Fréttablaðið - 25.09.2017, Blaðsíða 2
Veður
Búast má við ágætis veðri á landinu
í dag, bjart fyrir norðan, en sums
staðar skúrir sunnanlands.
sjá síðu 18
BRIDS
SKÓLINN
Námskeið hefjast í næstu viku ...
Byrjendur (stig 1) 2. október: 8 mánudagar frá 20-23
Kerfið (stig 2) 4. október: 8 miðvikudagar frá 20-23
Stig 1 Byrjað er alveg frá grunni og farið vel yfir undirstöður
hins vinsæla Standard-sagnkerfisins. Það er fólk á öllum aldri
sem sækir skólann og ekkert mál að mæta stakur/stök.
Stig 2 Hvað meinar makker? Góð spurning. Farið er vel
yfir framhald sagna í Standard og ýmsar stöður í sagnbaráttu.
Mikið spilað og hægt að koma stakur/stök.
Upplýsingar og innritun
í síma 898-5427 á netinu bridge.is
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
Reyndu fyrir sér í amerískum fótbolta
Það voru áhugasamir unglingar sem mættu í Kórinn í Kópavogi í gær og reyndu fyrir sér í amerískum fótbolta. Þar stóðu Einherjar, eina íslenska
liðið sem leikur íþróttina reglulega, fyrir æfingu fyrir byrjendur á aldrinum þrettán til sautján ára. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Menning Stjórnendur þungarokks
hátíðarinnar Eistnaflugs reyna nú
að forða henni frá gjaldþroti. Miða
sala á hátíðina í sumar var undir
væntingum og hefur Fréttablaðið
eftir heimildum að starfsfólk hafi
ekki fengið greidd öll sín laun.
„Ég held ég geti nánast lofað því
að við náum að klára þetta. Staðan í
sumar var þannig að Íslendingarnir
mættu en við fengum varla útlend
inga á svæðið en þeir hafa verið
um 30 prósent af gestum hátíðar
innar í gegnum tíðina,“ segir Stefán
Magnússon, stofnandi og stjórnar
formaður Eistnaflugs.
Tónlistarhátíðin hefur verið hald
in árlega, aðra helgina í júlí, í Nes
kaupstað síðan sumarið 2005. Þar
spila bæði innlendar og erlendar
hljómsveitir yfir alls fjóra daga og
hefur íbúafjöldi bæjarins tvöfaldast
meðan hátíðin stendur yfir. Miða
sala á Eistnaflug 2018 er hafin og
bjóðast miðar nú á forsöluverði eða
15 þúsund krónur.
„Við höfðum áður fengið allt að
700800 erlenda gesti en ég ætla
ekki einu sinni að giska á hvort þeir
náðu 50 í sumar,“ segir Stefán.
„Það er verið að vinna úr þessu og
það tekur tíma að klára þetta. Það
eru allir af vilja gerðir og þess vegna
er ég bjartsýnn á að við náum því,“
segir Stefán. – hg
Reyna að koma í veg fyrir
gjaldþrot hjá Eistnaflugi
Stefán Magnús-
son, stofnandi og
stjórnarformaður
Eistnaflugs
Menning Óvissa um túlkun íslensku
fánalaganna hægði á útgáfu nýjustu
skáldsögu Vals Gunnarssonar.
Bókin er nú á leið í prentun eftir
álit lögfræðings útgefandans, Máls
og menningar, þess efnis að bóka
kápan stæðist lög.
Bókin ber heitið Örninn og Fálk
inn og er skáldsaga um hvað hefði
getað orðið ef þýskir nasistar hefðu
gengið hér á land árið 1940 en ekki
breskir hermenn. Sögumaður er
starfsmaður Landsímans, Sigurður
Jónasson, sem fylgist grannt með
því hvernig Ísland aðlagast nasism
anum.
„Ég var viðstaddur opnun Bók
menntahátíðar þegar ég hitti útgef
andann og spurði hvort bókin væri
ekki farin í prentsmiðjuna. Þá fékk
ég það svar að það biði niðurstöðu
lögfræðings,“ segir Valur.
Ástæða óvissunnar um lög
mæti kápunnar er að á framhlið
bókarinnar má finna óvenjulega
útfærslu á skjaldarmerki Íslands.
Griðungurinn, gammurinn, drekinn
og bergrisinn eru á sínum stöðum
en þó dekkri yfirlitum en vant er. Í
stað þess að þeir raði sér í kringum
íslenska fánann er milli þeirra
rauður fáni nasista prýddur haka
krossinum.
„Við könnumst flest við fánalögin,
um hvað má gera og hvað ekki með
íslenska fánann. Það er bannað að
breyta honum með einhverjum
hætti, nota sem föt og það sama
virðist vera með skjaldarmerkið.
Það varð hins vegar niðurstaðan að
lögin, þó þau séu til á pappír, séu
eiginlega dauður lagabókstafur.
Þeim er í það minnsta ekki fylgt
mikið,“ segir Valur.
„Þá segir í 12 grein a. [fánalaga] að
skjaldarmerki Íslands sé auðkenni
stjórnvalda ríkisins og notkun ríkis
skjaldarmerkisins sé þeim einum
heimil. En við teljum að þetta sé
sjálfstætt höfundaverk þess aðila er
teiknar og því langsótt að kápan falli
undir fánalögin,“ segir í lögfræðiáliti
vegna kápunnar.
Kápan fékk því grænt ljós og
kemur bókin út að um mánuði
liðnum. Bókin er þriðja verk höf
undarins en áður hafði hann gefið
út bækurnar Konungur norðursins
og Síðasti elskhuginn. „Mig hefur
lengi langað til að lesa sögu um
það ef nasistar hefðu klófest Ísland.
Þannig að það eina í stöðunni var
í raun að skrifa bók um það,“ segir
Valur. johannoli@frettabladid.is
Óttuðust að nasistafáni
á bók bryti gegn lögum
Óvíst var hvort breyta þyrfti kápu þriðju bókar Vals Gunnarssonar. Hana prýðir
flennistórt skjaldarmerki með fána nasista í stað hins íslenska. Fánalögin metin
dauður lagabókstafur í raun en Mál og menning fékk lögfræðing í málið.
V A L U R
G U N N A R S S O N
V
A
L
U
R
G
U
N
N
A
R
S
S
O
N
Hvað ef Þjóðverjar
hefðu orðið fyrri til
að hernema Ísland
vorið 1940?
ISBN 978-9979-3-3878-9
9 789979 338789
ISB 978-9979-3-3878-9
„… stórskemmtileg bók, þrælfyndinn
og áhugaverður norðri.”
Börkur Gunnarsson / Viðskiptablaðið (um Konung norðursins)
„… skemmtileg … Frumleiki bókarinnar
felst í einfaldleika hennar.“
Símon Birgisson / Fréttablaðið (um Síðasta elskhugann)
Örninn og Fálkinn er æsispennandi skáldverk
um veruleika sem hefði getað orðið ef herlið
Hitlers hefði orðið á undan til Íslands.
Valur Gunnarsson (f. 1976)
er sagnfræðingur, rithöfundur
og blaðamaður. Eftir hann
eru skáldsögurnar Konungur
norðursins (2007) og Síðasti
elskhuginn (2013) sem báðar
fengu góða dóma. Hann
hefur haft áhuga á síðari
heimsstyrjöldinni frá því
hann man eftir sér.
ÖRNINN OG FÁLKINN
ÖRNINN OG FÁLKINN
Stríðið í Evrópu ratar til Íslands þegar nasistar
ganga á land í Reykjavík vorið 1940. Sigurður
Jónasson, ungur starfsmaður hjá Landsímanum,
fylgist með hvernig fólk aðlagast hinu nýja
Hitlers-Íslandi, margir græða og þjóðernissinnar
sækja í sig veðrið. En þegar slettist upp á vinskap
Hitlers og Stalíns í austri fer vísir að íslenskri
andspyrnuhreyfingu að verða til.
Hvað er það sem nasistar eru í raun að vilja á
Íslandi? Og hvað eru þeirra helstu vísindamenn
að gera á hálendinu? Sigurður og félagar hans
halda í hættuför þar sem markmiðið er að koma
í veg fyrir það sem virðist vera óhjákvæmilegur
sigur Þjóðverja í stríðinu.
Örninn og Fálkinn er þriðja skáldsaga Vals
Gunnarssonar.
Skáldsagan með nasistafánanum í skjaldarmerkinu er nú á leið í prentun.
LögregLuMáL Erlendur karlmaður,
sem grunaður er um að hafa orðið
konu að bana í íbúð hennar við
Hagamel á fimmtudagskvöld, verður
að öllum líkindum yfirheyrður í dag
eða á morgun.
Þetta segir Grímur Grímsson,
yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu. Grímur vill
ekki svara hvort játning liggi fyrir.
Maðurinn var úrskurðaður í viku
langt gæsluvarðhald á föstudag.
„Þetta hefur verið þannig um
helgina að það er ekki frá neinu nýju
að segja,“ sagði Grímur í samtali við
Fréttablaðið í gærkvöldi. – hg
Yfirheyrsla gæti
farið fram í dag
Grímur Grímsson,
yfirlögregluþjónn
hjá Lögreglunni
á höfuðborgar-
svæðinu.
2 5 . s e p t e M b e r 2 0 1 7 M á n u D A g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
2
5
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
D
3
-4
D
C
0
1
D
D
3
-4
C
8
4
1
D
D
3
-4
B
4
8
1
D
D
3
-4
A
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K