Morgunblaðið - 20.01.2017, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2017 MORGUNBLAÐIÐ 11
Þ
að eru engar ýkjur að segja
að Íslendingar séu sólgnir í
síld. Hvort heldur hvers-
dags eða þegar mikið liggur
við er algengt að landinn sæki
krukku af ljúffengri síld úr ísskápn-
um og beri á borð fyrir heim-
ilismeðlimi, gesti, eða einfaldlega
fyrir sjálfan sig. Kemur þá líka fátt
annað til greina en síldin frá Ora.
Sólgin í sæta síld
Gestur Steinþórsson er vörumerkja-
stjóri hjá Ísam og segir hann Ís-
lendinga vilja hafa síldina mjög
sæta, en erlendis er meiri hefð fyrir
að gefa síldinni súrara síldarbragð.
„Við höfum okkar eigin stíl, eins og
vera ber, og höldum tryggð við þá
norrænu hefð að borða síld á hátíð-
isdögum enda herramannsmatur.“
Þorrinn er líflegur tími í síldarsöl-
unni og segir Gestur að sama gildi
um jól og páska, og eins að mikið
seljist af síld yfir sumarið.
Umbúðir sem sækja í hefðina
Ora framleiðir ekki sérstaka þorra-
síld í ár, en hins vegar kynnir fyr-
irtækið til sögunnar nýjar umbúðir
fyrir lauksíld og maríneraða síld,
sem eru þær síldartegundir sem
þykja eiga hvað best við á þessum
árstíma. „Nýja útlitið er hluti af um-
búðabreytingum Ora. Munu allar
Ora-vörur breyta um útlit á árinu
og sækja innblástur til Grænu baun-
anna sem hafa verið ein helsta ein-
kennisvara Ora frá upphafi.“
Stöðugar framfarir
Ekki eru það bara umbúðirnar sem
breytast heldur hafa orðið framfarir
við framleiðsluna líka. Neytendur fá
sömu góðu síldina en stigin hafa
verið ný skref til að tryggja gæðin
enn frekar. „Framleiðsluaðferðirnar
eru í stöðugri þróun, og vandað
mjög til við síldargerðina. Má t.d.
nefna að lögurinn sem síldin er mar-
íneruð í er soðinn
áður en síldarbit-
unum er blandað
saman við. Með
því að sjóða löginn
fer súrefnið úr
honum og þannig
minnka líkurnar á
að síldin þráni í
krukkunni. Veljum
við vitaskuld að-
eins besta fáan-
lega hráefni til að
gera Ora-síld.“
ai@mbl.is
Nýjar umbúðir, sama góða síldin
Lauksíldin og maríneraða
síldin fyrstar til að fá
nýjar umbúðir. Allar Ora-
vörur munu fá breyttar
umbúðir á árinu.
Góðgæti Gestur segir Íslendinga
gjarnan velja síld á tyllidögum.
Þó mörgum finnist best að
setja síldina beint á smurt rúg-
brauð eða franskbrauðsneið þá
má líka nota síldina í alls kyns
matargerð.
Hér er ein uppskrift úr safni
Ora:
6 flök maríneruð síld eða krydd-
síld
1 laukur
1 dl sýrður rjómi, 10% eða 18%
2-3 græn epli
soðin egg til skrauts
Skerið eplin i teninga og
blandið saman við sýrða
rjómann
Skerið síldina í hæfilega bita
og laukinn í jafna strimla
Leggið á fat og berið fram
með brauði og soðnum kart-
öflum.
Síldarfreist-
ing Ora
Sælgæti
Íslendingar vilja
hafa síldina
sæta, segir
Gestur.
Hefðir Sumum þykir síldin
best á rúgbrauði, á meðan
aðrir vilja helst af öllu stinga
gafflinum ofan í krukkuna og
svo beint upp í munn.