Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.2006, Qupperneq 23

Víkurfréttir - 23.02.2006, Qupperneq 23
Leikskólinn Hjallatún: Opið hús á fimm ára afmæli leikskólans Hjallatúns Opið hús verður á leik- skólanum Hjallatúni i Reykjanesbæ á morgun þar sem haldið verður upp á fimm ára afmæli skól- ans. Hjallatún er fjögurra deilda leik- skóli þar sem 94 börn dvelja í heilsdagsplássum. Þar er kennslan einstaklingsmiðuð og áhersla lögð á að virða rétt barns- ins til að hafa áhrif á eigið líf. „Við leggjum líka mikla áherslu á hlýju og gleði í okkar starfi,” sagði Gerður Pétursdóttir, leik- skólastjóri, í samtali við Víkur- fréttir. „Einnig að tilfinningar barnanna séu virtar og þeim hjálpað við að koma orðum að þeim. Viðurkennandi samskipti eru rauði þráðurinn í starfsem- inni og að talað sé fallega til barnanna og af virðingu. Starfið á Hjallatúni einkennist af sveigj- anleika, víðsýni og umburðar- lyndi.” A Hjallatúni er unnið út frá Fjölgreindarkenningu Howards Gardners. Kenningin byggir á því að greind mannsins sam- anstandi af átta eða fleiri jafn- gildum greindarsviðum. Þessi svið þroskast mismunandi og á ólíkum tíma hjá hverri mann- eskju. Allir einstaklingar læra ólíkt og fer það eftir því hvaða greindarsvið eru sterkust hjá þeim hvaða kennsluaðferðir henta þeim best. Fjölgreindar- kenning Gardners undirstrikar einstaklingsmun og mikilvægi þess að koma til móts við þarfir hvers og eins. Reynt er að finna út hvar sterkar hliðar hvers barns liggja og hvaða kennsluað- ferðir henta hverjum og einum. Áhugasamir geta sótt sér frekari upplýsingar um starfsemi skól- ans á vefsíðu hans, www.reykja- nesbaer.is/hjallatun Á afmælisdaginn mun starfsfólk Hjallatúns kynna veggspjöld sem þeir hafa búið til þar sem fjölgreindarkenningin er út- skýrð í máli og myndum. Einnig hefur starfsfólkið tekið saman námskrár fyrir öll aldurstig leik- skólans þar sem leitast er við að skýra hvernig greindirnar birt- ast hjá börnunum og hvaða að- ferðir er hægt að nota til að efla þær. Þá mun Gerður leikskóla- stjóri afhenda Árna Sigfússyni, bæjarstjóra og formanni fræðslu- ráðs, eintak af námskránum. Gerður hvetur gamla nem- endur, foreldra þeirra og fyrr- verandi starfsfólk til að mæta á milli kl. 14.30 og 16 og rifja upp skemmtilegar minningar. Subway-Keflavíkurflugvelli Óskum eftir fólki í kvöld og helgarvinnu. Leitum að jákvæðu og lífsglöðu fólki með mikla þjónustulund. Hægt er að sækja um á subway.is eða á staðnum. Aðeins eldri en 18 ára og með hreint sakavottorð koma til greina. Nánari upplýsingar gefur Kolbrún ísíma 696 7012. hlökkum ti aö sjá þig di aunni dj gunni atli skemmtanalöqqa tfrtt inn tíl 1D0 jnn á risaskjá eineken cafe.bar.keflavík yello skemmtilegum leikj TONLIST.IS Safnaðu 6 strikamerkjum af Frissa Fríska og taktu þótt í skemmtilegum leik. Frábærir vinningar í boði; 10 PSP tölvur, 50 áskriftir aS tónlist.is, Frissabolir og fleira. Dregið verður 15. apríl - gríptu þátttökuseðil í næstu verslun! 1 fífc4* 1 '9 3 í STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSiNGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUÐAGURINN 23. FEBRÚAR 2006 23

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.