Víkurfréttir - 04.11.2004, Side 4
> Leikfélag Keflavíkurfrumsýnir nýtt verk:
Eftirlitsmaðurmn í Frumleikhúsinu
Lcikfélag Kcflavíkur
frumsýndi Eftirlits-
manninn eftir Nikolaj
Gogol í síðustu viku. Leikstjóri
er Grindvíkingurinn Bergur
Ingólfsson. Hann hefur stað-
fært leikritiö talsvert og hefur
það verið fært nær nútíman-
um. Má þar nefna að hluti af
sviösmyndinni verður heitur
pottur fylltur af vatni og vín-
flöskum.
Leikritið gerist í borg einni i
Rússlandi þar sem embættis-
menn eru rotnir í gegn af spill-
ingu og valdníðslu og gera lítið
annað en að skemmta sér.
Skyndilega kemur birtist eftirlits-
maður frá æðstu stöðum og uppi
verður fótur og fit.
j samtali við Víkurfréttir sagði
Bergur að mikil spenna væri í
hópnum fyrir frumsýningar-
kvöldið. „Það er gífurleg stemm-
ing hjá okkur enda er þetta
heitasta partýið á Suðumesjum.”
Hann bætti því við að æfingar
hefðu staðið allt frá miðjum sept-
ember hjá þeim 11 leikurum sem
taka þátt, en þar að auki stendur
annar eins fjöldi að sýningunni.
Bergur útskrifaðist úr Leiklistar-
skóla íslands 1995 en hann lék
aðalhlutverkið í Eftirlitsmannin-
R507
stafrœn myndavél
4,1 milljón pixla upplausn
3x aðdráttur, 7 stafrænn aðdráffur
Pentax linsa
SAMHÆFNI
= ollt er fromkvæmonlegt
Hringbraut 96 • Sími 421 7755 • www.samhaefni.is • sala@samhaefni.is
SAMBití
um með Vox Arena, leikfélagið
Fjölbrautaskóla Suðurnesja fyrir
15 árum siðan. Bergur hefur m.a.
leikstýrt Moglí og Kristnihaldi
undir Jökli auk fjölda áhuga-
mannasýninga. Um þessar
mundir leikur hann í fjórurn sýn-
ingum samhliða því að leikstýra
hjá LK: Chicago, Linu langsokk,
Hýbýli vindanna og Héra Héra-
syni. Bergur segir álagið vera
nokkuð mikið. „Maður nær
stundum að hvíla sig en það fer
lítið fyrir fjölskyldulífinu.”
YFIRLYSING
vegna ummæla Hjördísar Árnadóttur,
félagsmálastjóra Reykjanesbæjar
Vegna ummæla Hjördísar
Arnadóttur, félagsmála-
stjóra Reykjanesbæjar í
Víkurfréttum fimmtudaginn
21. okt. sl. um barnaverndar-
samstarf Sandgerðis, sv. Garðs,
Vatnsleysustrandahrepps og
Reykjancsbæjar, þar sem hún
segir að Reykjanesbær hafi
farið inn í samstarfið af heilum
hug og úr þeim orðum megi
lesa að slíkt hafi ekki verið
raunin af hálfu hinna sveitarfé-
laganna, einnig að „þau (minni
sveitarfélögin) eiga eftir að
standa sig vel því þau hafa ef-
laust lært ýmislegt af samstarf-
inu (við Reykjanesbæ) sem þau
munu búa að”,vill undirrituð
að eftirfarandi komi fram:
Af hálfu Sandgerðisbæjar var
farið inn í samstarfið af heilum
hug og með það að leiðarljósi að
byggja upp markvisst og faglegt
barnaverndarstarf á svæðinu.
Gengið var út frá þvi að um
raunverulegt samstarf jafnrétt-
hárra sveitarfélaga væri að ræða.
Undirrituð telur að það hafi ekki
gengið eftir en ljóst er að
ákveðnir hnökrar, bæði stjómun-
arlegir og ijárhagslegir komu
ífam í samstarfinu.
Sandgerðisbær hefúr rekið skipu-
lagða félagsþjónustu og barna-
verndarnefnd til margra ára og
hefúr verið lögð áhersla á að ráða
fagmenntaða félagsráðgjafa til að
sinna öllu barnaverndarstarfi
sem og annarri félagslegri þjón-
ustu. Það hefúr tekist með góð-
um árangri. Einnig hafa til
nefndarsetu valist fulltrúar sem
hafa áratuga reynslu af vinnslu
slíkra mála.
Því lít ég svo á að Sandgerðisbær
hafi alla buröi til að sinna bama-
verndarstarfi af fagmennsku og
alúð enda voru forsendur sam-
starfs við Reykjanesbæ ekki
byggðar á skorti á faglegum for-
sendurn né úrlausnum heldur
byggðar á fjölda íbúa. Við breyt-
ingu á barnavemdarlögum árið
2002 varð íbúatala sveitarfélags
að vera 1500 að lágmarki að baki
barnaverndarnefnd. Því ákvað
Sandgerðisbær að hefja samstarf
við Reykjanesbæ til reynslu.
Undirrituð leggur ennfremur
áherslu á að sérstaða bamavemd-
armála er mikil sökum eðlis
þeirra og tel því að ekki eigi að
blanda þeim inn í umræður eða
pólitískt dægurþras um samein-
ingannál.
Að lokum þakka ég starfsmönn-
um og fulltrúum barnaverndar-
nefndar í Reykjanesbæ fyrir sam-
starfið og óska þeim velfamaðar
í starfi.
Virðingarfyllst,
Hólmfríöur Skarphéðinsdóttir
formaður Félagsmálaráðs
Sandgcrðisbæjar.
Miðlun frétta og mynda
Meö öflugri fréttavakt Víkurfrétta eru Ijósmyndarar
og blaöamenn til taks allan sólarhringinn!
FRÉTTASÍMINN
(898 2222 f
f r é t t i r
Tveir með grím-
urogeinn með
riffil á Hafnar-
götunni
✓
Aöðrum tímanum
aðfararnótt sun-
nudags veittu Iög-
reglumenn athygli manni
fyrir utan
veitingastað-
inn Paddy's
í Keflavík
sem var með
riffil í hend-
inni. Maður-
inn var undir
áhrifum
áfcngis og var
riffillinn, sem var eftirlíking,
tckinn af honum. Hann
kvað riffilinn vera hluta af
“Hallowcen” búningi sínum
en Halloween-hátíð var á
vcitingahúsinu um helgnia.
Skönuuu fyrir kl. 04 sömu
nótt hafði lögreglan afskipti af
tveimur mönnum á Hafnar-
götu sem voru með andlits-
grímur og stukku í veg fyrir
þifreiðar sem ekið var hjá með
tilheyrandi látbragði. Þeim var
gefið tiltal fyrir þetta háttar-
lag.
Farþegum
lcelandairfjölg-
aði um12,4%
íseptember
Farþegum í áætlunar-
flugi Icelandair fjölg-
aði um 12,4% í sept-
ember. Þeir voru tæp 115
þúsund í september í ár, en
102 þúsund í september í
fyrra. Frá áramótum eru
farþegar Icelandair tæplega
1060 þúsund, eða 18,2%
fleiri en á fyrstu níu mánuð-
um síðasta árs.
Farþegum Flugfélags Islands í
innanlandsflugi fjölgaði um
14,6% í september og hefur
fjölgað urn 15% á fyrstu níu
mánuðum ársins ef miðað er
við sama tímabil í fyrra.
Þá fluttu Flugleiðir-Frakt
25,2% fleiri tonn í september
en í september 2003 og hafa
flutt 29% fleiri tonn á fyrstu
níu mánuðum ársins en á
sama tíma í fyrra.
í september voru svonefndir
fartímar hjá Loftleiðum-
Icelandic 44,4% fleiri en í
sama mánuði á síðasta ári. A
fyrstu níu mánuðum ársins
eru fartímar hjá Loftleiðum-
Icelandic 78,8% fleiri en í
fyrra.
4
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!