Fréttablaðið - 25.09.2017, Blaðsíða 12
Nýjast
Pepsi-deild karla
Stjarnan - Valur 1-2
0-1 Bjarni Ólafur Eiríksson (20.), 0-2 Guðjón
Pétur Lýðsson, víti (40.), 1-2 Hilmar Árni
Halldórsson, víti (90+2.).
Fjölnir - KR 2-2
0-1 Tobias Thomsen (47.), 1-1 Ingimundur
Níels Óskarsson (61.), 1-2 Ástbjörn Þórðar-
son (68.), 2-2 Birnir Snær Ingason (73.).
Breiðablik - ÍBV 3-2
0-1 Shahab Zahedi Tabar (31.), 1-1 Gísli Eyj-
ólfsson (38.), 1-2 Gunnar Heiðar Þorvalds-
son, víti (53.), 2-2 Hrvoje Tokic, víti (59.), 3-2
Sveinn Aron Guðjohnsen (90+3.).
KA - Grindavík 2-1
1-0 Emil Lyng (38.), 2-0 Hallgrímur Mar
Steingrímsson (42.), 2-1 Simon Smidt (51.).
Víkingur R. - ÍA 0-0
Víkingur Ó. - FH 1-1
1-0 Þorsteinn Már Ragnarsson (24.), 1-1
Steven Lennon, víti (68.).
Pepsi-deild kvenna
Grindavík - Þór/KA 3-2
1-0 Helga Guðrún Kristinsdóttir (4.), 1-1
Sandra María Jessen (5.), 2-1 Carolina
Mendes (47.), 2-2 Sandra Mayor Gutierrez
(64.), 3-2 María Sól Jakobsdóttir (81.).
Stjarnan - Breiðablik 0-2
0-1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (30.), 0-2
Berglind Björg (77.).
KR - Haukar 0-3
0-1 Marjani Hing-Glover (16.), 0-2 Alexandra
Jóhannesdóttir (18.), 0-3 Hanna María
Jóhannsdóttir (49.).
FH - Valur 2-0
1-0 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (30.), 2-0
Alda Ólafsdóttir (62.).
Staðan
FÉLAG L U J T MÖRK S
Þór/KA 17 13 2 2 42 - 15 41
Breiðablik 17 13 0 4 43 - 10 39
Valur 17 11 1 5 45 - 18 34
ÍBV 17 9 5 3 31 - 19 32
Stjarnan 17 9 3 5 35 - 19 30
FH 17 7 2 8 17 - 22 23
Grindavík 17 5 3 9 16 - 40 18
KR 17 5 0 12 15 - 38 15
Fylkir 17 2 3 12 13 - 35 9
Haukar 17 1 1 15 13 - 54 4
Staðan
FÉLAG L U J T MÖRK S
Valur 21 14 5 2 39 - 17 47
Stjarnan 21 9 8 4 45 - 25 35
FH 21 9 8 4 33 - 24 35
KR 21 8 7 6 31 - 28 31
KA 21 7 8 6 37 - 28 29
Grindavík 21 8 4 9 29 - 38 28
Breiðablik 21 8 3 10 33 - 35 27
Víkingur R. 21 7 6 8 29 - 32 27
Fjölnir 21 6 7 8 31 - 38 25
ÍBV 21 6 4 11 29 - 38 22
Víkingur Ó. 21 6 3 12 24 - 44 21
ÍA 21 3 7 11 28 - 41 16
Í dag
18.50 Arsenal - West Brom Sport 2
19.50 Haukar - FH Sport
21.00 Pepsimörk kvenna Sport 2
21.30 Seinni bylgjan Sport
Olís-deild karla:
18.00 Grótta - ÍBV
19.30 Fram - Selfoss
20.00 Haukar - FH
Slógu fagnaðarlátum meistaraefnanna á frest
Gular og glaðar Grindavík kom í veg fyrir að Þór/KA næði að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í leik liðanna á laugardaginn. Á sama tíma
vann Breiðablik Stjörnuna. Það er því mikil spenna fyrir lokaumferðina í Pepsi-deild kvenna. Þór/KA fær FH í heimsókn og verður að vinna til að
verða Íslandsmeistari. Breiðablik mætir hins vegar Grindavík heima og verður meistari með sigri ef Þór/KA misstígur sig. FRÉTTABLAðið/HAnnA
Fótbolti Það voru komnar þrjár
mínútur fram yfir venjulegan leik-
tíma í leik Breiðabliks og ÍBV þegar
Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði
markið sem tryggði að Kópavogs-
liðið spilar í Pepsi-deildinni að ári.
Sveinn Aron kom þá boltanum í
netið eftir aukaspyrnu Kristins Jóns-
sonar og skoraði sitt þriðja mark í
sumar. Lokatölur 3-2, Breiðabliki í
vil.
„Frammistaða hans í sumar er
eitthvað sem þarf að meta eftir
mót. Hann er gríðarlega efnilegur
strákur sem þarf að æfa stíft til að
verða alvöru framherji og hann
hefur alla burði til þess, hvort það
gerist hjá honum, þarf hann bara að
sýna,“ sagði Milos Milojevic, þjálfari
Breiðabliks, eftir leikinn í Kópavog-
inum.
Blikar gátu leyft sér að brosa í gær
en brúnin var öllu þyngri á Eyja-
mönnum enda eru þeir enn í mik-
illi fallhættu. Bikarmeistararnir eru
með 22 stig í 10. sæti Pepsi-deildar-
innar, einu stigi á undan Víkingi
Ó., en með mun betri markatölu.
Eyjamenn eru því enn með örlögin
í sínum höndum og halda sér uppi
með sigri á KA í lokaumferðinni,
sama hvernig fer hjá Ólsurum og
Skagamönnum.
Víkingur Ó. var lengi vel með for-
ystuna gegn FH en varð á endanum
að sætta sig við jafntefli, 1-1. Þetta
var síðasti leikurinn á náttúrulegu
grasi á Ólafsvíkurvelli en gervigras
verður nú lagt á hann.
„Við eigum hörkuleik gegn Skag-
anum um næstu helgi og svo vonum
við að KA taki ÍBV í Eyjum. Það er
erfitt að þurfa að treysta á annan en
sjálfan þig en við verðum að gera
okkar og vinna ÍA,“ sagði Þorsteinn
Már Ragnarsson, markaskorari Vík-
ings, eftir leikinn.
Steven Lennon skoraði jöfnunar-
mark FH úr vítaspyrnu en þetta
var hans fimmtánda mark í sumar.
Stigið þýðir að FH-ingar eru öruggir
með Evrópusæti. Þeir hafa verið
samfellt með í Evrópukeppni síðan
2004.
Það voru ekki neinir timburmenn
í Íslandsmeisturum Vals sem gerðu
góða ferð í Garðabæinn og unnu
1-2 sigur. Bjarni Ólafur Eiríksson
og Guðjón Pétur Lýðsson voru á
skotskónum annan leikinn í röð.
Mark Stjörnunnar skoraði Hilmar
Árni Halldórsson. Hann varð þar
með þriðji Stjörnumaðurinn til
að skora 10 mörk í sumar. Guðjón
Baldvinsson (12) og Hólmbert Aron
Friðjónsson (11) höfðu áður komist
í tveggja stafa tölu í markaskorun.
KR var boðið upp í dans um Evr-
ópusætið en þáði það ekki. KR-ingar
gerðu 2-2 jafntefli við Fjölnismenn
í Grafarvoginum og eiga því ekki
lengur möguleika á Evrópusæti.
Með sigri í gær hefði KR sett upp
hreinan úrslitaleik við Stjörnuna
um Evrópusæti í lokaumferðinni.
„Ákafinn og hugarfarið er til stað-
ar og við spiluðum vel í dag gegn
Fjölnisliði sem var að berjast fyrir
lífi sínu í deildinni. Þeim tókst það
en um leið fjaraði okkur draumur
út. Við vorum fullvissir um það að
við myndum ná að vinna okkur inn
flottan úrslitaleik í síðustu umferð-
inni,“ sagði Willum Þór Þórsson,
þjálfari KR.
Fjölnismenn voru öllu kátari
enda eru þeir öruggir með sæti í
Pepsi-deildinni að ári. Fjölnir verð-
ur því með lið í efstu deild fimmta
árið í röð.
Markametið í efstu deild stendur
enn því Andri Rúnar Bjarnason
skaut púðurskotum í 2-1 tapi
Grindavíkur fyrir KA í nýliðaslag
fyrir norðan. Hann er því enn með
18 mörk en fær tækifæri til að jafna
eða slá markametið gegn Fjölni í
lokaumferðinni.
„Það er búið að vera pressa á mig
í fjölmiðlum síðustu níu leiki eða
eitthvað en nei, ég finn ekki fyrir
aukinni pressu. Ég reyni að halda
áfram að spila minn leik,“ sagði
Andri Rúnar eftir leik.
Með sigrinum hafði KA sæta-
skipti við Grindavík. KA-menn geta
náð 4. sætinu af KR-ingum í loka-
umferðinni.
Þá gerðu Víkingur R. og ÍA marka-
laust jafntefli í Víkinni. Heima-
völlurinn reyndist Víkingum ekki
gjöfull en þeir unnu aðeins tvo leiki
í Traðarlandinu í sumar.
Fallnir Skagamenn spiluðu upp
á stoltið og forðuðust tap í fjórða
leiknum í röð.
Lokaumferð Pepsi-deildar karla
fer fram laugardaginn 30. sept-
ember. Allir sex leikirnir hefjast
klukkan 14.00. ingvithor@365.is
Kvað falldrauginn í kútinn
Tuttugasta og fyrsta og næstsíðasta umferð Pepsi-deildar karla fór fram í gær. Breiðablik og Fjölnir eru örugg
með sæti í deildinni að ári, Stjarnan og FH kræktu í tvö síðustu Evrópusætin og markametið stendur enn.
Blikar fagna Sveini Aroni Guðjohnsen, hetjunni gegn ÍBV. FRÉTTABLAðið/EyÞÓR BERGLind LÁnuð TiL VERonA
Breiðablik hefur lánað lands-
liðsframherjann Berglind Björgu
Þorvaldsdóttur til Verona á Ítalíu.
Berglind verður ekki með Breiða-
bliki gegn Grindavík í lokaumferð
Pepsi-deildar kvenna. Berglind
leikur með Verona í vetur og snýr
svo aftur til Breiðabliks næsta vor.
2 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m Á N U D A G U r12 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
Sport
2
5
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
3
-5
7
A
0
1
D
D
3
-5
6
6
4
1
D
D
3
-5
5
2
8
1
D
D
3
-5
3
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K