Norðurslóð - 26.03.2015, Qupperneq 2
2 - Norðurslóð
Norðurslóð
Útgefandi: Norðurslóð ehf. kt: 460487-1889
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hjörleifur Hjartarson, Laugasteini,
621 Dalvík, nordurslod@simnet.is - sími: 8618884
Dreifing: Sigríður Hafstað, Tjöm. Sími: 466 1555
Umbrot: Hjörleifur Hjartarson
Prentvinnsla: Ásprent Stíll ehf., Akureyri
Fréttahorn
Næsta verkefni að bæta námsárangur
Rætt við Hildi Ösp Gylfadóttur um nýja skólastefnu Dalvíkurbyggðar
Hildur Ösp Gylfadóttir
að er mikið um hvers kyns
hátíðir í Dalvíkurbyggð þessa
dagana. Árshátíð Dalvíkurskóla
hófst í gær og stendur yfir
ídag. Um helgina rekur hver
viðburðurinn annan. Svarfdælskur
mars stendur yfir alla helgina
með upplestri grunnskólanema,
heimsmeistarakeppni í brús, marsi
í Rimum og málþingi um Ingvildi
fagurkinn í Bergi. Leikfélag
Dalvíkur frumsýnir farsann
“Lík í óskilum” n.k föstudag
og á laugardagskveldið verður
Rokkhátíð Dalvikur/Reynis og
Bruggsmiðjunnar í Árskógi
Rokkhátíðin er nú haldin í
3ja sinn eftir að hún var
endurvakin en ágóði hennarrennur
til félagsstarfs Dalvíkur/Reynis.
Sautján söngvarar og söngatriði
eru skráð til leiks og segir Iris
Hauksdóttir skipuleggjandi
hátíðarinnar að gestir geti átt
von á óvæntum andlitum í þeirra
hópi. Húsið opnar kl 21 en sjóið
hefst hálftíma síðar. Að vanda er
það hin fomfræga sveit Bylting
sem sér um allan undirleik og
síðan stuðdansleik á eftir. Kynnir
kvöldsins verður Kristinn Ingi
Valsson.
r
A50 ára afmæli Tónlistarskóla
Dalvíkurbyggðar afhenti
Samherji hf skólanum 500 dvd
diska með upptöku af útitónleikum
að kvöldi Fiskidagsins mikla
2014 en að þeim standa Samherji
í samvinnu við Rigg viðburði
og Fiskidaginn mikla. Sigurður
Jörgen Oskarsson, afhenti gjöfxna
og mæltist til þess þess að
skólinn seldi þessa diska og nýtti
andvirðið til hljóðfærakaupa.
Ný Skólastefna fyrir
Dalvíkurbyggð var samþykkt
í sveitarstjórn 16. desember si.
Nú á dögunum birtist plaggið
litprentað með fjölda Ijósmynda
og var dreift inn á öll heimili
í sveitarfélaginu. Jafnframt
er það aðgengilegt á vef
Dalvíkurbyggðar.
Skólastefnan er skýr og
aðgengileg og sjáanlega unnin af
faglegum metnaði. Norðurslóð
hafði samband við Hildi Ösp
Gylfadóttur sviðsstjóra fræðslu-
og menningarsviðs og spurði hver
væri tilgangurinn með útgáfu slíkra
plagga og hvaða vinna lægi þar að
baki.
„Fyrir það fyrsta er það í lögum
að sveitarfélög hafi opinbera
skólastefnu en þar að auki
viljum við vinna stefnumiðað og
setja markið hátt. Skólastefnan
endurspeglar þau gildi sem Fræðslu-
og menningarsvið Dalvíkurbyggðar
hefur sett sér, þ.e.a.s. virðingu,
jákvæðni og metnað og eiga þau
svo að einkenna allt starf.
Þetta er í fyrsta sinn sem
Dalvíkurbyggð gerir heildstæða
skólastefnu fyrir leikskóla,
grunnskóla og tónlistarskóla.
Fyrri skólastefnur voru unnar fyrir
leikskólastigið sér og grunnskólann
sér.
I Aðalnámsskrá leik -og
grunnskóla eru taldir upp
grunnþættir menntunar sem
eru: læsi, sjálfbæmi, lýðræði og
mannréttindi, jafnrétti, sköpun,
heilbrigði og velferð. Það er síðan
okkar að innleiða áætlun þar sem
þessum þáttum er sinnt.
Við höfum hér í Dalvíkurbyggð
t.d. lagt sérstaka áherslu á jafnrétti
í víðum skilningi s.s. með tilliti
til fjölmenningar, valddreifmgar
í starfsháttum, kyngervis og
útgöngupunkturinn er alltaf velferð
nemandans. Við viljum hafa
metnað, framþróun og samvinnu að
leiðarljósi í öllu skólastarfi. Að gera
sífellt betur. Við leggjuiu áherslu
á sjálfstæða og gagnrýna hugsun
og styðjum bömin til ábyrgðar
í anda uppbyggingarstefnunnar.
Við leggjum líka áherslu á að nám
tengist sem mest raunverulegum
verkefnum og leggjum áherslu
á að nýta nýjustu miðla og
upplýsingatæknina í þeim efnum.
Við erum með frábært starfsfólk
sem líður vel i starfi, góða
stoðþjónustu og kannanir sýna að
hér er lítil áhættuhegðun ungmenna
og bömunum okkar líður vel.
Við getum því verið stolt af
fjölmörgum þáttum í skólastarfínu
en veiki þátturinn hjá okkur er
námsárangurinn og hann viljum við
bæta með markvissum leiðum"
Getur ekki verið að öll þessi
áhersla á þróunarstarf jafnrétti,
lýðræði og sköpun komi hreinlega
niður á námsárangri?
„Nei það tel ég ekki. Þetta er
í rauninni ekkert nýtt hjá okkur.
Við höfum lengi verið undir
landsmeðaltali í einkunnum
samræmdra prófa, vissulega
með undantekningum þó, en það
hlýtur að vera markmið okkar
að ná meðaltalinu í það minnsta.
Árangurinn er t.d. oft betri á yngri
stigum hjá okkur en dalar svo í efri
bekkjum og við þurfum að skoða
ofan í kjölinn hvað það er sem
orsakar þetta. Það er næsta stóra
verkefni.“
Hildur Ösp er nú á leiðinni í
hálfs árs leyfi og leggur af stað
nú í júní með fjölskyldu sína um
borð í Norrænu áleiðis til Evrópu.
Þar eyðir fjölskyldan sumrinu á
ferðalagi en með haustinu og fram
til áramóta dvelja þau á Englandi
við nám og störf. „ Eg held að
allir hafi gott af að takast á við
nýjar óþekktar aðstæður, þar sem
maður hefur ekki hefðbundna
stuðningsnetið sitt og annað
tungumál, upplifir nýja hluti og
þarf að fóta sig í nýju kerfí. Eg held
að það sé hollt, bæði fyrir fullorðna
og böm, auki viðsýni, skilning og
virðingu fyrir margbreytileikanum.
Auk þess sem gott er að fá fjarlægð
á hlutina, næra sig og fá nýjar
hugmyndir og koma þá ferskari til
baka, hlaðinn hamingju og búin
að bæta vel á reynslubankann.
Samstarfskona, sagði við mig þegar
hún var að samgleðjast okkur yfir
að vera taka þetta skref, að markmið
þeirra hjóna hefði verið að rífa sig
upp á 10 ára fresti, fara eitthvað og
gera eitthvað nýtt. Mér finnst það
til fyrirmyndar og nokkuð sem ég
myndi vilja lifa eftir „
Nýtt rit um
Kvenfélagið Tilraun
Þann 1. apríl 2015, verða
hundrað ár síðan Kvenfélagið
Tilraun var stofnað. Þessara
merku tímamóta í sögu félagsins -
og byggðarlagsins verður meðal
annars minnst með því að gefa út
afmœlisrit sem dreift verður á öll
heimili í Dalvíkurhyggð. Margrét
Guðmundsdóttir, sagnfrœðingur
hefur safnað efni i ritið og unnið
úr því.
Starfssvœði félagsins nœr í
dag til Svarfaðardals og Dalvíkur
eins og á fyrstu áratugimum
i sögu þess. 1 ritinu verður
Jjallað um félagsstörf kvenna,
stofnun kvenfélagsins og helstu
frumkvöðla þess og foiystukonur.
Fáeinar kvenfélagskonur munu
taka til máls á síðum ritsins.
Þœr munu ekki aðeins lýsa
félagsstörfum heldur einnig
því umhverfi sem fóstraði þœr
og samferðarmenn þeirra.
Kastljósinu verður jafnframt beint
að helstu baráttumálum félagsins.
Þau verkefni sem félagskonur
beittu sér fyrir eru ágœtis
spegill á þróun heilbrigðis- og
vejferðarmála á þeirri öld sem
liðin er síðan kvenfélagið var
stofnað. Féiagið hefur þannig
lagt töluvert af mörkum við að
byggja upp mikilvœga innviði
samfélagsins. Þá verður einnig
fjallað um framlag félagsins til
mennta- og menningarstarfa.
Kvenfélagskonur - bœði fyrr og
síðar - mótuðu með starfi sínu
fjölbreyttara og litríkara mannlíf í
byggðarlaginu. Ekki verður unnt
að rekja sögu félagsins í iöngu
máli en áhersla lögð á að draga
einstaka þætti starfssögunnar
fram I dagsljósið, bœði þá sem
jlestir þekkja í dag en einnig hina
sem myrkur sögunnur hefur hulið.
Spor Kvenfélagsins Tilraunar
liggja víða - mun víðar en margur
hyggur. Markmið félagsins með
útgáfu afmœlisritsins er ekki
aðeins að heiðra minningu
genginna félagskvenna heldur
að vekja athygli á framlagi
formœðra okkar við uppbyggingu
þess samfélags sem íbúar
Dalvíkurbyggðar njóta í dag.
A sjálfan afmœlisdaginn,
þann 1. apríl n.k. kl. 14:30 fagna
félagskonur sem nú eru um
fimmtiu talsins, afmœlinu með
því að a/henda Dalbœ, heimili
aldraðra á Dalvík veglega gjöf
til heimilisins. Um kvöldið fagna
félagskonur svo afmælinu í
Menningarhúsinu Bergi.
Þann 11. apríl býður félagið
til afmœlisfögnuðar með dagskrá
og kajfiveitingum að Rimum í
Svarfaðardal. Fleiri viðburðir
eru fyrirhugaðir á árinu og verða
auglýstir þegar nœr dregur.
Stjórn félagsins skipa:
Formaður: Halla Soffia
Karlsdóttir, Hóli, Svarfaðardal
Ritari: Ingibjörg Ragnheiður
Kristinsdóttir, Hnjúki, Skíðadal
Gjaldkeri: Hildur Birna
Jónsdóttir, Ytra Garðshorni,
Svarfaðardal
Skíðabraut 2 verður rifin
Umhverfis og tæknisvið Dalvíkurbyggðar hefur
samþykkt með fjórum atkvæðum að ganga
að tiboði Steypustöðvar Dalvíkur um niðurrif
Skíðabrautar 2 á Dalvík.
Tilboðið hljóðaði upp á 745 þúsund kr. Áður hafði
Umhverfísráð auglýst húseignina til sölu með þeim
skilmálum að hún yrði flutt af lóðinni en Vegagerðin
hyggst breyta gatnamótunum á þessum slóðum og færa
götuna inn á lóð hússins. Ekkert tilboð barst í húsið.
Helga íris Ingólfsdóttir greiddi atkvæði gegn því að
húsið yrði rifið og lét bóka eftirfarandi: „Það er leitt
að sjá á eftir rúmlega sjötíu ára gömlu húsi i gamla
miðbœ Dalvíkui: Mikilvœgt er að sveitarfélagið móti
sér stefim í varðveislu gamalla húsa“.
Húsið er 105 m2 timburhús, byggt árið 1943 af
Jóhanni G Sigurðssyni sem rak þar bæði skóverkstæði
og bókaverslun og „þjónaði sveitungum sínum í báða
enda“ eins og segir í Dalvíkursögu. Sjálfúr bjó hann
í suðurenda hússins. Hann verslaði þar með bækur
til ársins 1974. Fleiri upplýsingar um húsið má lesa í
húsakönnun Dalvíkurbyggðar.
VIRÐING - JÁKVÆÐNI - METNAÐUR