Víkurfréttir - 23.02.2006, Blaðsíða 21
,*,Eg fer mjög sáttur
frá Eimskip enda eru
skipakomum fækkaði og togara-
landanir heyrðu sögunni til, þró-
aðist starfsemin úr því að vera
fyrst og fremst skipaafgreiðsla í
vaxandi mæli yfir í það að vera
alhliða flutningafyrirtæki í sam-
starfi við marga aðila, t.d. Eim-
skip, Flytjanda, Atlantsskip o.fl.
Ekki á leið aftur í pólitík
En hvað tekur við, ætlar Jón
kannski að hella sér aftur í pól-
tík, núna þegar menn eru að
undirbúa slaginn fyrir komandi
sveitastjórnarkosningar? Er ein-
hver neisti?
„Nei, ég hætti í pólitík fyrir 20
árum og hafði þá verið í hrepps-
nefndinni í 10 ár. Ég hef ekki
sóst eftir störfum á þeim vett-
vangi þess utan að ég sat í stjórn
Hitaveitunnar, f.h. Sandgerðis-
bæjar í tæp 12 ár. Einnig hef ég
verið í Varnarmálanefnd síðan
1994. Ég var á spjallfundi um
daginn þar sem verið var að
ræða það hvort ég myndi ekki
hella mér aftur í pólitíkina en
finn að mig skortir alveg áhuga
fyrir því“, segir Jón. Hann neitar
því samt ekki að það komi upp
smá pólitískur fiðringur á fjög-
urra ára fresti og hann fyígist
alltaf með því sem er að gerast á
þessum vettvangi.
Nú þegar Jón er svona hálf-
sestur í helgan stein ætti að gef-
ast meiri tími fyrir áhugamálin,
hver eru þau?
„Garðyrkjan hefur verið sameig-
inlegt áhugamál okkar hjóna
lengi og við eyðum miklum
tíma í lóðinni heima. Það er
skemmtilegt og afslappandi og
sérstaklega gaman þegar vinnan
skilar árangri, en við höfum
tvisvar sinnum unnið til verð-
launa fyrir garðinn. Auk þess
höfum við gaman af ferðalögum
og ég hef mjög gaman af stang-
veiði og hef verið lengi í veiði-
klúbbi með nokkrum góðum
félögum. Það er t.d. fastur liður
hjá okkur að fara alltaf sömu
dagana í byrjun september í
Laxá í Dölum. Annars snúast
þetta höfðingjar í
samskiptumogstarf-
semin hefurgengið
afbragðs vel
hlutirnir að sjálfsögðu mikið í
kringum fjölskylduna," segir
Jón.
Oft byrjað eða hætt
ungur
Jón var 37 ára þegar hann
hætti afskiptum af bæjarstjórn-
armálum. „Þegar ég hugsa urn
það, þá hef ég mjög oft byrjað
á einhverju og hætt einhverju
yngri en margir gera. Ég var 10
ára þegar ég missti föður minn
og þá fluttum við mamma frá
Akureyri til Reykjavíkur. Ég
var ekki nema 11 ára þegar ég
réði mig í vinnu hjá Silla og
Valda sem sendill og vann þar
í tvö sumur, auk þess að vinna
meðfram skóla. Arið 1961, þá
fjórtán ára, réði ég mig á olíu-
skipið Hamrafell og sigldi m.a.
til Batumi við Svartahafið.
Við vorum einnig í Hamborg
í heilan mánuð rneðan skipið
var í viðgerð og vöndum komur
okkar á klúbb nokkurn sem
hét Topp Ten vegna skemmti-
legrar tónlistar sem þar var flutt.
Þar var hljómsveit að spila sem
síðar átti eftir að valda tónlistar-
legri byltingu í heiminum. Þetta
voru nefnilega Bítlarnir áður en
þeir náðu heimsfrægð. Skrýtið
til þess að hugsa að hafa setið
þarna og hlustað á þá spila kvöld
eftir kvöld“, segir Jón og hlær.
Hann sigldi einnig til Suður-Am-
eríku á þessu sama skipi, réði sig
síðan sumarið eftir á Arnarfellið
í síldartunnuflutninga o.fl. Jón
og eiginkona hans Ólafía Kristín
Guðjónsdóttir hófu ung búskap
í Sandgerði og var Jón 19 ára
fluttur í húsið sem þau byggðu
og búa enn í. Þau eiga 3 börn og
11 barnabörn.
Kærar þakkir til allra
„Á þessurn tímamótum er
mér efst í huga þakldæti til fjöl-
margra samstarfsmanna og sér-
staklega vil ég þakka starfsfólki
mínu traust og vináttu í gegnum
árin,“ sagði Jón að lokum.
AFMÆLI
Páll Orri Pálsson varð 7 ára í gær,
22. febrúar. Hann er í heilsuátaki
Latabæjar eins og flestir krakkar
og brosti breitt með Sollu stirðu í
Heiðarskóla.
Innilega til hamingju Porri okkar.
Fjölskyldan.
Vilt þú læra að lifa lífinu til fulls, andlega og líkamlega
6 vikna byrjenda námskeið hefjast 6. mars
Kennt mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:30-19:30
Verð kr. 16.500,-
Ástundun fyrir alla þá sem hafa verið á námskeiði
Kennt mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17.30 -19
Hádegistímar þriðjudaga og fimmtudaga kl. 12:05 -12.50
Rope Yoga eykur lífsafl á öllum sviðum lífs þíns, hentar öllum
Hefur þú áhuga?
Upplýsingar og skráning í síma 892 7008
Kristín Stefánsdóttir
Rope Yoga kennari
Lífsorkan
Iðavöllum 3b - ropeyoga.is
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 23. FEBRÚAR 2006I 21