Víkurfréttir - 23.02.2006, Page 19
Steinþór Jónsson, bæjarfulltrúi skrifar:_
Bylting í umhverfís-
málum í Reykjanesbæ
í vetrarsól!
Eysteinn Jónsson, skrifar um málefni Reykjanesbæjar:
Hverjum treystir þú best til að
ráðstafa skattpeningum þínum?
Nú eru einungis rétt
rúmir 90 dagar til
sveitarstjórnarkosn-
inga í landinu.
Kosið verður
laugardag-
inn 27. maí í
öllum sveitar-
félögum
ins.
Hér í Reykja-
nesbæ er ljóst
að næstu kosningar verða sögu-
legar þar sem í fyrsta skipti í
sögu sveitarfélagsins munu
félagshyggjuöflin bjóða fram
sameiginlegan lista þar sem
óflokksbundnum íbúum Reykja-
nesbæjar er einnig boðið að
taka þátt í mótun sveitarfélags-
ins. Kosningarnar snúast í raun
og veru um hverjum kjósendur
treysta best til að ráðstafa skatt-
peningum sínum, þ.e. tekjum
sveitarfélagsins í þágu íbúanna.
Breiður hópur fólks býður
sig fram til að vinna í
okkarþágu
Ekki er enn ljóst hvaða einstak-
lingar munu skipa framboðs-
lista hins nýja framboðs en
flokkarnir sem bera ábyrgð á
framboðinu skipuðu uppstill-
ingarnefnd sem nú hefur lokið
störfum og skilaði hún tillögu
sinni til formanna beggja flokk-
anna nú í vikunni. Nú er ein-
ungis eftir að boða til félags-
funda hjá báðum flokkum og
taka afstöðu til tillögu uppstill-
ingarnefndar. Ljóst er að breiður
hópur fólks hefur ákveðið að
bjóða fram starfskrafta sína
fyrir okkar ágæta bæjarfélag og
er það fagnaðarefni.
Mikilvægi sveitarstjórn-
arstigsins hefur aukist
og mun halda áfram að
aukast
Mikilvægi sveitarstjórnarstigs-
ins í stjórnsýslu á Islandi hefur
verið að aukast undanfarin ár
með tilfærslu verkefna frá ríki
til sveitarfélaga. Grunnskólarnir
eru gott dæmi um þessa þróun,
en ljóst er að vilji er fyrir því
bæði hjá ríkinu og sveitarfélög-
unum að færa fleiri verkefni
frá ríkinu til sveitarfélaganna.
Nefnd á vegum félagsmálaráð-
herra hefur starfað að þessum
málum og er formaður nefndar-
innar Hjálmar Árnason alþingis-
maður okkar Suðurnesjamanna.
Með auknum verkefnum sveit-
arfélaga er ljóst að mikilvægi
sveitarstjórnarstigsins hefur
aukist verulega og mun halda
áfram að aukast eftir því sem
verkefnum fjölgar. Hugmyndir
eru m.a. um að færa alla þjón-
ustu við aldraða og fatlaða til
sveitarfélaganna auk heilsugæsl-
unnar og jafnvel framhaldsskóla-
stigið. Markmiðið með tilfærslu
verkefnanna er fyrst og fremst
að bæta þjónustu við íbúa og
eru grunnskólarnir gott dæmi
um vel heppnað verkefni sem
á betur heima hjá sveitarfé-
lögunum. Það er ljóst að með
auknum verkefnum sveitarfé-
laganna færist ábyrgð einstakra
málaflokka nær okkur sem
njótum þjónustunnar en sam-
hliða því bjóðast okkur tækifæri
til að hafa mun meiri áhrif á
rekstur málaflokkanna og þá
þjónustu sem sveitarfélagið
veitir okkur. Því verður þátttaka
okkar í mótun samfélagsins æ
mikilvægari og mikilvægi þess
að breiður hópur fólks með
sterka skírskotun til samfélags-
ins og góða þekkingu á þörfum
þess veljist til að móta stefnuna
verður enn mikilvægara.
Bæjarstjórnar en ekki
„bæjarstjórakosningar”
Öllum ætti að vera ljóst á þessu
hve mikilvægt það er að breiður
hópur fólks veljist til starfa
fyrir sveitarfélagið við stefnu-
mótun þess. I komandi sveitar-
stjórnarkosningum fáum við
tækifæri til þess að kjósa þann
hóp fólks sem við treystum
best til að móta stefnu sveitarfé-
lagsins í einstökum málum og
framfylgja henni með sem hag-
kvæmustum hætti. Mikilvægt
er að breiður hópur fólks með
sterka skírskotun til samfélags-
ins veljist til þessarra starfa.
Við megum ekki gleyma því að
við erum að velja okkur bæjar-
stjórn en ekki „bæjarstjóra". Ég
persónulega hef verið hlynntur
því að sveitarfélagið ráði sér fag-
legan rekstrarmann til að reka
sveitarfélagið frá degi til dags í
stað pólitíkus. Þetta módel er
víða þekkt á Norðurlöndum þar
sem sveitarfélög hafa farið þá
leið að ráða til sín faglegan fram-
kvæmdastjóra til að annast dag-
legan rekstur sveitarfélagsins.
I slíkum tilfellum hefur forseti
bæjarstjórnar tekið við auknum
verkefnum er varða það að stýra
fundum og mæta á opinberar
samkomur fyrir hönd sveitarfé-
lagsins og halda góðar ræður
við hátíðleg tilefni.
Eysteinn Jónsson
Formaöur Fulltrúaráðs
Framsóknatfélaganna
Sóknartækifæri Reykja-
nesbæjar liggur í styrk
bæjarfélagsins. Þegar
fólk vel ur
sér stað til
að búa á eru
margir þættir
sem horft er
til svo sem at-
vinnuöryggi,
þjónustustig,
aðbúnaður
í skólum, iþróttaaðstaða svo
ekki sé minnst á fallegt og að-
Iaðandi umhverfi. Það er því
ekki að ástæðulausu að íbúum
Reykjanesbæjar fari nú ört
fjölgandi enda flestir þeir
þættir sem fjölskyldum er um-
hugað um hér í góðum farvegi.
Umhverfismál er mikilvægur
þáttur í nútíma þjóðfélagi en
með góðum árangri í þessum
málaflokki má auðga mannlíf og
lífsgæði til muna, auka atvinnu-
tækifæri og bæta útivistarmögu-
leika. Gríðarlegt átak hefur
verið unnið á síðustu árum í um-
hverfismálum í Reykjanesbæ og
hafa íbúar bæjarins yfir mörgu
að gleðjast í þeim efnum enda
hefur umhverfi bæjarins tekið
miklum stakkaskiptum á mjög
skömmum tíma.
Öll viljum við hafa fallegt og að-
laðandi umhverfi. Fegrun bæjar-
ins af hálfu bæjaryfirvalda hefur
verið markviss og hnitmiðuð
síðustu ár. Hvatning til einstak-
linga og fyrirtækja til fegrunar
húsa og nánasta umhverfis
hefur þegar skapað bæjarfélag
þar sem gott er að búa og gott
heim að sækja.
Lokið við mörg verkefni á
kjörtímabilinu
Frá ómunatíð hefur umhverfi
frá sjávarsíðu bæjarins ekki
verið okkur til framdráttar.
Klæðning strandlengjunnar
frá glæsilegu Keflavíkurbergi í
norðri að þverhníptum sjávar-
björgum Stapans er einstakt stór-
verkefni sem þegar setur mikinn
svip á umhverfi bæjarins bæði
frá sjó og landi. Með þessari
miklu framkvæmd hefur okkur
bæði tekist að bæta sjónrænt
útlit strandarinnar um leið og
öflugir sjóvarnargarðar munu
verja landið ágangi sjávar til
Iangrar framtíðar. Aðalaðkoma
frá tvöfaldri Reykjanesbraut til
bæjarins verður við Fitjar en
þær eru í dag glæsileg útvistar-
paradís þar sem fuglalífið fær að
njóta sín.
Um fáar framkvæmdir hefur
meira verið rætt á síðustu árum
en endurbyggingu Hafnargöt-
unnar sem um árabil hefur verið
þyrnir í augum. Löngu tímabært
var að hefja þessar mikilvægu
framkvæmdir sem eru ekki síst
í þágu frekari uppbyggingar í
verslun og þjónustu. Framtíðar-
áform um verslunarmiðstöð í
miðbænum þykja ekki lengur
fjarlægur draumur í tengslum
við lifandi aðalgötu á lífæðinni
og skemmtilegan bæjarbrag.
Ég fullyrði að ekkert sveitarfé-
lag á Islandi hefur tekið eins
miklum breytingum í umhverfis-
málum og Reykjanesbær hefur
gert á síðustu árum. Auk þess
sem að ofan greinir má nefna
lagfæringu gangstétta og opinna
svæða með göngustígakerfi sem
nú er að mestu frágengið, upp-
byggingu gamla bæjarins og
Duushúsa og nánasta umhverfis.
Þá má nefna árlega hreinsunar-
daga að vori og nýtt átak bæj-
arins í að fjarlæga járnrusl en
á síðustu tveimur árum voru á
annað þúsund tonn af járnrusli
fjarlægt úr bæjarlandinu.
Það er mat undirritaðs að of-
angreindar framkvæmdir séu
bænum og bæjarbúum öllum
til mikils sóma. Við getum
verið stolt af umhverfi okkar
en ætlum að halda áfram góðu
verki og munum fylgja eftir já-
kvæðri þróun af fullu afli.
Steinþór Jónsson
bœjarfulltrúi
f I
% 1
Orkudans
-fylltu líkamann af kraftil
Föstudaga klukkan 19:30
Nómskei& hefst 3. mars
Púl/inn
œvintýrahús SondgerSisbæ
Vikurbrout 11 Simor: 423 7Í00 vVWW.pulsinn.is
STÆRSTA FRÉTTA- 0G AUGLÝSINGABIAÐIÐ Á SUÐUSNESJUM
VÍKURFRÉTTIR i FIMAATUDAGURINN 23. FEBRÚAR 2006| 19