Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.2006, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 23.02.2006, Blaðsíða 4
Skemmtanir AFGREIÐSLUSTARF Laust er til umsóknar starf í verslun okkar í Reykjanesbæ. Um er að ræða 75% starf. Umsóknum skal skilað í verslunina að Hafnargötu 25, Reykjanesbæ. • • ÚTIVIST&SPORT shi Hafnargata 25 - Keflavík - s: 421 3322 Verslnmarhúsnœði óskast Óskum eftir að leigja eða kaupa 40-100m2 verslunarhúsnæði við Hafnargötu. Upplýsingar í síma 897 2323. Öll almenn lóðaþjónusta Vélavinna og hellulagnir Einnig pallasmíði Gröfum einnig fyrir nýjum húsum. Sigurður Ólafsson s:822 3650 Iðavöllum 7, 230 Reykjanesbær Sfmi 421 7090 Fax 421 7091 E-mail: flg@simnet.is Opið: mán. - fös. 9-12 & 13-18 Gólfflísar, veggflísar, útiflísar, baðflísar, Sísalteppi, stigateppi, heimilisteppi, Viðarparket, plastparket, Linoleumdúkar, vínyldúkar, korkflísar og að sjálfsögðu öll fylgiefni. Verið velkomin í verslun okkar VIKURFRÉTTIR i 8.TÖLUBLAÐ I 27. ÁRGANGUR Eí Þorrablót Keflvíkinga slegið af Ekkert verður af fyrir- huguðu þorrablóti sem knattspyrnu- og körfuknattleiksdeildir Kefla- víkur höfðu ráðgert að halda í sal íþróttahússins við Sunnu- braut þann 25. janúar næst- komandi. Ástæðan er sú að framkvæmdaraðilar fengu ekki tilskilin leyfi til að halda skemmtunina, þar sem um 500 manns áttu að koma saman. Guðmundur Steinarsson, fyr- irliði knattspyrnuliðs Keflvík- inga og einn af aðstandendum skemmtunarinnar, sagði í sam- tali við Víkurfréttir að þessi málalok væru mikil vonbrigði. „Við erum bara hundfúlir þar sem þetta er okkar stærsta fjáröflun fyrir æfingaferðum erlendis. Við vorum búnir að sækja um öll leyfi til lögregl- unnar og þeir sannfærðu okkur um að þetta yrði ekki neitt mál.” Sigmundur Eyþórsson, slökkvi- liðsstjóri Brunavarna Suður- nesja, tók húsnæðið út að ósk lögreglu og sagði aðspurður að húsnæðið væri afar óhent- ugt með tilliti til brunavarna. „Húsið er einfaldlega ekki hannað fyrir skemmtanahald og þar eru ekki nægjanlegar brunavarnir fyrir 500 manna samkomu. Það er margt sem kemur þar inn en meðal ann- ars fengum við ekki nægar upplýsingar frá aðstandendum skemmtunarinnar.” Guðmundur er einnig ósáttur við að Keflvíkingar hafi ekki fengið nægilegar upplýsingar um hverju þyrfti að skiía til yf- irvalda. „Svo skiljum við ekki hvers vegna svona skemmtana- hald er leyfilegt í íþróttahúsum á öðrum svæðum en ekki á Suð- urnesjum. Þessi mál virðast ekki vera á hreinu og það þarf að taka þau til endurskoðunar.” Þorrablótið var því blásið af þetta árið, en Guðmundur segir að þeir muni koma til með að halda blót að ári. „Ég vil bara biðja þá sem hafa orðið fyrir ónæði, til dæmis þá sem voru búnir að panta miða eða ráða sig í vinnu um kvöldið, afsök- unar. Við munum hins vegar halda þorrablót á næsta ári hvort sem það verður hér eða í öðru bæjarfélagi.” Sveitarfélagið Vogar: ÍBÚAFUNDUR UM SKIPULAGSMÁL í VOGUM Bæjaryfirvöld í Vogum héldu í síðustu viku ibúafund um aðalskipulagsmál um- hverfis bæinn. Um 40 manns mættu á fundinn sem fór fram í Tjarnasal í Stóru-Voga- skóla. Fulltrúar frá Landslagi fóru yfir tillögur að nýju að- alskipulagi umhverfis Voga og bæjarstjóri fór yfir þjónustuþörf sem fylgir í kjölfar Ijölgunar íbúa. I tillögunum er gert ráð fyrir að byggðar verði um 400 íbúðir, norðan Iþróttamiðstöðvar og um 80 íbúðir á miðbæjarsvæði sem áætlað er að verði staðsett á núverandi vatnstökusvæði bæjarins (austan Stapavegar). Á heimasíðu Voga kemur fram að allmargir hvöttu sér hljóðs og voru um- ræður bæði líflegar og málefnalegar. Fulltrúar Landslags, forseti bæjarstjórnar og bæjarstjóri sátu fyrir svörum. Þetta var fyrsti fundurinn um aðalskipulagsmál. Stefnt er að því að halda annan fund um miðjan mars. Á þeim fundi er gert ráð fyrir að tekið verði til umræðu aðalskipulag bæjarfélagsins í heild. Þeir sem vilja hafa áhrif á skipulagsferlið eru hvattir til að nýta sér þann rétt. Á heimasíðu bæjarins er hægt að nálgast skipulagstillögurnar og nokkur súlurit sem sýna hugsanlega þróun byggðar. Einnig er hægt að fá uppdrátt af tillög- unum á skrifstofu bæjarins, fyrir þá sem kjósa það frekar. VÍKURFRÉTTIR A NETIMU • www.vf.is • LESTU MÝIUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.