Fréttablaðið - 25.09.2017, Blaðsíða 31
Sundkrogsgade 30
2150 Nordhavn, København
Tel +45 8818 1111
Søren Frichs Vej 34 D
8230 Åbyhøj, Aarhus
Tel +45 8818 1100 bruun-rasmussen.dk
Alþjóðlegt uppboð í desember
Um þessar mundir er mikil eftirspurn eftir íslenskri samtímalist frá
20. öldinni. Til að mæta þessari eftirspurn leitum við nú eftir verkum
eftirfarandi listamanna með alþjóðlegt uppboð okkar í desember í
huga:
Ásgrímur Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Svavar Guðnason, Júlíana
Sveinsdóttir, Gunnlaugur Blöndal, Jón Stefánsson, Kristín Jónsdóttir,
Ásmundur Sveinsson, Nína Tryggvadóttir, Sigurjón Ólafsson, Erró,
Þorvaldur Skúlason, og fleiri.
Ef frekari upplýsinga er þörf má hafa samband við
Niels Boe-Hauggaard í +45 8818 1182 / nbh@bruun-rasmussen.dk
eða Peter Beck í +45 8818 1186 / pb@bruun-rasmussen.dk
Við leitum að
íslenskri list
Olís-deild kvenna
Fram - Fjölnir 31-21
Markahæstar: Sigurbjörg Jóhannsdóttir 10,
Þórey Rósa Stefánsdóttir 6 - Guðrún Jenný
Sigurðardóttir 8, Ólöf Ásta Arnþórsdóttir 4.
Selfoss - ÍBV 25-32
Markahæstar: Kristrún Steinþórsdóttir 6,
Harpa Sólveig Brynjarsdóttir 5 - Karólína
Bæhrenz Lárudóttir 9, Ester Óskarsdóttir 7.
Valur - Grótta 24-22
Markahæstar: Diana Satkauskaité 10,
Kristín Arndís Ólafsdóttir 4 - Lovísa Thomp-
son 9, fjórir leikmenn með þrjú mörk.
Haukar - Stjarnan 21-25
Markahæstar: Maria Pereira 8, Guðrún
Erla Bjarnadóttir 3, Sigrún Jóhannsdóttir
3 - Ramune Pekarskyte 10, Stefanía Theo-
dórsdóttir 5.
Nýjast
Olís-deild karla
Fjölnir - Valur 17-18
Markahæstir: Kristján Örn Kristjánsson
7/2, Bjarki Lárusson 4/1 - Ásgeir Vignisson
5, Alexander Örn Júlíusson 3, Magnús Óli
Magnússon 3.
Víkingur - ÍR 24-32
Markahæstir: Hlynur Óttarsson 5, fimm
leikmenn með þrjú mörk - Bergvin Þór
Gíslason 9, Sveinn Andri Sveinsson 7, Sturla
Ásgeirsson 7/3.
Afturelding - Stjarnan 27-27
Markahæstir: Ernir Hrafn Arnarson 8, Árni
Bragi Eyjólfsson 5/3, Elvar Ásgeirsson 3,
Einar Ingi Hrafnsson 3 - Garðar B. Sigur-
jónsson 7/2, Egill Magnússon 6, Leó Snær
Pétursson 5.
Leik Gróttu og ÍBV var frestað vegna
veðurs. Hann fer fram klukkan 18:00 í dag.
Inkasso-deildin
Fylkir - ÍR 2-1
0-1 Sergine Modou Fall (53.), 1-1 Hákon Ingi
Jónsson (64.), 2-1 Emil Ásmundsson (89.).
HK - Keflavík 2-1
0-1 Leonard Sigurðsson (14.), 1-1 Eiður
Gauti Sæbjörnsson (41.), 2-1 Bjarni Gunn-
arsson (72.).
Fram - Þróttur 0-4
0-1 Hreinn Ingi Örnólfsson (11.), 0-2 Viktor
Jónsson (18.), 0-3 Ólafur Hrannar Kristjáns-
son (51.), 0-4 Sveinbjörn Jónasson (90.).
Leiknir R. - Grótta 2-1
1-0 Kolbeinn Kárason (21.), 1-1 Enok Eiðs-
son (74.), 2-1 Kolbeinn (82.).
Leiknir F. - Þór 0-3
0-1 Guðni Sigþórsson, víti (8.), 0-2 Ármann
Pétur Ævarsson (69.), 0-3 Aron Kristófer
Lárusson (90+3.).
Selfoss - Haukar 2-1
0-1 Ísak Jónsson (16.), 1-1 Andrew Pew (64.),
2-1 Ingi Rafn Ingibergsson (90.).
Fylkir og Keflavík leika í Pepsi-deildinni á
næsta ári. Leiknir F. og Grótta féllu og leika
í 2. deild á næsta ári.
Staðan
FÉLAG L U J T MÖRK S
Fylkir 22 15 3 4 50 - 19 48
Keflavík 22 14 4 4 43 - 24 46
Þróttur 22 13 3 6 37 - 21 42
HK 22 14 0 8 36 - 28 42
Leiknir R. 22 10 6 6 38 - 31 36
Þór 22 10 4 8 35 - 31 34
Haukar 22 9 6 7 34 - 39 33
Selfoss 22 8 4 10 27 - 29 28
Fram 22 7 6 9 32 - 39 27
ÍR 22 5 4 13 27 - 38 19
Leiknir F. 22 3 1 18 23 - 53 10
Grótta 22 2 3 17 16 - 47 9
handbOlti Erkifjendurnir og
grannliðin Haukar og FH mætast í
Schenker- höllinni í 3. umferð Olís-
deildar karla í kvöld. Liðin mæta
full sjálfstrausts til leiks enda bæði
með fullt hús stiga og hafa spilað vel
í upphafi tímabils.
„Við fáum þennan leik á mjög
skemmtilegum tímapunkti, þótt
hann sé svona snemma. Mér finnst
Haukar og FH búin að vera mest
sannfærandi liðin það sem af er. Þau
geta bæði stillt upp í góðar varnir,
með góða markmenn fyrir aftan og
hafa spilað vel í sókn,“ sagði Jóhann
Gunnar Einarsson, handboltasér-
fræðingur 365, um stórleikinn í
kvöld.
„Þetta eru áþekk lið. Þau eru með
tvær mjög heitar skyttur í Daníel
[Þór Ingasyni] og Ísaki [Rafnssyni]
og mjög klóka leikstjórnendur í
Tjörva [Þorgeirssyni] og Ásbirni
[Friðrikssyni].“
Jóhann Gunnar segir að Haukar
hafi komið sér á óvart í byrjun tíma-
bils. Liðið varð fyrir skakkaföllum á
undirbúningstímabilinu og breidd-
in er ekki mikil. Stórskyttan Adam
Haukur Baumruk veiktist m.a. illa
og missir af fyrstu mánuðum tíma-
bilsins.
„Spilamennska Hauka hefur
komið mér á óvart. Gunnar Magn-
ússon hefur lagt þessa leiki frábær-
lega upp. Þeir líta mjög vel út með
Björgvin [Pál Gústavsson] í svaka-
legum ham,“ sagði Jóhann Gunnar
en landsliðsmarkvörðurinn hefur
byrjað tímabilið frábærlega og verið
með í kringum 50% markvörslu í
fyrstu tveimur leikjum tímabilsins.
Annar Haukamaður sem hefur
vakið athygli fyrir góða spila-
mennsku í upphafi tímabils er Atli
Már Báruson sem kom í sumar frá
Íslands- og bikarmeisturum Vals.
„Hann hefur verið ofurvara-
maður undanfarin ár. Ég ætla að
hætta að kalla hann seigan. Mér
finnst hann orðinn mjög góður.
Haukarnir voru mjög klókir að ná
í hann,“ sagði Jóhann Gunnar um
Atla Má.
Líkt og Haukar varð FH einnig
fyrir áfalli í sumar þegar Gísli Þor-
geir Kristjánsson, besti leikmaður
úrslitakeppninnar á síðasta tíma-
bili, fór úr olnbogalið. Þrátt fyrir
fjarveru þessa stórefnilega leik-
manns hefur ekki séð högg á
vatni hjá silfurliðinu frá því í
fyrra.
„Maður hefði haldið að það
yrði stærra skarð að fylla. Það sést
ekki á sóknarleik þeirra,“ sagði
Jóhann Gunnar en FH skoraði
samtals 75 mörk í fyrstu tveimur
leikjum tímabilsins.
Jóhann Gunnar segir erfitt að
finna veikleika hjá Haukum og
FH. Liðin hafi allavega ekki sýnt þá
í fyrstu tveimur umferðunum.
„Lítil breidd hefur ekki komið
niður á Haukum og þeir eru greini-
lega í hörkuformi. Kannski mark-
varslan hjá FH. Hún var mjög góð
í fyrsta leiknum en ekkert spes í
síðasta leik. Annars finnst mér liðin
líta rosalega vel út,“ sagði Jóhann
Gunnar.
Leikur Hauka og FH hefst klukk-
an 20.00 og verður sýndur beint á
Stöð 2 Sport. Strax eftir leikinn er
komið að Seinni bylgjunni, upp-
gjörsþætti um Olís-deildirnar í
handbolta. – iþs
Fáir veikleikar hjá grannliðunum
Björgvin Páll Gúst-
avsson hefur verið
frábær í upphafi
tímabils.
FRÉTTABLAðIð/
eRnIR
S p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ðO a b l a 15M Á n U d a G U r 2 5 . S e p t e M b e r 2 0 1 7
2
5
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
3
-5
C
9
0
1
D
D
3
-5
B
5
4
1
D
D
3
-5
A
1
8
1
D
D
3
-5
8
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K