Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.2006, Side 2

Víkurfréttir - 23.02.2006, Side 2
Skarst á höfði og fluttur til Reykjavíkur Lögregla og sjúkralið var kallað að veitingastað í Kefla- vík á aðfaranótt fimmtu- dags, en fyrir utan staðinn hafði maður fallið og skorist nokkuð á höfði. Var maðurinn fluttur á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja þar sem gert var að sárum hans. Við svo búið var hann fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavíkur þar sem hann hafði líklega tekið inn ein- hver lyf áður en slysið átti sér stað, segir í dagbók lögreglu. Hafnaði á Ijósastaur eftir 32 metra hemlun Laust eftir hádegi á mánudag fékk lögreglan í Keflavík til- kynningu um að ekið hafi verið á ljósastaur við Baug- holt í Keflavík. Bifreiðin var óökufær eftir áreksturinn og var flutt á brott með krana- bifreið. Tveir voru í bifreið- inni og meiddust þeir ekki. Bifreiðin hefur líkast til verið nokkuð yfir leyfiiegum há- markshraða þar sem bremsu- förin mældust 32 metrar. Landsbankinn AAUNDI Sparisjóðurinn má líka taka við mtnum skuldum t Landsbankanum í Sandgerði.. Hitaveita Suðurnesja vill bora í Reykjanesfólkvangi Hitaveita Suðurnesja hefur sótt um leyfi til Umhverfisstofnunar til að hefja til- raunaboranir á 300 ferkílómetra svæði á Reykjanesi, sem að hluta nær inn á Reykjanes- fólkvang. Verið er að leita að bestu stöðunum til að reisa virkjanir fyrir álver Norðuráls í Helguvik. Nú þegar hefur Hitaveitan fengið framkvæmdaleyfi í Trölladyngju og hefur borað þar eina holu. Stjórn Reykjanesfólkvangs óttast afleiðingarnar og vill að svæðinu verði þyrmt. Landvernd er að vinna að ályktun um málið. Kastað upp við landsteina Loðnubátarnir þurfa ekki að sækja aflann langt þessa dagana þar sem Ijósmyndari Víkurfrétta rak augun í nokkur skip rétt utan við Helguvik. Loðnan hefur verið að ganga vestur með suðurströndinni og er nú komin inn í Faxaflóa. Undir aldri í bíltúr • • Okumaður sem ekki hafði öðlast öku- réttindi vegna ungs aldurs var stöðvaður af lög- reglu á sunnudagskvöld. Hafði hann tekið bifreiðina heiman frá sér án vitneskju foreldra sinna. Litlar skemmdir íbræðslubruna Eldur kom upp í bræðsf- unni í Helguvík á sunnu- dag þegar verið var að keyra upp vélarnar. Eldurinn blossaði upp í mjölkæli en starfsmenn brugðust skjótt við og höfðu stjórn á eldinum þar til Brunavarnir Suðurnesja komu á svæðið. Að sögn Eggerts Einars- sonar, verksmiðjustjóra, voru skemmdir óverulegar og engin slys á fólki. Þá gerði hann ráð fyrir að einungis yrðu um nokk- urra klukkustunda tafir þar til vinnsla gæti hafist. Nótaskipið Súlan EA 300 laddaðiá fimmtudag fyrstu loðnunni i Helguvik sem kemur á land á Suðurnesjum á þessari vertíð. Súlan var með fuflfermi, um 930 950 tonn, eftir að hafa verið að veiðum út af Vik i Mýrdal. Öll loðnan sem Súlan færði á land fer í bræðslu í Helgu vík en loðnan kom fyrir Reykjanesið nokkru siðar og eru batarnir nú við veiðar i Faxaflóa. Sandgerði: SpKef tekur við afgreiðslu Landsbankans í Sandgerði Landsbanki íslands og Sparisjóðurinn í Kefla- vík hafa gert samkomu- lag um kaup Sparisjóðsins á afgreiðslu Landsbankans í Sandgerði. Sparisjóðurinn mun taka við öllum eignum og skuldum afgreiðslunnar þann 5. mars n.k. Sparisjóðurinn mun einnig taka við samningi um póstafgreiðslu í Sandgerði sem Landsbankinn og íslandspóstur eru aðilar að. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá bönkunum. Til hægðarauka fyrir viðskipta- vini afgreiðslunnar munu ein- ungis bankanúmer þeirra breyt- ast en öll reikningsnúmer hald- ast óbreytt. Sparisjóðurinn mun senda viðskiptavinum nánari upplýsingar um framkvæmdina á næstu dögum. Engar uppsagnir starfsmanna í tengslum við söluna eru fyr- irhugaðar og hefur núverandi starfsmönnum Landsbankans í Sandgerði verið boðin störf hjá Sparisjóðnum. 2 IVÍKURFRÉTTIR I 8. TÖLUBLAÐ i 27. ARGANGUR VÍKURFRÉTTiR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTiR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.