Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.06.2006, Side 10

Víkurfréttir - 29.06.2006, Side 10
Ragnar rakarí Skúlasonfagnar starfsafmæli Ragnar „rakari” Skúlason fagnaði í síðustu viku merkum áfanga, en hann hefur haft hendur í hári Suður- nesjamanna í fjörutíu ár. Ragnar hóf störf einungis 19 ára gamall, árið 1966, sem var ekki beint uppgangstími fyrir rakara- stéttina þar sem ungir piltar prýdd- ust flestir miklu hári sarnkvæmt nýjustu tísku. Ragnar segir þó að á móti hafi komið að margir sem höfðu verið í bransanum hafi verið að hætta á þeim árum. „Þáð voru ekki margar stoíur á Suðurnesjum þá og það komu margir úr Grindavík og víðar til að fá klippingu og rakstur. Svo voru vertíðarmenn- irnir mikið hjá mér, en það var alltaf mikil stemmning á vertíðum hér á svæðinu.” Þó jafnöldrum Ragnars hafi oft og tíðum verið líkt við fjárhunda í hártísku á þessum árum segist Ragnar ekki hafa fundið sig í þeim stíl. „Ég gat aldrei safnað hári. Um leið og hárið fór að stinga í eyrum fannst mér það óþægilegt þannig að ég hef alltaf snyrt það á um það bil mánaðar fresti." Á sínum fjörutíu árum í bransanum hefur Ragnar afgreitt ótal við- skiptavini en hann segist enn eiga fastakúnna sem hafi komið til hans allt frá því að hann byrjaði. Hann hyggst nú minnka við sig því hann er á næstu vikum að opna nýtt hótel í Reykjanesbæ, Hótel Keili, eins og komið hetúr fram í Víkur- fréttum. „Gömlu kúnnarnir hafa sumir haft áhyggjur af því að ég sé að fara að hætta, en það verður ekki alveg á næstunni. Ég ætla að reyna að sinna rakstrinum með hótelinu þannig að þeir allra hörðustu geta allavegana fengið sig ldipptá' segir Ragnar og brosir í kantpinn. „Mér finnst enn jafn gaman að klippa og það get ég þakkað því að ég hef alltaf verið í byggingarvinnu með og hef þess- vegna ekld fengið leið á því. Annars væri rnaður eflaust löngu hættur!” langar big í víp kort & úttekt ■yrír 20 pusund á bamum? <íktu þá inn á wvwv.yel o.is ITl6g3S2 fyrir 1 milli 21 & 22 CÍj 3tlÍ2fyrir1 frá 23 til 24/frftt inn dj atl Ífrftt inn til eitt/500 eftir café.bar.keflavík V llo 3I Nýtt á vef Víkurfrétta: Fjölbreytt efni í vef- sjónvarpi Víkurfrétta Ein af þeim nýjungum sem nýr og breyttur vefur Víkurfrétta býður upp á er svokallað Vefsjón- varp Víkurfrétta eða VEF TV. Notendur vf.is hafa á síðustu mánuðum getað horft á stakar fréttir eða myndskeið með fréttum á vefsíðunni. Nú er þessu efni hins vegar safnað saman á einn stað á vefnum, í VEF TV sem er aðgengilegt ofarlega í hægra horni vefsíð- unnar. Þar er efni flokkað undir Fréttir, fþróttir og Annað. VvÍKURreBTRVWSJÓNVARP f Vefsjónvarpi Víkurfrétta verður aðgengilegt allt það sjó- varpsefni sem blaðamenn Vík- urfréttir vinna sérstaklega fyrir vefsíðuna, sem og efni sem Vík- urfréttir vinna fyrir fréttastöð- ina NFS. Allt efni Vefsjónvarps Víkur- frétta er einnig birt á kapalkerf- inu í Reykjanesbæ, sem nú er að- gengilegt á vel á annað þúsund heimilum í Reykjanesbæ. Vefsjónvarpið verður uppfært reglulega með nýju efni. Einnig verður farið í myndbandasafn Víkurfrétta og bætt inn eldra efni eins og tími og ástæður leyfa. Það er því ástæða til að fylgjast reglulega með Vefsjón varpi Víkurfrétta. Vefsjónvarp Vikurfrétta á vf.is 10 I ViKURFRÉTTlR i 26.TÖLUBLAÐ 27. ARGANGUR VÍKURFRÉTTiR Á NETiNU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.