Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.06.2006, Side 16

Víkurfréttir - 29.06.2006, Side 16
ÍÞRÓTTIR í BOÐI LANDSBANKANS L HANDA NESBÆJ ;>i NAO IRB urðu AMl meistarar i sundi um síðustu helgi en þetta var í þriðja skiptið í röð sem félagið sigrar á AMÍ mótinu. Um 300 krakkar tóku þátt í mótinu sem hófst á fimmtudag í síðustu viku og lauk á sunnudag með glæsilegu lokahófi í Stapa. IRB vann yfirburðasigur í mótinu en 377 stig skildu að iRB og Ægi sem hafn- aði í 2. sæti mótsins. ÍRB íauk keppni með 1562 stig en Ægir hlaut 11 stig. Guðni Emilsson og Soffía Klem- enzdóttir voru stigahæst í sínum ald- ursflokkum og fengu sérstök verðlaun fyrir vikið. Davíð Hildiberg Aðalsteins- son, Elfa Ingvadóttir og Soffía Klem- enzdóttir voru valin í unglingalandslið íslands sem keppir á Norðurlandameist- aramóti ungmenna sem haldið verður í Svíþjóð í júlí. Eftirfarandi sundmenn voru valdir í yngstu æfmgahópa SSÍ sem taka þátt í 3 verkefnum á næsta sundári: Lilja Ingimarsdóttir, Salóme Rós Guð- mundsdóttir, Svandís Þóra Sæmunds- dóttir, María Halldórsdóttir, Soffía Klemenzdóttir, Rúnar Ingi Eðvarðsson, Hermann Bjarki Níelsson og Ingi Rúnar Árnason. Framkvæmd mótsins heppn- aðist vel í alla staði og var sunddeildum UMFN og Keflavíkur til mikils sóma. Níu félagamet Iitu dagsins Ijós á AMÍ hjá sundfólki IRB. Soffía Klemenzdóttir setti fimm ný Keflavíkurmet í lOOm flugsundi í telpna- og stúlknaflokki og 200m fjórsundi, 400m fjórsundi, lOOm skriðsundi og lOOm flugsundi í telpna- flokki. Gunnar Örn Arnarson setti síðan fjögur ný Njarðvíkurmet í 200m fjór- sundi, 200 flugsundi, 200m bringusundi og 400 Qórsundi í flokki drengja.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.