannig að uppbygging þess yrði markviss og er sú vinna nú á lokametrunum. Það er ljóst að viðhald á æfmgasvæði félagsins hefur verið lítið undanfarin ár og komið að stóru viðhaldi eða endurbyggingu þess. Sömuleiðis eru hlaupabrautir ónýtar og frjálsíþróttasvæðið ekki mótshæft. Eins og fram hefur komið óskaði stjóm UMFS eftir því nú í haust að sveitarfélagið kæmi með styrk við gerð gervigrasvallar í fullri stærð, auk þess sem stefnt yrði að unglingalandsmóti árið 2017. Um var að ræða framkvæmd sem alls hefði kostað um 330 m kr. Byggðaráð og starfsmenn sveitarfélagins hafa haft þetta mál til skoðunar og horfðu þá til þess í hvaða ástandi bæði æfmgasvæði og frjálsíþróttamannvirki em nú. Einnig að það sem gert yrði mundi bæði henta bama - og unglingastarfmu og öllum almenningi í sveitarfélaginu sem best. Niðurstaðan var að sveitarfélagið mundi koma að byggingu hálfs gervigrasvallar á æfingasvæði félagsins, sem gæti þá rúmað tvö lið á æfingu, og að stefnt yrði að unglingalandsmótinu. Málið var svo afgreitt á fundi byggðaráðs 18. október sl. þar sem meirihluti byggðaráðs samþykkti eftirfarandi: Byggðaráð samþykkir að fara í samstarf við UMFS um uppbyggingu á gervigrasvelli á vallarsvæði félagins. Um er að ræða hálfan merktan völl 48x68m (heildar gervigrassvæði 52x72m) sem staðsettur yrði á æfíngasvæði vestan megin við aðalleikvang. A ámnum 2014 og 2015 leggur Dalvíkurbyggð fram styrk að upphæð kr. 40 m. hvort ár vegna þessarar framkvæmdar. Jafnframt samþykkir byggðaráð að setja inná 4 ára áætlun, árin 2016 og 2017 kr. 35 m hvort ár vegna uppbyggingar frjálsíþróttaaðstöðu við aðalvöll og verði stefnt að unglingalandsmóti á Dalvík árið 2017, en þá eru 25 ár frá því fyrsta unglingalandsmót var haldið á Dalvík. Þessar tölur eru settar fram með fyrirvara um aðra fjármögnun og styrki sem kunna að fást vegna þessarar framkvæmdar. Þessi samþykkt fer síðan fyrir sveitarstjóm sem hluti af fjárhagsáætlanagerð og gerð fjögurra ára áætlunar. Með þessum framkvæmdum verður skapaður enn betri rammi um íþróttastarf hér í sveitarfélaginu og má þá fullyrða að þegar þær eru í höfn verður Dalvíkurbyggð í fremstu röð hvað varðar aðstöðu til íþróttaiðkunar bama og ungmenna. Svanfríður 1. Jónasdóttir, bæjarstjóri

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.