Morgunblaðið - 20.01.2017, Síða 8

Morgunblaðið - 20.01.2017, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2017 Þ eir sem eru á ferðinni um borgina Nor- folk í Virginíu 11. febrúar ættu að leggja við hlustir, og þá kannski að þeir heyri þá óminn af íslenskum ætt- jarðarsöngvum. Ef gengið er á hljóðið ætti ferðalangurinn að hitta fyrir reifan hóp Íslend- inga og Bandaríkjamanna sem mættir eru á þorrablót Íslendingafélagsins á Hampton Roads-svæðinu. Ef spurt er um gestgjafann þá verður bent á Sesselju Siggeirsdóttur Seifert, eða Sellu, en hún stofnaði félagið fyrir rösklega þremur ára- tugum og hefur árlega efnt til þessarar veg- legu veislu. „Við fáum fólk alls staðar að, bæði meðlimi félagsins sem teygir sig um Virginíu- og Karól- ínu-svæðið, en líka alla leið frá New York, Flórída og víðar. Er sömu sögu að segja um 17. júní-fögnuðinn, að margir gestanna hafa lagt upp í langt ferðalag til að komast til okkar,“ segir Sesselja og hreykir sér af því um leið að þorrablótið í Norfolk sé ekki aðeins það ódýr- asta og besta sem finna má í Bandaríkjunum heldur líka það fjölmennasta. Örlagaríkur dagur á launadeildinni Leið Sesselju til Norfolk lá í gegnum varn- arliðsstöðina í Keflavík. Þar hafði hún fengið starf við launadeildina en þá vildi svo til að átti að gera nýjan samning milli Íslands og Banda- ríkjanna um þjónustu við herinn. Mynd- arlegum kapteini var falið það verkefni að finna út hve margir Íslendingar störfuðu á vellinum, og vissi hann að auðveldast væri að finna þær upplýsingar hjá launadeildinni. Til að gera langa sögu stutta var Sesselja fljótlega gengin í hjónaband og ári síðar fylgdi hún Robert Seifert, eða Bob eins og hún kallar hann, til Stuttgart. Þar bjó parið í bandarískri herstöð í þrjú ár, og því næst í þrjú ár í herstöð Bandaríkjahers stutt frá Napólí. Þar hætti Bob störfum fyrir herinn, eftir rúmlega 32 ára glæstan feril, og settust hjónakornin að í Nor- folk, þar sem sjóherinn hefur sína stærstu bækistöð. Lést Bob árið 2013. Fjölbreyttur hópur Þegar komið var til Bandaríkjanna beið Sess- elja ekki boðanna og reyndi að hafa uppi á öðr- um Íslendingum á svæðinu. Var þá ekkert Ís- lendingafélag starfandi á þessum slóðum en Sesselja þóttist vita af nokkrum íslenskum konum sem höfðu, eins og hún, gifst banda- rískum hermönnum og flutt til þessarar borg- ar. Fyrr en varði var nokkuð öflugt Íslendinga- félag farið að taka á sig mynd. „Félagsmenn eru ekki bara brott fluttir Íslendingar heldur líka námsmenn sem hafa styttri viðdvöl á svæðinu, og bandarískir hermenn sem höfðu viðdvöl í Keflavík, kunnu vel við sig á Íslandi og vilja halda tengslum við landið – og fá að smakka aftur íslensku pulsurnar á 17. júní- samkomunni enda í uppáhaldi hjá mörgum,“ segir Sesselja. „Þeir brott fluttu Íslendingar sem eiga börn eru oft duglegir að sækja sam- komurnar okkar enda er það tækifæri fyrir yngstu kynslóðina að æfa sig í málinu og kynn- ast öðrum börnum í sömu sporum.“ Það er ekki lítið verkefni að boða til 220 manna veislu en Sesselja er þrautþjálfuð og sér til þess að allt gangi smurt fyrir sig, og þorrablótið verður núna haldið í sama veislu- salnum í þrítugasta sinn. Miðaverðið er ekki nema 15 dollarar, en allt árið safnar Sesselja fyrir leigu á sal og fyrir veitingum, m.a. með því að selja meðlimum Íslendingafélagsins ís- lenskt nammi – oft fyrir hundruð dollara í einu. „Er húsið mitt stundum kallað Sellubúð enda fullt af súkkulaði og lakkrís og hægt að ná í góðan pening með því að selja þennan varn- ing.“ Maður er manns gaman Dagskráin er formföst og hæfilega einföld. Ekki er verið að flytja inn íslenska tónlist- armenn eða skemmtikrafta, enda segir Sess- elja að það væri of dýrt, en vaninn er að sendi- herrann í Washington mæti og haldi ræðu, og sömuleiðis að formaður Íslendingafélagsins flytji stutt ávarp. „Ég er síðan með nokkra stráka af svæðinu sem geta spilað fyrir dansi,“ útskýrir Sesselja. Húsið er opnað klukkan hálfsex og opinn bar allt kvöldið. „Boðið er upp á hefðbundinn þorramat og að auki bandaríska rétti eins og roastbeef og kalkún, fyrir þá sem eru ekki hrifnir af þjóðlega íslenska matnum.“ Áður fyrr fékk Sesselja þorramatinn með gámaflutningaskipi Eimskips sem hafði reglu- lega viðkomu í Norfolk, en eftir að siglingaleið- inni var breytt hefur hún þurft að skipuleggja loftbrú til Íslands og er fólk sem er á ferðinni milli Virginíu og Íslands nýtt til að taka aftur með sér til Bandaríkjanna eins og eina tösku af hefðbundnum íslenskum mat. Segir Sesselja að aldrei hafi komi upp vandræði í tollinum. „Fólkið sem þar starfar er þaulvant og veit að það er í fínasta lagi að flytja inn íslensk mat- væli til Bandaríkjanna.“ Hákarlinn ekki svo slæmur Hákarlinn er á sínum stað en Sesselja heldur honum aðskildum frá hinum réttunum enda lyktin og bragðið ekki fyrir alla. Segir hún Ís- lendingana oft skemmta sér við að mana bandarísku gestina til að smakka. „Margir láta vaða og eru vitanlega ekki hrifnir, en hafa oft á orði að bragðið sé ekki eins slæmt og þeir höfðu ímyndað sér.“ Annast Sesselja eldamennskuna og segir hún ekki mikinn vanda að standa yfir pott- unum á meðan slátrið er soðið. „Það eina sem ég hef sleppt eru sviðakjammarnir því það get- ur átt til að blæða mikið úr þeim í flutningum og ekki hægt að biðja fólk um að flytja þá. Í staðinn höfum við sviðasultu og ekki mikið yfir því kvartað að kjammana vanti.“ Hefð fyrir biðlista Er glatt á hjalla og fer veislan vel fram þó að barinn sé galopinn. Segir Sesselja að góð stemningin og lágt verðið þýði líka að aðsóknin er góð og yfirleitt komast færri að en vilja. „Nú þegar eru allir 220 miðarnir uppseldir og kom- inn biðlisti. Er alltaf einhver sem dettur út á síðustu stundu og þá vonandi hægt að koma öðrum inn í staðinn,“ segir Sesselja og bætir við að áhugasamir geti haft samband með því að leita uppi „Icelandic Association Virginia“ á Facebook. ai@mbl.is Rætur Gestahópurinn er fjölbreyttur og margir sem koma á blótið ár eftir ár Söngur Tónlistin getur verið lífleg. Gestgafi Sesselja tekur sig vel út í þjóðbúningnum og stýrir veislunni af fimi. Hefur haldið þorra- blót í Norfolk í rösk- lega þrjá áratugi Margir ferðast um langan veg til að koma á þorrablótið í Norfolk. Þar eiga bæði Íslendingar og bandarískir Íslandsvinir góða stund saman en matur fyrir 220 gesti hefur verið ferjaður skipulega til Bandaríkjanna með því að nota laust pláss í ferðatöskum. Kræsingar Vegleg langskip er notað undir þjóðlegan matinn. Íslenskara gerist það varla. Fótafimi Glatt er á hjalla á þorrablótinu, og jafnvel stiginn dans. Tenging Sungnir eru hefðbundnir þorrablóts söngvar og taka allir undir. Kappi Salurinn er þjóðlega skreyttur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.