Norðurslóð - 25.11.2015, Page 2

Norðurslóð - 25.11.2015, Page 2
2 - Norðurslóð Norðurslóð Útgefandi: Norðurslóð ehf Laugasteini 621 Dalvík. S. 8618884. Netfang: nordurslod@simnet.is Ritstjóri og áhyrgðarmaöur: Hjörleifur Hjartarson Dreifing: Sigriður Hafstað, Tjörn. Stmi: 466 1555 Umbrot: Hjörleifur Hjartarson Prentvinnsla: Asprent Stíll ehf, Akureyri Fréttahorn Tenórarnir þrír: Friðrik Omar, Eyþór og Matti Frábær aðsókn var á tónleikum til styrktar Guðmundi Ing Jónatanssyni sem haldnir voru í Bergi 18.nóvsl. Salurinn varþétt setinn og sætaraðir langt fram á gang. Gestir voru um 300 að sögn Júlíusar Júlíussonar staðarhaldara. Alls munu hafa safnast hátt í tvær milljónir í aðgangseyri og framlögum söfnunarinnar en Guðmundur glímir nú við erfið veikindi. Júlíus Júlíusson stjórnaði samkomunni en auk hans komu fram Eyþór Ingi Gunnlaugsson Friðrik Omar Hjörleifsson Matthías Matthíasson, Aron Oskarsson og félagar og Karlakór Dalvikur. Það er Guðmundur Pálmason sem heiðurinn á af skipulagi hátíðarinnar en sjálfur þekkir hann af eigin raun glímuna við erfið veikindi og þann andlega og fjárhagslega stuðning sem styrktarsamkomur af þessu tagi koma til leiðar. Hinn Árlegi jólamarkaður verður á Skeiði þann 29 nóv. nk. Þar verður að vanda margt muna til sölu og jól í hverri stofu að hætti Myriam Dalstein á Skeiði Og talandi um Myriam þá upplýstist þann 19. nóv sl. að hún er kona mánaðarins í sýningarröð Byggðasafnsins Hvols um konur í Dalvíkurbyggð í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á íslandi. Hinn hálfsvarfdælski dúett Hundur í óskilum sendi í vikunni frá sér nýjan DVD-disk með sjóntón- 1 e i k n u m Saga Þjóðar. L e i k u r i n n var sýndur við miklar vinsældir á Akureyri og í Reykjavík 2012-2013. RÚV annaðist upptökur og var verkið sýnt í sjónvarpi allra landsmanna á nýársdag 2015 og endurtekið nokkrum sinnum eftir það. Diskurinn verður til sölu í betri búðum en má einnig nálgast hjá hljómsveitarmeðlimum. Fjallabyggð og Dalvikurbyggð Tónlistarskólar sameinaðir Byggðaráð samþykkti samhljóða 23.nóv. sl.að vinnaað sameiningu Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar og Tónskóla Fjallabyggðar með því markmiði að sameiningin taki gildi í upphafi skólaárs 2016. Skólarnir hafa í gegn um tíðina haft með sér samstarf og samnýtingu kennara og undanfarið hefur Magnús G. Olafsson starfað sem skólastjóri beggja skólanna. Magnús mætti á fund byggðaráðs með gögn er varðaði þetta samstarf og tillögur um frekari sameiningu sem fræðsluráð hefur þegar lagt blessun sína yfir. Byggðaráð fól sveitarstjóra að senda erindi samkvæmt ofangreindri bókun til bæjarráðs Fjallabyggðar. Fjallkonan sækir efni til mannskaðaflóðanna í Skíðadal Ný skáldsaga Ingibjargar Hjartardóttir; Fjallkonan, kom út sl. timmtudag. Ingibjörg segir að kveikja hennar séu m.a. mannskaðaflóðin í Skíðadal og tileinkar bókina Steinunni Helgadóttur bekkjarsystur sinni og æskuvinkonu frá Másstöðum. Ingibjörg ítrekar þó að bókin sé skáldsaga þó raunverulegir atburðir séu notaðir sem efniviður í hana. Hún hafi lengi gengið með söguna í maganum en tilviljun ráði því að útgáfa hennar hitti á þessa daga þegar atburðanna er minnst. Fimmta fórnarlambið í ræðu sinni í minningarathöfninni um fórnarlömb snjóflóða í Svarfaðardal vakti Atli Rúnar Halldórsson athygli á því að fórnarlömb snjóflóða í Svarfaðardal á síðustu öld væru raunar fimm. „Hið fyrsta var Dagbjartur Þorsteinsson, 47 ára skósmiður í Háagerði við Dalvík. Hann gekk til rjúpna í Bæjarfjalli eða Ufsafjalli hér ofan Dalvíkur 5. nóvember 1926 og fórst í snjóflóði. Dagbjartur hvílir í kirkjugarðinum á Upsum og er við hæfi er að nefna hann hér og heiðra líka minningu hans“. Sagði Atli. Minningarathöfn eftir 60 ár Fórnarlamba snjóflóða í Skíðadal og á Auðnum í Svarfaðardal minnst Guðjón Steingrímsson Hjaltastöðum Helgi Aóalsteinsson Másstöðum Rannveig Valdlmarsdóttir Auðnum Ágúst Jónsson Auðnum Þann 14. nóvember sl. var haldin í Dalvíkurkirkju minningarathöfn um fórnarlömb snjóflóða í Svarfaðardal og Skíðadal 1953 og 1955. Tilefnið er að nú eru rétt 60 ár liðin frá því Helgi Aðalsteinsson á Másstöðum og Guðjón Steingrímsson á Hjaltastöðum fórust með stuttu millibili í snjóflóðum í Skíðadalnum frá eiginkonum og níu ungum börnum. Tveim árum áður grandaði snjóflóð bænum Auðnum í Svarfaðardai þar sem tvær manncskjur; Rannveig Valdimarsdóttir og Ágúst Jónsson týndu Iífi. Það voru börn og aðstandendur þeirra sem fórust í snjóflóðunum sem stóðu að samkomunni en aðalhvatamaður hennar var Atli Rúnar Halldórsson sem að undfanförnu hefur gert þessum hörmulegu atburðum skil á vef sínum svarfdaelasysl.com. í ræðu sem Atli flutti við athöfnina rakti hann ástæður þess að hann réðst í þetta verk. Þar sagði hann m.a: „ ...Veturinn 2012 til 2013 komst ég ekki hjá því að fylgjast ögn með sýsli vinar míns fyrir sunnan, Dalvíkingsins Hauks Sigvaldasonar, sem fór að safna upplýsingum, taka upp viðtöl og undirbúa minningarathöfn á sjó í Eyjafirði, við Dalvíkurhöfn og hér í þessari kirkju í apríl 2013 í tilefni afþví að 50 ár voru liðin frá sjóslysunum miklu í páskahretinu 1963 þegar fórust sjö sjómenn frá Dalvík, þar á meðalfaðir Hauks og föðurbróðir...“ í kjölfarið hóf Atli að safna upplýsingum um snjóflóðið á Auðnum í dymbilviku 1953. Hann tók viðtal við Petrínu Ágústsdóttur frá Auðnum sem missti þar bæði föður sinn og mágkonu og einnig ræddi hann við marga þátttakendur í hinum erfiðu björgunaraðgerðum. Afrakstur þessarar rannsóknarvinnu birtist á Svarfdælasýslinu 60 árum eftir atburðinn, 3ja apríl 2013, og vakti verðskuldaða athygli. Síðar hóf Atli að safna uppýsingum um mannskaðaflóðin Börn Helga og Esterar á Másstöðum: Eiríkur, Steinunn, Rósa, Ingibjörg og Jósavitl (Ljósm.ARH) sjávar og sveita en náttúran tekur líka. Þarna tók hún og skildi eftir sig mörg og stór skörð í svarfdœlsku samfélagi, alls ellefu mannslífá tíu árum. Atli vék einnig að þögninni sem ríkt hefur um þessa atburði í gegn um tíðina og nú hefur verið rofin ef svo má segja. „...Sjálfur á ég minningar frá Jarðbrú um þögnina sem brast á í kringum mig þegar ég spurði út í sjóslysin á Dalvt'k og snjóflóðaslysin í Skíðadal og á Auðnum. Þetta var einfaldlega ekki umræðuefni. Samt vara ég við því að tala um sh'k viðbrögð sem þöggun í þeim skilningi sem jafnan er lagður íþað hugtak nú. Miklu nœr er að tala um þögnina sem birtingarmynd tíðaranda sem þá ríkti. Börnin sem misstu feður sína í slysum til sjós og lands voru einfaldlega látin eiga sig með harm sinn, sárindi og söknuð. Þau urðu sjálf að vinna úr sorginni og voru að sjálfsögðu ekki fœr um það ein og sjálf. Þannig var það nú bara. Við skulum engu að st'ður varast að líta til fortíðar í gegnum gleraugu nútíðar og dœma eða ásaka. Tímarnir breytast og mennirnir með...“ Steinunn Helgadóttir frá Másstöðum var þriggja ára þegar snjóflóðið grandaði föður hennar. Hún þakkaði í ávarpi sínu Atla fyrir „Að lyfta lokinu þunga“ með einstakri nærgætni og umhyggju en síðan gaf hún barninu Steinunni orðið í ljóði sem hún nefnir -Þögnin Hjaltastaðasystur: Elín, Ingibjörg og Sumarrós. (Ljósm. arh) í Skíðadal og taka viðtöl viðaðstandendur þeirra Helga á Másstöðum og Guðjóns á Hjaltastöðum og aðra sem komu þar að málum. Afrakstur þeirrar vinnu birtist lesendum Svarfdælasýslsins síðan í tveim lotum í byrjun þessa mánaðar „...Eg efast mjög um að hœgt hefði verið að fjalla opinskátt um slysin í Skíðadal fyrir tíu árum, hvað þá fyrr. Sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma. Þessari umræðu er œtlað að eiga sér stað nú....“ Sagði Atli í ávarpi sínu „Hér í upphafi vék ég orðum að sjóslysunum miklu á Dalvík og ég get ekki varist því að líta á þennan áratug frá Auðnaslysinu í dymbilvikunni 1953 til sjóslysanna við Norðurland í dymbilvikunni 1963 sem tímabil þegar oft og lengi var afar þungskýjað yfir þessu byggðarlagi. Náttúran gefur til Skyndilega er allt þykkt ... þunnt með sumargolunni einhvemveginn breytt svart... grátt þökk sé þessu lífi glært... gegnsætt með hverju á hann ... ? ... að gera þétt þögn á milli hennar ... og hinna ... að vera með hverju á hún ... ? með tugi sex að baki hvar er hann pabbi minn? spyr hún Með hverju á hann pabbi minn ... ? að rjúfa - þögn frá því þú fórst stíga í - ótta hér af jörðu ... á himnum vex úr grasi skila - skömm og aðlagast því sem er öllu því sem lokar með hverju ... ? hún situr með silfurskeið hans og spyn talar ekki ... um hann sál ... hennar inni með hverju á hann pabbi minn nú talar bara ... við hann með ást... þakklæti að borða ... ? með hverju ... ? og mildi... hvísla ég ... á himnum sveitt og þreytt út í stjömubjarta komin upp að stóra steini með kærleika vetramótt í hans stað kom hún ertu héma? ... og þökk viltu vemda mig þögnin hvíslar hún út í tómið fyrir föður og móður enn einn dag þétt og dimm og finnur um leið fyrir dalinn minn hér á jörðu ... ? þögnin ... þiiið er hann strýkur vanga hennar fyrir fólkið mitt

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.