Norðurslóð - 26.03.2015, Síða 5

Norðurslóð - 26.03.2015, Síða 5
Norðurslóð - 5 Aftur um 30 ár I marsblaði Norðurslóðar 1985 er forsíðugrein um Loðdýrarækt sem sögö er vonarstjama á himni landbúnaðar. Haftvarsambandvið uppgangi í bænum uin þær mundir og hefur verið stofnuð harðsnúin judósveit sem æfir reglulega undir stjórn Brynjars Aðalsteinssonar. Sveitin hefur tekið þátt í mótum á Akureyri þar sem upprennandi loðdýrabúin fjögur sem starfrækt eru ásvæðinu og hvarvetna er mikill hugur í loðdýrabændum. Skinnaverð er í hæstu hæðum og bændur hyggja allir á stækkun. Böggvisstaðabúið er langstærsta loðdýrabú landsins um þessar mundir. „Það er verulega mikið hagsmunamál að þessi nýji sproti á nteiði landbúnaðar nái að dafna vel og bera tilætlaðan ávöxt“ segir í lok fréttarinnar. Þau tíðindi hafa orðið á aðalfundi Sparisjóós Svarfdæla að Nýr sparisjóðsstjóri, Friðrik Friðriksson, hefur tekið við af Gunnari Hjartarsyni. Helgi Hallgrímsson lieldur áfram með greinaflokk sinn um bústaði huldra vætta og álagastaði í Svarfaðardal. Þá er í blaðinu löng og sérlega alvörulaus grein um happafleytuna Sigríði Þórdísi Björgu sem rekin er af Misjafna skipafélaginu „Different Line LTD", Einnig er þar grein um júdóíþróttina sem er í töluverðum júdóstjarna, Börkur Ottósson, vann alla í sínum riðli og kom heim með gull. Ný ijölritunarþjónusta, Fjölriti s/f ,hefur tekið til starfa í bænum að frumkvæði tveggja fullhuga; Sigmars Sævaldssonar og Guðmundar Inga Jónatanssonar. Síðast en ekki síst er frá því greint að þáttaskil séu orðin í verslunarsögu Dalvíkur. Þann 26. mars opnar KEA nýja verslun i bænum. Mun hún fá nafnið Svarfdælabúð og flyst þangaó öll sú verslun sem áður var í gömlu matvörudeild, vefnaðarvörudeild. sport-og búsáhaldadeild svo og úr kjörbúðinni við Skíðabraut. Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson útibússtjóri lofar alls kyns sértilboðum og vörukynningum þann dag auk þess sem boðið verði upp á veitingar. Svarfdælabúð sem nú heitir reyndar Samkaup Urval er sem sagt 30 ára í dag! Mundi einhver eftir því? Bakhjarladálkurinn Þessir styrkja útgáfu Norðurslóðar Dalvíkurbyggð $ KSPARISJOÐURINN Dalvík; Vélvirki ehf. HÚSASMIÐJAN Sparisjóður Svarfdæla býður alla velkomna og þakkar viðskiptavinum sínum ómetanlegt traust sem þeir hafa sýnt sjóðnum í gegnum árin. Sparisjóður leggur áherslu á persónulega og faglega þjónustu hér eftir sem hingað til. ^SPARISJOÐURINN - fyrir þig og þína Auglysingasimi Norðurslóðar er 8618884 Ferming á Pálmasunnudag Þann 29.apríl, Pálmasunnudag kl. 10:30. Fermd verða: verður ferming í Dalvíkurkirkju Guðrún Jóhanna Friðmundsdóttir Mímisvegi 26 Dalvík Viktor Hugi Júlíusson Böggvisbraut 6 Dalvík Viktor Smári Eiríksson Karlsbraut 28 Dalvík Svarfdælskur mars 2015 Föstudagur 27. mars Lestur á Svarfdælu í Bergi kl. 10:00 - 14:00. Elstu nemendur Dalvíkurskóla lesa Svarfdælu og sýna verk byggð á sögunni. Allir eru velkomnir að koma og hlýða á lestur þeirra og skoða verkin. Brús að Rimum kl. 8:30 - 11:30. Heimsmeistaramót í Brús, keppt um gullkambinn góða. Æfinga- og kennslubúðir í hliðarsal. Þátttökugjald er kr. 1000. Laugardagur 28. mars Málþing um Ingvildi fagurkinn í Bergi kl. 13:30 1. Ingibjörg Hjartardóttir rithöfundur fjallar um Svarfdælasögu, þátt Ingvildar og hvernig þessi sagnaarfur hefur verið nýttur til sköpunar. 2. Bergljót Soffía Kristjánsdóttir, prófesor við Háskóla íslands, flytur erindið „kvenna örmust og vesulust". Um Svarfdæla sögu og Ingvildi fagurkinn. 3. Ingvildartorg 4. Karlakór Dalvíkur flytur nokkur lög Guðmundar Óla við kveðskap úr Svarfdælasögu. Ath. Kl. 13:00 hitum við upp fyrir málþingið með því að sýna upptöku Þorfinns Guðnasonar af frábærri dagskrá Karlakórs Dalvíkur frá 2010 um Ingvildi fagurkinn. Enginn má missa af henni á ,,breiðtjaldi“! Ókeypis inn og allir velkomnir. Málþingið er styrkt af Nefnd um 100 ára kosningarétt kvenna Rétt er að vekja athygli á að kl. 16:00 á laugardag verða tónleikar í tónleikaröðinni Klassik í Bergi. Marsinn tekinn að Rimum kl. 21.00- 01.00 Húsið opnar kl. 21:00 og talið i marsinn kl. 22:00. Nú er lag að fá sér snúning! Að venju stjórnar Inga Magga marsinum og hljómsveit Hafliða spilar. Aðgangseyrir er kr. 2000. Sunnudag 29. mars Aðalfundur Sögufélags Svarfdæla kl. 14:00 haldinn í húsnæði Héraðsskjalasafns í kjallara Ráðhúss. Venjuleg aðalfundarstörf. Árni Daníel Júlíusson mun greina frá ritun svarfdælskrar byggðasögu. Allir velkomnir. Menningarsjóður Dalvíkurbyggöar Sextán úthlutanir Úthlutað hefur verlð úr Menningarsjóði DalvíkurbyggðarAlls bárust 19 umsóknir að upphæð kr. 6.800.000 en úthlutað var að þessu sinni kr. 1.870.000 til 16 verkefna: Salka Kvennakór Vor- og jólatónleikar í Dalvíkurbyggð 150.000 Ingibjörg Hjartardóttir Ritun og upplestur úr nýrri sakamálasögu 100.000 Sögufélag Svarfdœla Ritun bókar, byggðasaga Svarfaðardals 200.000 Byggðasafnið Hvoll Sýning v/100 ára afmælis kosningaréttar kvenna 100.000 Meniiiiigarfélagió Berg Klassík í Bergi 100.000 Edik ehf Heimildamyndin BROTIÐ, tónlist og úrvinnsla 150.000 Jón Arnar Kristjúnsson Sýning myndlistaverka 30.000 Stjarnan Glerverkstœði Sýning á glerlistaverkum í Bergi 50.000 Baldur Þórarinsson Ljósmyndasýning 70.000 Karlakór Dalvikur Tónleikahald í vor 150.000 Menningarfélagið Berg Sýning á verkum Leifs Brciðfjörö 150.000 Ösp Eldjúrn Styrkur til tónleikahalds í Dalvíkurbyggð 100.000 Héraðsskjalasafn Svarfdœla Skráning á ljósmyndum 100.000 Helga íris lngólfsdóttir Bók um skipulags- og byggðaþróun Dalvíkur 200.000 Kristinn Arnar Hauksson Ljósmyndasýning í Bergi 70.000 Kristjana Arngrímsdóttir, Fjórar söngvökur í Tjamarkirkju 150.000

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.