Fréttablaðið - 09.08.2017, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 09.08.2017, Blaðsíða 8
Frakkland Brigitte Macron, eigin- kona Emmanuels Macron Frakk- landsforseta, mun ekki gegna opinberu hlutverki forsetafrúar Frakklands. Frá þessu greindi Telegr- aph í gær og vísaði í heim ildar menn innan frönsku ríkisstjórnarinnar sem og franska fjölmiðla. Tók for- setinn þessa ákvörðun í kjölfar þess að 280.000 Frakkar mótmæltu því að forsetafrúin fengi slíkt hlutverk. Áður hafði talsmaður ríkisstjórn- arinnar, Christophe Castaner, tíst því að Brigitte Macron myndi ekki gegna neinu slíku hlutverki. Tíst Castaner dugði hins vegar ekki til að kveða niður orðróm þess efnis. Ekki er gert ráð fyrir opinberu hlutverki forsetafrúar í frönsku stjórnarskránni og þá er ekki hefð fyrir slíku í frönskum stjórnmálum, þótt forsetafrúin fái venjulega skrif- stofu í Elysées-höll og ráði aðstoðar- menn.  Forsetinn lofaði því hins vegar fyrir forsetakosningarnar fyrr á árinu að Brigitte Macron fengi opin- bert hlutverk og vakti það loforð jafnt neikvæða sem jákvæða athygli. Ríkisstjórn Frakklands áformar á næstunni að setja lög sem meina þingmönnum að ráða sér aðstoðar- menn úr skylduliði sínu og er það liður í átaki forsetans gegn spill- ingu. Skemmst er að minnast þess er Francois Fillon, forsetafram- bjóðandi Repúblikana, missti stóran hluta fylgis síns vegna gruns um að hann hefði borgað vandamönnum sínum laun fyrir óunnin störf. Var Macron því  sakaður um hræsni þegar til stóð að gera hlutverk for- setafrúar formlegt. Ljóst er að franska þjóðin er ekki hrifin af því að gera hlutverk for- setafrúar formlegt og opinbert, líkt og tíðkast í Bandaríkjunum. Um 280.000 undirskriftir söfnuðust gegn áformunum og þá sýnir könn- un YouGov að 68 prósent Frakka eru andvíg því að maki forseta fái opin- bert hlutverk. Á næstu dögum stendur þó til að birta skýrslu um hlutverk Brigitte Macron. Segja talsmenn ríkisstjórn- arinnar það gert í nafni gegnsæis. Mun skjalið skýra hlutverk forseta- frúarinnar, án þess þó að stofnað sé sérstakt embætti í kringum hana. Þá verða upplýsingar gerða opinberar um hvað forsetafrúin kostar skatt- greiðendur. Deilan um hlutverk Brigitte Macron er til marks um þau vand- ræði sem eiginmaður hennar hefur lent í undanfarna daga. Nú, þremur mánuðum eftir að hann var kjörinn, eru vinsældir hans að dvína hratt. Nýlegar kannanir sýna í fyrsta sinn að fleiri eru andvígir forsetanum en hlynntir honum. Samkvæmt nýrri könnun YouGov og Huffington Post nýtur forsetinn stuðnings 36 prósenta Frakka. Ef marka má þá könnun er Macron óvinsælli en Donald Trump Banda- ríkjaforseti. Sá nýtur stuðnings 38 prósenta þjóðar sinnar ef marka má kannanir Gallup og CNN sem báðar birtust á sunnudag. Enginn Bandaríkjaforseti hefur notið jafn lítils stuðnings eftir jafn stuttan tíma í embætti frá því sambærilegar mælingar hófust. thorgnyr@frettabladid.is Frakkar hafna opinberu embætti forsetafrúar Frakklandsforseti bakkar með umdeild áform um opinbert hlutverk forsetafrúar. Meginþorri Frakka andvígur því að gera hlutverk forsetafrúar formlegt. Forsetinn sakaður um hræsni vegna áformanna og mælist óvinsælli en Bandaríkjaforseti. Brigitte Macron hefur verið mikið í sviðsljósinu frá því að Emmanuel Macron tók við embætti forseta. Á dögunum tók hún á móti söngkonunni Rihönnu og ræddu þær saman um stuðning Frakka við góðgerðarsamtök. FRéttaBlaðið/EPa Þýskaland Martin Schulz, kanslara- efni þýska Jafnaðarmannaflokksins, mun ekki segja af sér formannsemb- ætti í flokknum jafnvel þótt flokkur hans tapi í þingkosningum næsta mánaðar. Skoðanakannanir benda sterk- lega til þess að einmitt það muni gerast í september. Kristilegir demókratar, flokkur Angelu Merkel kanslara, mælast með 37 til 38 pró- senta stuðning í fjórum nýjustu könnununum. Aftur á móti mælast Jafnaðarmenn með 23 til 25 pró- senta fylgi og er því ljóst að nokkur munur er á flokkunum. „Ég mun að sjálfsögðu sækjast eftir endurkjöri á næsta lands- þingi,“ sagði Schulz við fjölmiðla í gær. „Jafnaðarmannaflokkurinn myndi njóta þess að leiðtogar hans þjónuðu lengur.“ Schulz var kosinn leiðtogi flokks- ins á landsþingi í mars. Fékk hann hundrað prósent greiddra atkvæða. Í kjölfar landsþingsins tók fylgi Jafn- aðarmannaflokksins kipp en það lækkaði þó aftur í fyrra horf. Áður hafði hann meðal annars gegnt hlutverki forseta Evrópuþingsins. Jafnaðarmannaflokkurinn hefur undanfarið kjörtímabil setið með Kristilegum demókrötum í ríkis- stjórn og er ekki útilokað að það samstarf haldi áfram að loknum kosningum. Þó gefa sumar skoðana- kannanir til kynna að hægriflokkur- inn Frjálsir demókratar gæti fengið nógu marga þingmenn til að tryggja meirihluta með flokki Merkel. – þea Schulz mun sitja sem fastast Baráttan fyrir þingkosningar í Þýska- landi er hafin. NoRdicPhotos/aFP Allur borðbúnaður fyrir veitingahús gsimport.is 892 6975 – Tengir þig við framtíðina! Sjónvarpsdreifikerfi fyrir hótel, gistiheimili og skip. Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660 oreind@oreind.is • www.oreind.is Útsölustaðir: Hörpu / Laugavegi R e y k j av i k R a i n c o at s - H V e r f i s g ö t u 8 2 w w w. r e y k j av i k r a i n c o at s . c o m - s í m i : 5 7 1 1 1 7 7 Deilan um hlutverk Brigitte Macron er til marks um þau vandræði sem eiginmaður hennar hefur lent í undanfarna daga. Nú, þremur mánuðum eftir að hann var kjörinn, eru vinsældir hans að dvína hratt. 9 . á g ú s t 2 0 1 7 M I Ð V I k U d a g U r8 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a Ð I Ð 0 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 1 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 7 0 -0 8 7 0 1 D 7 0 -0 7 3 4 1 D 7 0 -0 5 F 8 1 D 7 0 -0 4 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 3 2 s _ 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.