Víkurfréttir - 29.06.2006, Qupperneq 12
Mannlíf ogfólk
Nýr bæjarstjóri tekurtil starfa í Sveitarfélaginu Vogum:
segir Robert Ragnarsson, nyr bœjarstjori
Húsnæðissamvinnufélagið Búmenn af-
henti fyrir helgi sex íbúðir í Garði við
hátíðlegt tilefni en afhendingin var
liður í lokaáfanga Kriulands.
Ásgeir Hjálmarsson og Guðrún Jónsdóttir, fyrir
hönd Búmanna, og Bragi Guðmundsson bygging-
armeistari, ásamt eiginkonu sinni Gerðu Þorvalds-
dóttur afhentu íbúðirnar sex.
Búmannaíbúðirnar í Garði vöktu strax mikla
athygli fyrir gott handbragð og mikil eftirspurn
varð eftir þeim. Á síðustu sex árum hafa Búmenn
byggt alls 36 íbúðir í Garði en félagið var stofnað
árið 1998.
Þegar búið var að afhenda íbúðirnar var slegið
upp grillveislu þar sem allir tóku hraustlega til
matar síns.
Róbert Ragnarsson tók nýlega við sem bæjarstjóri í Vogum en hann er 30 ára gamall og var oddviti E-
listans sem sigraði í bæjarstjórnarkosningunum fyrir skemmstu. Róbert er með meistarapróf í stjórn-
málafræði og hefur siðustu þrjú árin verið verkefnisstjóri í Félagsmálaráðuneytinu þar sem hann
hefur meðal annars stýrt átaki til eflingar sveitarstjórnarstigsins. Róbert er sonur Ragnars Marinóssonar og
Rósamundu Rúnarsdóttur og er kvæntur Valgerði Ágústsdóttur, saman eiga þau synina Fróða og Ragnar
Ágúst. Víkurfréttir lögðu nokkrar spurningar fyrir Róbert en hann telur að uppbygging samfélagsins í Vogum
sé helsta framtíðarverkefni bæjarfélagsins.
fyrir sveitarfélagið. Fyrirhugað er
að halda íbúaþing í haust þar sem
íbúum gefst kostur á að koma með
sínar tillögur og ábendingar varð-
andi aðalskipulagið. Sveitarfélagið
er sem kunnugt er víðfeðmt, með
byggðakjarna og umtalsvert dreif-
býli á Vatnsleysuströnd og í Hvassa-
hrauni. Því má ljóst vera að gerð .
aðalskipulags er stórt verkefni og
líklega margir sem hafa skoðun á
því hvernig við vinnum það.
Litið til framtíðar, hver verða
ykkar stcerstu rnálí
Framtíðarverkefnið er og verður
uppbygging samfélagsins hér í
Vogum og á Vatnsleysuströnd. Á
stefnuskrá núverandi meirihluta
er að leggja rækt við uppbyggingu
atvinnulífs á svæðinu, reyna að
fjölga hér atvinnutækifærum. Auk
þess munum við halda áfram að
stuðla að því að hér fjölgi fólki og
að íbúum líði vel. Hér hefur verið
mikil íbúafjölgun síðustu ár og því
mikið af nýju fólki. Að mínu mati
er mikilvægt að ná að byggja upp
samkennd, eða ídentítet, meðal íbú-
anna þannig að fólk upplifi sig sem
Vogamenn. Það býr mikill kraftur
í. fólkinu hérna og mikilvægt að '
við virkjum hann samfélaginu til
heilla.
Muii núverandi bcejarstjórn vinna
að sameiningu við önnur sveitar-
félög?
Nei, það mun bæjarstjórn örugg-
lega ekki gera. Hér eru allar for-
sendur fyrir hendi til að byggja
upp öflugt samfélag. Hins vegar
tel ég að við munum hér eftir sem
hingað til eiga gott samstarf við ná-
granna okkar á Suðurnesjum og á
höfuðborgarsvæðinu.
Hvernig liafafyrstu dagarnir sem
bcejarstjóri gengið?
Þeir hafa gengið nokkuð vel, það
eru mörg spennandi mál sem bíða
úrlausnar nýrrar bæjarstjórnar, m.a.
uppbygging nýs hverfis norðan við
v bæinn og bygging íbúða og þjón-
ustumiðstöðvar fyrir eldri borgara.
Ég hef líka ,verið að kynnast nýju
samstarfsfólki, en mér sýnist'bær-
inn búa yfir mjög góðu og hæfu
starfsfólki. Ég hlakka til að vinna
með öllu þessu góða fólki að fram-
gangi mála hér í bænum.
Hver eru stcerstu verkefni bœjar-
stjórnarinnar um þessar mundir?
Málefni skólans og leikskólans
eru alltaf stærstu verkefnin, enda
mjög umfangsmikil og snerta
marga. Annað stórt verkefni sem
við erum að takast á við, er áfram-
hald vinnu við nýtt aðalskipulag
Frá vinstri, Bragi Guðmundsson, Gerða Þorvaldsdóttir, Guð
rún Jónsdóttir og Ásgeir Hjálmarsson.
12 I VÍKURFRÉTTiR ! 26.TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANGUR
Vl’KURFRÉTTIR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!