Víkurfréttir - 04.11.2004, Blaðsíða 20
> Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum haldinn í Sandgerði um helgina:
Engin niðurstaða í sameiningarmálum
Enginn niðurstaða fékkst
í sameiningarmálum
Suöurnesja á aðalfundi
Sambands sveitarfclaga á
Suðurnesjum. Fundurinn var
haldinn í Fræöasctrinu í
Sandgerði síðasta laugardag.
Skarpar línur eru enn á milli
sveitarfélaganna og hafa
bæjarstjórnir Sandgerðis,
Garðs og Grindavíkur lýst yflr
andstöðu við hugmyndir sam-
einingarnefndar félagsmála-
ráðuneytisins. Vogamenn vilja
skoða málin með opnum hug
og hafa ákveðið að halda íbúa-
fund til að sjá hver vilji íbúana
er. Bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar hefur hins vegar Iýst
yfir að slík sameining sé skyn-
samlcg til lengri tima litið.
A aðalfundinum var staða
sveitafélaganna gagnvart rík-
isvaldinu rædd í þaula og einnig
velt fyrir sér hvert stefndi í
nánustu framtíð. Ragnhildur
Arnljótsdóttir, nýskipaður
ráðuneytisstjóri félagsmála-
ráðuneytisins, tók fyrst til máls
og lagði m.a. áherslu á að efling
sveitarstjómarstigsins væri eitt af
mikilvægustu verkefnunum sem
lægju fyrir ráðuneytinu þessa
dagana. Sameining sveitarfélaga
hefur mikið verið rædd að
undanfornu og vék Ragnhildur
að því máli með því að óska þess
að sveitarfélögin ynnu saman og
horfðu til framtíðar í þessum
efnum. Sagði hún að allar
tillögur í þessa áttina yrðu sem
næstar vilja íbúa sveitarfélag-
anna.
Mesta umhverfismál
sögunnar
Þegar Ragnhildur hafði lokið
máli sínu steig Vilhjálmur
Vilhjálmsson, formaður
Sambands íslenskra sveitar-
félaga, í pontu og flutti sitt ávarp.
Hann taldi upp nokkur af þeim
góðu verkum sem sveitarfélögin
hafa unnið á síðustu árum, m.a.
hafi þau unnið ötullega að mesta
umhverfisátaki sögunnar hvað
varðar sorpurðunarmál,
fráveitukerfi og annað. Þá hafa
sveitarfélögin unnið af miklum
metnaði við að byggja upp
íþróttamannvirki um allt land.
Engu að síður hefur ekki farið
ffamhjá neinum að fjárhagsstaða
sveitarfélaganna hefur orðið
sífellt brothættari og vék
Vilhjálmur orðurn sínum að því
málefhi.
Vilhjálmur velti upp mörgum
tilgátum um orsakir vandans sem
við sveitarfélögum blasir. Kenndi
hann um þáttum eins og yfir-
færslu grunnskólanna til sveitar-
félaganna, vandinn sem
húsaleigukerfið veldur og
kostnaður vegna uppbyggingar
íþróttamannvirkja og annarra
framkvæmda á vegum bæjar-
félaganna. Þá hafi kröfur um
þjónustu aukist mikið og leiðir
það allt til þess að efla þarf
tekjustofna sveitarfélaganna.
„Ekki er hægt að flytja neina
málaflokka til sveitarfélaganna
fyrr en búið er að tryggja
tekjustofnana,” sagði Vilhjálmur
og bætti við að ríkið hefði virkað
áhugalaust i þessum málum.
Einnig taldi hann að sveitar-
félögin ættu helst að bíða með að
taka að sér ný verkefni þar til
búið væri að sameina þau og
sagði raunar sína skoðun að
sveitarfélög ættu að sameinast
burtséð frá verkefhayfirfærslu frá
rikinu. Horfa þyrfti til framtiðar
og þyrftu sveitarfélögin að hafa
þetta ffumkvæði.
Ekki voru allir i salnum sáttir við
þessi ummæli Vilhjálms en
andsvör biðu þar til eftir ávarp
Róberts Ragnarssonar. Hann er
starfsmaður verkefnisstjórnar-
innar sem sér um sameiningar-
mál og flutti hann stutta tölu þar
sem hann kynnti átakið um
eflingu sveitarstjómastigsins.
Róbert er Suðurnesjamaður og
því vel kunnugur staðháttum hér
í sveit og hvaða augum margir
lita ailt sameiningartal. Hann sló
því á létta strengi áður en hann
hóf mál sitt. „Eg þekki mörg
vinaleg andlit hér úti i sal og
vona að þau verði jafn vinaleg
þegar ég er búinn.” Það stóð ekki
á þvi enda má segja að þó að
vissulega hafi menn skipst á
skoðunum sínum í sameiningar-
málum á þessum fundi var ekki
barist eins harkalega og margir
höfðu búist við.
Heildstæð atvinnu- og
þjónustusvæði
Róbert ræddi stuttlega tillögur
verkefnisstjórnarinnar um
breytingu á verkaskiptingu hins
opinbera. Markmiðið með
frekari sameiningu sveitar-
félaganna er að þau myndi heild-
stæð atvinnu- og þjónustusvæði
og séu í stakk búin og nægilega
burðug til að taka á móti
verkefnum. Tillögumar miða að
því að skýra verkaskiptingu hins
opinbera og lagði Róbert áherslu
á að ekki yrði hróflað við skipu-
lagi nema sveitarstjómum þættu
tekjustofhar sem fylgdu ásættan-
legir.
Telur nefndin að þessar tillögur,
ef þær ná fram að ganga, gætu
orðið til góðs og komi til með að
styrkja sveitarfélög á
Suðurnesjum.
Grindavík fullfært um að sjá
um sig
Þegar Róbert hafði lokið máli
sínu kvöddu aðilar í salnum sér
máls og voru ekki allir á sama
máli: Hörður Guðbrandsson,
forseti bæjarstjómar í Grindavík,
gagnrýndi harðlega sumt sem
hafði komið fram í máli
Vilhjálms. Hann velti upp þeirri
spurningu hvort Sambandið væri
of mikið með hugann við að
koma sameiningarmálum í gegn
þegar það ætti i raun að vera að
vinna að því að sveitarfélögin
fengju réttláta sneið af kökunni.
Grindavik væri fullfært um að sjá
um sig sjálft í flestum
málaflokkum og þyrfti ekki á
sameiningu að halda.
Garðmenn á móti
sameiningu
Einar Jón Pálsson, varaforseti
bæjarstjórnar í Garði, tók í
svipaðan streng og Hörður og
mælti með óbreyttu fyrirkomula-
gi. Miðað við vöxtinn og
ffamþróunina í Garði undanfarin
ár væri sveitarfélagið vel í stakk
búið til að taka á móti nýjum
verkefnum með tilheyrandi
tekjustofhum. Hann benti einnig
á að jafnvel þótt allar tillögur
sameiningamefndarinnar gengu í
gegn yrðu engu að síður til mun
minni sveitarfélög en Garður.
Hann var alls ekki sáttur við
skýrslu nefndarinnar og sagði
engu líkara en að ekkert mark
hafi verið tekið á sveitarstjómar-
mönnum á samráðsfundunum
með nefhdinni.
Mikilvægt að kostir séu
skoðaðir
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, vildi að hlut-
aðeigandi kynntu sér kosti
sameiningar og þann hag sem
hann taldi að slíkt gæti skapað.
Hann fór yfir ýmsar tölur sem
sýna sterka eignastöðu sveitar-
félaganna á Suðumesjum, en um
leið hve litlar tekjur þeirra em af
útsvari og fasteignagjöldum.
Tekjuskipting skoðuð
Eitt af þeirn málum sem brann
hvað heitast á sveitarstjórnar-
mönnum var tekjuskipting ríkis
og sveitarfélaga. Jóhann Geirdal,
bæjarfulltrúi frá Reykjanesbæ,
líkti sambandinu við foreldri sem
lætur ungling fá vasapening og
var Jón Gunnarsson, oddviti
Vatnsleysustrandarhrepps og
Alþingismaður, á sama máli.
Minni sveitarfélög stæðu ein
Á meðan fulltrúar meirihluta í
Grindavík, Sandgerði og Garði
stigu í pontu og mæltu gegn
sameiningu gagnrýndi Olafur
Þór Olafsson, bæjarfulltrúi í
Sandgerði, meinta þröngsýni
meirihlutans í sameiningar-
málum. Hann var hræddur um að
minni sveitarfélögin gætu setið
eftir ef Reykjanesbær myndi
eflast eins mikið og gert var ráð
fyrir i framtíðaráætlunum. Hann
vildi meiri umræðu um þetta efni
og að íbúar fengju að heyra báðar
hliðar málsins.
Reynir Sveinsson frá Sandgerði
vísaði ásökunum Ólafs á bug og
sagði að lýðræðisleg vinnubrögð
væru í heiðri höfð i
bæjarstjóminni.
Farið var að nálgast lok ftindar og
lauk Vilhjálmur máli sínu með
því að leggja enn áherslu á
eflingu sveitarstjórnarstigsins og
að sveitarfélögin þyrftu að vinna
saman að sínum hagsmunum.
Að því loknu var fundi slitió eftir
að búið var að samþykkja áiykt-
anir og tilnefha í stjóm SSS. Mál
manna var að fundurinn hafi
gengið vel og lauk aðalfundi með
kvöldfagnaði i Golfskálanum í
Leiru þar sem málin liafa eflaust
verið rædd enn betur.
Nýkjörin stjórn SSS: f.v. Jóhanna Maria Einarsdóttir ritari stjórnar
SSS, Sigurður Jónsson Garði, Guðjón Guðmundsson framkvæmtla-
stjóri SSS, Böðvar Jónsson Reykjanesbæ og formaður stjórnar, Jón
Gunnarsson Vogum, Hörður Guðbrandsson Grindavík ogóskar
Gunnarsson úr
www.lyfja.is
Haustfagnaður
félags eldri borgara
á Suðurnesjum
Veröur haldinn í boöi Lyfju í Stapanum,
sunnudaginn 7. nóvember frá kl. 15-18.
Boöið veröur upp á:
• Kaffihlaðborð
• Harmónikkutónlist
■ Fræðslu um heilsu og heilbrigöi
Sjáumst hress og kát íStapanum á sunnudag.
Starfsfólk Lyfju Keflavík, sími 421 6565
Hb LYFJA
20
VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!