Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.11.2004, Side 20

Víkurfréttir - 04.11.2004, Side 20
> Aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum haldinn í Sandgerði um helgina: Engin niðurstaða í sameiningarmálum Enginn niðurstaða fékkst í sameiningarmálum Suöurnesja á aðalfundi Sambands sveitarfclaga á Suðurnesjum. Fundurinn var haldinn í Fræöasctrinu í Sandgerði síðasta laugardag. Skarpar línur eru enn á milli sveitarfélaganna og hafa bæjarstjórnir Sandgerðis, Garðs og Grindavíkur lýst yflr andstöðu við hugmyndir sam- einingarnefndar félagsmála- ráðuneytisins. Vogamenn vilja skoða málin með opnum hug og hafa ákveðið að halda íbúa- fund til að sjá hver vilji íbúana er. Bæjarstjórn Reykja- nesbæjar hefur hins vegar Iýst yfir að slík sameining sé skyn- samlcg til lengri tima litið. A aðalfundinum var staða sveitafélaganna gagnvart rík- isvaldinu rædd í þaula og einnig velt fyrir sér hvert stefndi í nánustu framtíð. Ragnhildur Arnljótsdóttir, nýskipaður ráðuneytisstjóri félagsmála- ráðuneytisins, tók fyrst til máls og lagði m.a. áherslu á að efling sveitarstjómarstigsins væri eitt af mikilvægustu verkefnunum sem lægju fyrir ráðuneytinu þessa dagana. Sameining sveitarfélaga hefur mikið verið rædd að undanfornu og vék Ragnhildur að því máli með því að óska þess að sveitarfélögin ynnu saman og horfðu til framtíðar í þessum efnum. Sagði hún að allar tillögur í þessa áttina yrðu sem næstar vilja íbúa sveitarfélag- anna. Mesta umhverfismál sögunnar Þegar Ragnhildur hafði lokið máli sínu steig Vilhjálmur Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitar- félaga, í pontu og flutti sitt ávarp. Hann taldi upp nokkur af þeim góðu verkum sem sveitarfélögin hafa unnið á síðustu árum, m.a. hafi þau unnið ötullega að mesta umhverfisátaki sögunnar hvað varðar sorpurðunarmál, fráveitukerfi og annað. Þá hafa sveitarfélögin unnið af miklum metnaði við að byggja upp íþróttamannvirki um allt land. Engu að síður hefur ekki farið ffamhjá neinum að fjárhagsstaða sveitarfélaganna hefur orðið sífellt brothættari og vék Vilhjálmur orðurn sínum að því málefhi. Vilhjálmur velti upp mörgum tilgátum um orsakir vandans sem við sveitarfélögum blasir. Kenndi hann um þáttum eins og yfir- færslu grunnskólanna til sveitar- félaganna, vandinn sem húsaleigukerfið veldur og kostnaður vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja og annarra framkvæmda á vegum bæjar- félaganna. Þá hafi kröfur um þjónustu aukist mikið og leiðir það allt til þess að efla þarf tekjustofna sveitarfélaganna. „Ekki er hægt að flytja neina málaflokka til sveitarfélaganna fyrr en búið er að tryggja tekjustofnana,” sagði Vilhjálmur og bætti við að ríkið hefði virkað áhugalaust i þessum málum. Einnig taldi hann að sveitar- félögin ættu helst að bíða með að taka að sér ný verkefni þar til búið væri að sameina þau og sagði raunar sína skoðun að sveitarfélög ættu að sameinast burtséð frá verkefhayfirfærslu frá rikinu. Horfa þyrfti til framtiðar og þyrftu sveitarfélögin að hafa þetta ffumkvæði. Ekki voru allir i salnum sáttir við þessi ummæli Vilhjálms en andsvör biðu þar til eftir ávarp Róberts Ragnarssonar. Hann er starfsmaður verkefnisstjórnar- innar sem sér um sameiningar- mál og flutti hann stutta tölu þar sem hann kynnti átakið um eflingu sveitarstjómastigsins. Róbert er Suðurnesjamaður og því vel kunnugur staðháttum hér í sveit og hvaða augum margir lita ailt sameiningartal. Hann sló því á létta strengi áður en hann hóf mál sitt. „Eg þekki mörg vinaleg andlit hér úti i sal og vona að þau verði jafn vinaleg þegar ég er búinn.” Það stóð ekki á þvi enda má segja að þó að vissulega hafi menn skipst á skoðunum sínum í sameiningar- málum á þessum fundi var ekki barist eins harkalega og margir höfðu búist við. Heildstæð atvinnu- og þjónustusvæði Róbert ræddi stuttlega tillögur verkefnisstjórnarinnar um breytingu á verkaskiptingu hins opinbera. Markmiðið með frekari sameiningu sveitar- félaganna er að þau myndi heild- stæð atvinnu- og þjónustusvæði og séu í stakk búin og nægilega burðug til að taka á móti verkefnum. Tillögumar miða að því að skýra verkaskiptingu hins opinbera og lagði Róbert áherslu á að ekki yrði hróflað við skipu- lagi nema sveitarstjómum þættu tekjustofhar sem fylgdu ásættan- legir. Telur nefndin að þessar tillögur, ef þær ná fram að ganga, gætu orðið til góðs og komi til með að styrkja sveitarfélög á Suðurnesjum. Grindavík fullfært um að sjá um sig Þegar Róbert hafði lokið máli sínu kvöddu aðilar í salnum sér máls og voru ekki allir á sama máli: Hörður Guðbrandsson, forseti bæjarstjómar í Grindavík, gagnrýndi harðlega sumt sem hafði komið fram í máli Vilhjálms. Hann velti upp þeirri spurningu hvort Sambandið væri of mikið með hugann við að koma sameiningarmálum í gegn þegar það ætti i raun að vera að vinna að því að sveitarfélögin fengju réttláta sneið af kökunni. Grindavik væri fullfært um að sjá um sig sjálft í flestum málaflokkum og þyrfti ekki á sameiningu að halda. Garðmenn á móti sameiningu Einar Jón Pálsson, varaforseti bæjarstjórnar í Garði, tók í svipaðan streng og Hörður og mælti með óbreyttu fyrirkomula- gi. Miðað við vöxtinn og ffamþróunina í Garði undanfarin ár væri sveitarfélagið vel í stakk búið til að taka á móti nýjum verkefnum með tilheyrandi tekjustofhum. Hann benti einnig á að jafnvel þótt allar tillögur sameiningamefndarinnar gengu í gegn yrðu engu að síður til mun minni sveitarfélög en Garður. Hann var alls ekki sáttur við skýrslu nefndarinnar og sagði engu líkara en að ekkert mark hafi verið tekið á sveitarstjómar- mönnum á samráðsfundunum með nefhdinni. Mikilvægt að kostir séu skoðaðir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, vildi að hlut- aðeigandi kynntu sér kosti sameiningar og þann hag sem hann taldi að slíkt gæti skapað. Hann fór yfir ýmsar tölur sem sýna sterka eignastöðu sveitar- félaganna á Suðumesjum, en um leið hve litlar tekjur þeirra em af útsvari og fasteignagjöldum. Tekjuskipting skoðuð Eitt af þeirn málum sem brann hvað heitast á sveitarstjórnar- mönnum var tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga. Jóhann Geirdal, bæjarfulltrúi frá Reykjanesbæ, líkti sambandinu við foreldri sem lætur ungling fá vasapening og var Jón Gunnarsson, oddviti Vatnsleysustrandarhrepps og Alþingismaður, á sama máli. Minni sveitarfélög stæðu ein Á meðan fulltrúar meirihluta í Grindavík, Sandgerði og Garði stigu í pontu og mæltu gegn sameiningu gagnrýndi Olafur Þór Olafsson, bæjarfulltrúi í Sandgerði, meinta þröngsýni meirihlutans í sameiningar- málum. Hann var hræddur um að minni sveitarfélögin gætu setið eftir ef Reykjanesbær myndi eflast eins mikið og gert var ráð fyrir i framtíðaráætlunum. Hann vildi meiri umræðu um þetta efni og að íbúar fengju að heyra báðar hliðar málsins. Reynir Sveinsson frá Sandgerði vísaði ásökunum Ólafs á bug og sagði að lýðræðisleg vinnubrögð væru í heiðri höfð i bæjarstjóminni. Farið var að nálgast lok ftindar og lauk Vilhjálmur máli sínu með því að leggja enn áherslu á eflingu sveitarstjórnarstigsins og að sveitarfélögin þyrftu að vinna saman að sínum hagsmunum. Að því loknu var fundi slitió eftir að búið var að samþykkja áiykt- anir og tilnefha í stjóm SSS. Mál manna var að fundurinn hafi gengið vel og lauk aðalfundi með kvöldfagnaði i Golfskálanum í Leiru þar sem málin liafa eflaust verið rædd enn betur. Nýkjörin stjórn SSS: f.v. Jóhanna Maria Einarsdóttir ritari stjórnar SSS, Sigurður Jónsson Garði, Guðjón Guðmundsson framkvæmtla- stjóri SSS, Böðvar Jónsson Reykjanesbæ og formaður stjórnar, Jón Gunnarsson Vogum, Hörður Guðbrandsson Grindavík ogóskar Gunnarsson úr www.lyfja.is Haustfagnaður félags eldri borgara á Suðurnesjum Veröur haldinn í boöi Lyfju í Stapanum, sunnudaginn 7. nóvember frá kl. 15-18. Boöið veröur upp á: • Kaffihlaðborð • Harmónikkutónlist ■ Fræðslu um heilsu og heilbrigöi Sjáumst hress og kát íStapanum á sunnudag. Starfsfólk Lyfju Keflavík, sími 421 6565 Hb LYFJA 20 VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.