Fréttablaðið - 09.08.2017, Síða 22
Merkisatburðir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Emilía Jónsdóttir
frá Grund á Akranesi,
lést á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi
3. ágúst. Útför hennar fer fram frá
Akraneskirkju mánudaginn 14. ágúst
kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
dvalarheimilið Höfða.
Ragnheiður Jóhanna Pétursdóttir Gunnar Einarsson
Vilborg Pétursdóttir Hafþór Harðarson
Margrét Pétursdóttir Hörður R. Harðarson
Petrea Emilía Pétursdóttir Halldór Stefánsson
ömmubörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar og systir,
Þorbjörg Vigfúsdóttir Day
Stella Day
sem lést á heimili sínu í Leonardtown
í Maryland USA þann 14.07. sl. verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 11. ágúst nk. kl. 13.00.
Jim Day Judie Day
Larry Day Staci Day
Judy Pack Mark Pack
systkini hinnar látnu.
Ástkær faðir minn,
tengdafaðir, afi og langafi,
Bjarni Guðjónsson
Garðsenda 15, Reykjavík,
lést á Vífilsstöðum 3. ágúst.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 22. ágúst klukkan 13.00.
Lóa May Bjarnadóttir og fjölskylda.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Valdís Brandsdóttir
Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu
Sóltúni mánudaginn 31. júlí.
Jarðsungið verður frá Háteigskirkju,
föstudaginn 11. ágúst kl. 13.00.
Brandur St. Guðmundsson Edda G. Ríkharðsdóttir
Margrét Guðmundsdóttir Þórhallur Halldórsson
Ríkharður Þór Brandsson Guðrún Sigurbjörnsd. Cooper
Lilja Brandsdóttir
Valdís Guðrún Þórhallsdóttir
Halldór Bjarni Þórhallsson
Mikael Aron Ríkharðsson
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, bróðir, afi og langafi,
Skapti Ólafsson
Maríubakka 2, Reykjavík,
er látinn. Útförin fer fram í kyrrþey
að ósk hins látna. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Alzheimer
samtökin.
Kolbrún Gunnarsdóttir
Stella Skaptadóttir Ólafur Elísson
Sævar Skaptason Bryndís Óladóttir
Steinn Skaptason
Ólöf J. Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Ólína Guðrún
Þorsteinsdóttir
lést föstudaginn 4. ágúst.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 10. ágúst kl. 13.
Fjölskyldan vill þakka starfsfólki í Roðasölum
fyrir einstaka alúð og umönnun. Sérstakar þakkir til
starfsfólks líknardeildar LSH í Kópavogi fyrir umhyggju
og hlýhug.
Svala Þ. Birgisdóttir Hörður Sigurðsson
Ólafur V. Birgisson
Steinar Birgisson
Sigrún Birgisdóttir Níels Harðarson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkær eiginkona mín,
dóttir okkar, systir og mágkona,
Agnes Ósk Ragnarsdóttir
Akari
Skógarbraut 1114, Reykjanesbæ,
lést þann 7. júlí síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Mohamed Haythem Akari
Ragnar Geir Júníusson Andrea Karlsdóttir
Regína Ragnarsdóttir Arna Vala Eggertsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðlaug Karlsdóttir
kaupmaður,
Merkurgötu 3, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu laugardaginn 29. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðar-
kirkju fimmtudaginn 10. ágúst kl. 13.00.
Þórður Sæmundsson Drífa Sigurbjarnardóttir
Guðrún Sæmundsdóttir
Sjöfn Sæmundsdóttir
Við erum að bjóða til smá veislu í Mengi í kvöld þar sem við ætlum að kryfja og skoða saman, í samtali við gesti, gula litinn. Við ætlum
að skoða öll hans blæbrigði og tilbrigði
og ýmsar merkingar og tengingar sem
snúast í kringum hann,“ segir Rúnar
Örn Marinósson sem ásamt Berglindi
Ernu Tryggvadóttur myndar lista-
teymið Berglind og Rúnar (áður 1224).
Bæði útskrifuðust þau úr Listaháskóla
Íslands vorið 2016 og hafa sýnt bæði
saman og sitt í hvoru lagi síðan þá. Þau
hafa verið dugleg við að taka fyrir fyrir-
bæri og kryfja þau og skoða. Þau ætla í
kvöld, eins og Rúnar segir, að bjóða til
veislu í Mengi og þar verður gerð alls-
herjar skoðun á gula litnum. Þau segjast
ætla að spila á flest skilningarvitin og
fjalla um heima og geima en þó verður
gulur alltaf hafður að leiðarljósi.
„Við verðum bæði með veitingar –
þetta verður matarboð – og svo verður
líka fyrirlestrar-gjörningur meðfram
matarboðinu, þetta verður eiginlega ein
allsherjar innsetning. Og þetta verður
líka hálfgert samtal milli okkar og áhorf-
andans, en í rauninni samt ekkert frekar
en þeir vilja,“ segir Rúnar spurður að því
hvernig þessi skoðun muni fara fram.
Augljósa spurningin er samt kannski af
hverju gulur?
„Okkur fannst hann bara áhugaverð-
asti liturinn til að fjalla um og líka af því
að hann er með ríkustu söguna af frum-
litunum. Það hefur svo margt verið skrif-
að og sagt um gulan. Hann hefur líka
svo margvíslegar merkingar sem okkur
fannst áhugaverðar. Að okkar mati er
gulur merkilegasti liturinn, svona eins
og stendur. Það er skemmtilegast hvað
það eru miklar andstæður sem hafa
verið tjáðar í honum – hann er bæði litur
sköpunar og samhljóms en einnig litur
öfundar og brjálæðis,“ segir Rúnar en
veislan eða kvöldstundin hefst klukkan
hálf átta í Mengi við Óðinsgötu og kostar
tvö þúsund krónur inn.
stefanthor@frettabladid.is
Guli liturinn að leiðarljósi
Listateymið Berglind og Rúnar býður til veislu í Mengi í kvöld þar sem þau ætla sér í sam-
starfi við áhorfendur að skoða gula litinn með öllum skilningarvitum, en þeim finnst,
eins og stendur, gulur vera merkilegasti liturinn og sá sem hefur verið fjallað mest um.
Listateymið Berglind og Rúnar taka nú gula litinn fyrir, enda stórmerkilegur litur.
Það er skemmtilegast
hvað það eru miklar
andstæður sem hafa verið tjáðar
í honum – hann er bæði litur
sköpunar og samhljóms en
einnig litur öfundar og brjál-
æðis.
1851 Er þjóðfundinum í Reykjavík var slitið hrópuðu þing-
menn undir forystu Jóns Sigurðssonar: „Vér mótmælum
allir.“ Minningartafla um þennan atburð er í hátíðarsal
Menntaskólans í Reykjavík þar sem fundurinn var haldinn.
1873 Kveðja, fyrsta kvæði eftir Stephan G. Stephansson,
birtist í blaðinu Norðanfara fáum dögum eftir að Stephan
fór alfarinn af Íslandi.
1945 Bandaríkjamenn varpa kjarnorkusprengju á japönsku
borgina Nagasaki.
1974 Richard Nixon Bandaríkjaforseti segir af sér.
1977 Urho Kekkonen, forseti Finnlands, kemur í opinbera
heimsókn til Íslands. Hann hafði komið einu sinni áður.
1979 Menntamálaráðuneytið friðar húsin á Bernhöftstorfu
í Reykjavík.
2005 Benjamin Netanyahu, þá fjármálaráðherra Ísraels,
segir af sér til að mótmæla áformum Ariels Sharon um að
leggja niður landtökubyggðir gyðinga á Gasaströndinni.
2005 Lee Hughes, enskur knattspyrnumaður, er dæmdur í
sex ára fangelsi vegna manndráps.
9 . á g ú s t 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A g U R14 t í M A M ó t ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð
tímamót
0
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
1
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
1
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
7
0
-2
6
1
0
1
D
7
0
-2
4
D
4
1
D
7
0
-2
3
9
8
1
D
7
0
-2
2
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
3
2
s
_
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K