Norðurslóð - 25.11.2015, Síða 1

Norðurslóð - 25.11.2015, Síða 1
Svarfdælsk byggð & bær 3 9. ÁRGANGUR 25 NÓV.2015 11.TÖLUBLAÐ Athöfn til minningar um mannskaðasnjóflóðin 1953 og 1955 vcir luildin íDalvíkurkirkju þann 14. nóv. sl. Fjölmenni var við athöfnina og komu gestir víða að. Á meðal þeirra voru börn Helga Aðalsteinssonar á Másstöðum sem fórst í snjóflóði 3. nóvember 1955, dœtur Guðjóns Steingrímssonar á Hjaltastöðum sem fórst ísnjóflóði 23. desember 1955 og Petrína Agústsdóttir sem missti föður sinn, Agúst Jónsson og tilvonandi mágkonu, Rannveigu Valdimarsdóttur, þegar snjóflóð eyddi Auðnum 3. apríl 1953. Á myndinni eru f.v.: Steinunn Helgadóttir, Rósa Helgadóttir, Ingibjörg Helgadóttir Eiríkur Helgason, Petrína Ágústsdóttir, Atli Rúnar Halldórson forsprakki samkomunnar, Jósavin Helgason, Sumarrós Guðjónsdóttir, Ingibjörg Guðjðnsdóttir og Elín Guðjónsdóttir. (Jóliann Guðjónsson lést 2012) Eigendaskipti á Ytra-Hvarfi Kaflaskil í tvö hundruð ára œttarsögu Árni Sigurður Þórarinsson og Kristín Sigurhanna Sigtryggsdóttir bændur á Hofi hafa gert bindandi samning um kaup á Ytra-Hvarfi. Með því er rofin tveggja alda ættarsaga því Ytra Hvarf hefur verið í eigu og ábúð sömu ættar í nærfellt 200 ár sem líklega er Islandsmet. í bókinni Svarfdælingar má Iesa að Ytra-Hvarf hafi alla tíð verið í bændaeign og líklega lengi í sömu ættinni. í byrjun 18. aldar keypti Þórður Jónsson (1773-1821) bóndi á Hnjúki jörðina (sem ekki má rugla saman við nafntogaðan alnafna hans og barnabam). Hann bjó þar þó aldrei sjálfur enda dó hann fyrir aldur fram. Hann var efnamaður og ákafamaður til vinnu og bera þess vitni andlátsorð hans sem Svarfdælir hafa enn á takteinum þegar svo ber undir. ...Það var á byrjuðum túnslætti að Þórður fann til krankleika og lagðist fyrir. Reis samt brátt upp aftur og sagði: „Ekki dugir þessi skratti, ekkert gengur á Hnjúksvöll með þessu“, gekk síðan til slægju Ytra-Hvarf og féll niður örendur... segir í Svarfdælingum. Árið 1847 flytur Jón (yngri) Þórðarson (1801-1860) í Ytra- Hvarf og upp frá því gekk jörðin í beinan karllegg - Jóhann Jónsson (1836-1901) - Tryggvi Jóhannsson (1882-1971) - Ólafur Tryggvason (1920-2005) - Jóhann Ólafsson (1952-2015). (Raunar bjó Jóhann Jóhannsson bróðir Tryggva á Ytra-Hvarfi (1901-1905) sem dálítill hliðarsproti út úr beina karlleggnum). Við þessa ættarsögu má svo bæta að Tryggvi Jóhannsson sonur síðasta ábúanda bjó á jörðinni um skeið en taldist þó aldrei eigandi hennar. Það má því segja að orðið hafi söguleg þáttaskil í sögu Ytra- Hvarfs. Árni Sigurður bóndi á Hofi sagðist í samtali við Norðurslóð hafa hug á að endurnýja fjósið og flytja þangað mjólkurframleiðsluna en hafa ungneyti og kálfauppeldið áfram á Hofi. Söluverð jarðarinnar með lítilsháttar af vélum og nokkrum geldneytum er um 56 milljónir. Þjóðlendumál Ríkið hafnar sáttatillögu Ríkið hefur hafnað sáttatillögu heimamanna í máli sem Dalvíkurbyggð rekur fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra vegna úrskurðar Óbyggðanefndar þess efnis að Sveinsstaðaafrétt teljist þjóðienda. Sáttatillagan gekk út á að sveitarfélagið héldi eftir landræmum meðfram Skíðadalsá og Vesturá upp að ákveðinni hæðarlínu á svæðinu sem Óbyggðanefnd hefur úrskurðað þjóðlendu en ríkið fellst ekki á þær kröfur. Málið verður því tekið fyrir með óbreyttu sniði hjá héraðsdómi og segist Ólafur Björnsson hjá Lögmönnum Suðurlands sem rekur málið fyrir hönd sveitarfélagsins ekki ólíklegt að það fari alla leið í hæstarétt hver svo sem niðurstaðan verði í Hnjótafjall í Svarfaðardal og StafnstungnafjallogAlmenningsfjall í Sveinsstaðaafrétt eru þjóðlendui skv. úrskurði Óbyggðanefndar héraðsdómi. Landeigendur Atlastaða reka einnig mál fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra til að hnykkja úrskurði Óbyggðanefndar um að Hnjótafjall teljist þjóðlenda og er úrskurðar að vænta þaðan á næstunni. Skíðin og golfið í eina sæng í síðustu viku boðaði Kári Ellertsson, nýráðinn framkvæmdastjóri Skíðafélags Dalvíkur og Golfklúbbsins Hamars til fundar með hagsmunaaðilum, um sameiginlegt útivistarsvæði í Böggvisstaðafjalli. Að sögn Kára er fundurinn liður í skipulagsvinnu sem hófst þegar golfklúbburinn fékk á síðustu fjárhagsáætlun styrkt til að gera úttekt á kostnaði við endurbætur Amarholtsvallar og/ eða uppbyggingu nýs golfvallar á Dalvík. Sem kunnugt er hefur verið í umræðunni í nokkurn tíma að flytja starfssvæði golfklúbbsins Hamars frá Arnarholtsvelli til Dalvíkur og m.a. bent á samnýtingarmöguleika með skíðasvæðinu því til stuðnings. Edvin Roald Rögnvaldsson golfvallahönnuður var fenginn til að teikna upp sameiginlegt golf-skíða og útivistarsvæði og voru fyrstu hugmyndir að því til kynningar á áðurnefndum fundi. Til fundarins var boðið sveitarstjórnarmönnum ásamt fulltrúum hagsmunaaðila. s.s. skíðafélags. golfklúbbs, hestamannafélags ofl. Kári segir að almennt hafi verið gott hljóð í fundarmönnum en of snemmt sé að birta uppkast af svæðinu að svo stöddu. I framhaldinu var ákveðið að skipa hóp fulltrúa hinna ýmsu hagsmunaaðila sem verði þeim Edvin til ráðgjafar um endanlega útfærslu. Kári Ellertsson var ráðinn sem framkvœmdastjóri fyrir bœði skíðafélagið og golfklúbbinn og tók til starfa l.júlísl. Kári reiknar með að útivistarsvæðið verði tilbúið til almennrar kynningar öðru hvoru megin við áramótin. Hann segir margt mæla með uppbyggingu golfvallar í tengslum við Böggvisstaðafjall, s ,s. samnýtingu skíðaskálans og möguleika á heilsársstarfsmanni sem þjóni bæði golfvelli og skíðasvæði en eðli málsins samkvæmt er ekki mikið hægt að spila golf í snjónum sem er aftur á móti undirstaða skíðaíþróttarinnar.Tíðarfarið í haust hefur verið með þeim hætti að hörðustu golfspilarar hafa getað stundað íþrótt sína fram í nóvember. Skíðasvæðið bíður aftur á móti þess að það fari að snjóa. Snjóframleiðsla er þó hafin að sögn Kára. „Við notum hverja stund þegar frystir til að framleiða snjó og leggja grunninn fyrir hinn náttúrulega snjó. Opnunartimi: Matvöruverslun - rétt hjá þér Mðn . • fös. 10-19 laug. 10-18 sun. 13-17 Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202 mmmMámáddmÉÉMmm

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.