Víkurfréttir - 23.02.2006, Side 15
SVART
& SYKURLAUST
Samsóknin tilbúin
Nú má gera ráð fyrir því að fjör
fari að færast í kosningabaráttu í
ljósi þess að aðeins
eru um 3 mánuðir
til sveitarstjórnar-
kosninga. Fram-
boð Framsóknar
og Samfylkingar er
tilbúið og verður það kynnt í fé-
lögunum á næstu dögum. Ekki
kom margt á óvart nema ef vera
skyldi innkoma Reynis Valbergs-
sonar, fyrrverandi fjármálastjóra
Reykjanesbæjar í baráttusæti list-
ans. Eysteinn Jónsson, aðstoð-
armaður landbúnaðarráðherra
leysir Kjartan Má Kjartansson,
bæjarfulltrúa Framsóknar af
hólmi en hann baðst undan því
að vera í einu af toppsætunum
sökum anna.
Ýmis nöfn hafa heyrst á fram-
boðinu en Sam-sókn er eitt
þeirra. Kannski orð að sönnu
og skýra sig sjálf. Alla vega mun
floldcurinn þurfa að sækja til að
ná völdum af núverandi meiri-
hluta sem fékk góða úttkomu í
skoðanakönnun Tíðinda sem
nú eru komin í eigu Halldórs
Leví Björnssonar, en hann hefur
áður starfað fyrir nokkra hér-
aðsmiðla á Suðurnesjum eins
og blaðið Reykjanes, Suðurnesja-
fréttir/Nýjan Miðil og lítillega
fyrir Tíðindi áður en hann
keypti blaðið af Grágás. Þótti
ýmsum kaup hans á Tíðindum
sem hafa lengi verið mikil „Ótíð-
indi” fyrir núverandi meirihluta
koma á góðum tíma fýrir meiri-
hlutann, nú rétt fyrir kosningar.
Leví hefur undanfarið selt vín-
föng í félagi við forseta bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar, Björk
Guðjónsdóttur en hefur sem
sagt helt sér út í fjölmiðlunina
aftur enda baktería sem erfitt er
að losna við eins og hann sagði
einhvers staðar...
íhaldið eins?
Ekki er von á mikilli breytingu
á röðun efstu manna á lista Sjálf-
stæðismanna í Reykjanesbæ
fýrir komandi kosn-
ingar. Hefur heyrst
að jafnvel sjö efstu
sætin verði skipuð
sömu aðilum og
fyrir síðustu kosn-
ingar en þá vann flokkurinn
hreinan meirihluta í bæjarfélag-
inu. Það er algengt í íþróttum að
breyta ekki sigurliði og kannski
ekki óeðlilegt að íhaldið geri það
nú enda margir á því að vel hafi
verið staðið að málum í bænum
á kjörtímabilinu.
Velja bæjarstjórn ekki
bæjarstjóra
í grein sem Eysteinn Jónsson,
annar maður á nýjum lista
Framsóknar og Samfylkingar
skrifar í VF í dag segir hann að
verið sé að velja bæjarstjórn en
ekki bæjarstjóra. Þar segir hann
líka að hann sé fylgjandi því að
sveitarfélagið ráði sér faglegan
rekstrarmann til að reka sveit-
arfélagið frá degi til dags í stað
stjórnmálamanns. Það er þá á
hreinu að nýi Samsóknar-listinn
mun ekki þjóða bæjarststjóra-
efni...
□
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar:
Dagur tónlist-
arskólanna
-Tónfræðakeppnin Kontrapunktur
Hinn árlegi Dagur tón-
listarskólanna verður
haldinn hátiðlegur
laugardaginn 25. febrúar n.k.
Löng hefð er orðin fyrir því
að tileinka íslenskum tónlistar-
skólum síðasta laugardag febr-
úarmánaðar og er tilgangur
þess dags er að vekja athygli á
starfsemi tónlistarskólanna í
landinu. Af því tilefni efna tón-
listarskólar til margvíslegrar
dagskrár fyrir almenning.
í tilefni dagsins, þá stendur
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar,
eins og í fyrra, fyrir keppni í tón-
fræðagreinum meðal nemenda
skólans, ásamt þekkingu á hljóð-
færum og almennri þekkingu
í tónlist. Keppnin ber heitið
Kontrapunktur og er það nafn
fengið frá tónlistarkeppni, sem
haldin var af norrænu sjónvarps-
stöðvunum fyrir fáum árum.
I keppninni að þessu sinni,
verður tekið í notkun nýtt, sér-
smíðað fjölborða bjöllukerfi
til að nota í bjölluspurninga-
flokknum.
Kontrapunktur er liðakeppni og
er hvert lið skipað nemendum
hvers tónfræðabekks í skól-
anum.
Keppnin fer fram á sal Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja frá kl.
13-18 og keppt verður í 3 riðlum
á eftirfarandi tímum:
1. riðill keppir kl. 13, 2. riðill
keppir kl. 15, 3. riðill keppir
kl. 17.
Keppni í hverjum riðli stendur
yfir í u.þ.b. klukkustund og fær
hvert sigurlið veglega viðurkenn-
ingu fyrir frammistöðuna.
Allir eru hjartanlega velkomnir
að fylgjast með keppninni.
HLJOÐMON A NJARÐARBRAUT
Verið er að vinna við
uppsetningu á svo-
kallaðri hljóðmön við
Njarðarbraut í Reykjanesbæ.
Ákveðið var að setja upp hljóð-
mönina til að skýla íbúum við
hljóðmengun sem berst frá um-
ferðinni á Njarðarbraut en hún
var langt yfir settum mörkum
heilbrigðiseftirlitsins. Hljóð-
mönin eða hljóðveggurinn á að
draga úr hávaða í þeim íbúðum
sem snúa að Njarðarbraut.
„Hljóðmönin verður ekki há en
þetta er partur af framkvæmd-
unum sem hafist var á í fyrra við
Njarðarbrautina,” sagði Viðar
Már Aðalsteinsson, forstöðu-
maður umhverfis- og skipulags-
sviðs Reykjanesbæjar, í samtali
við Víkurfréttir.
Fyrst var komið fyrir kjarna úr
Helguvík á hljóðmöninn. Nú
er verið að hlaða hana úr holta-
grjóti og síðar verður gróður-
sett á henni. Gert er ráð fyrir
að framkvæmdum við Njarðar-
brautina ljúki fyrir 17. júní.
Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæ - s: 421 8808 - fax: 421 8818 - bilahusid@bilahusid.is - www.bilahusid.is
NISSAN NAVARA 35"
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VIKURFRÉTTIR FIMMTUDAGURINN 23. FEBRÚAR 20061 15