Útsýn - 10.11.1945, Page 3

Útsýn - 10.11.1945, Page 3
ÚTSÝN 10. nóv. 1945 ÚTS¥H 1. órg. ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ 3. tbl. Bíkisstjórnin hefir svarað Bandaríkjunum. Deilt um, hvort svarið þýði já eða nei! ALLT bendir til þess, að mikil pólitísk átök séu framundan um það, hvort íslendingar eigi að leigja Bandaríkjunum til langs tíma bækistöðvar fyrir lofther og flota hér á landi, eða halda fast við herverndarsamningana frá 8. júlí 1941, þar sem Bandaríkin „skulbinda sig til þess að hverfa burtu af íslandi með allan her- afla sinn á landi, í lofti og á sjó, undireins og núverandi ófriði er lokið.“ Það hefur komið í Ijós, að er- lendis er fylgzt með því af mikilli athygli, hver afstaða íslendinga verður í þessu máli. Þar er mönn- um það ljóst, jafnvel enn betur en hér, hvílíkt stórmál það er; að undir urslitum þess er það komið, hvernig litið verður á afstöðu ís- lands í heiminum í framtíðinni, hvort því tekst að lialda sjáifstæði sínu, þrátt fyrir það, að það hefur sýnt sig í nýafstaðinni heims- styrjöld, að landið hefur mikla hernaðarlega þýðingu vegna legu sinnar í miðju Norður-Atlants- -hafi. Á Alþingi dregur meira og meira að því, að menn skiptist í tvo flokka um afstöðuna til þessa máls, eftir því hvort menn eru með því eða móti að leigja Bandaríkjunum herbækistöðvar hér. 1 öllum þingflokkum eru fleiri eða færri, sem eru því ákveðið andvígir. Um síðustu helgi snerust fundir flokk- anna eingöngu um þetta mál, nánar til- tekið um tillögu, sem forsætisráðherra hefur lagt fram í því. Sú tillaga ber það með sér, áð við- horf til þess hafa breytzt verulega frá þvi, er það kom fyrst fram fyrir rúm- um mánuði. Þeir, sem þá virtust telja sjálfsagt að semja strax við Bandaríkin, meðfram af barnalegum ótta við, að ný heimsstyrjöld væri alveg yfirvofandi milli Vesturveld- anna og Rússlands, eru nú ekki eins vissir um sitt mál. Hinum, sem telja það ekki samrýmast nýfengnu sjálfstæði landsins, né veita því öryggi i framtíðinni, að leigja einu stórveldi herbækistöðvar, hefur farið fjölgandi við rólega íhugun málsins. __ Afstaða Breta. Ríkisstjórninni barst í síðustu viku vitneskja um afstöðu brezku stjórnar- innar til málsins, en það hafði verið látið í veðri vaka hér, að sá mikli drátt- ur, sem orðið hefur á því, að ríkisstjórn- in sendi að minnsta kosti frá sér opin- bera tilkynningu um málið, stafaði með- fram af því, að ekki væri enn orðið full- kunnugt um afstöðu annarra stórvelda en Bandarikjanna til þess. Var í því sambandi réttilega bent á það,-að fleiri ríki gætu látið sig það skipta, hvernig Islendingar svöruðu óskum Bandaríkj- anna um að tryggja sér með samningi til langs tíma yfirráðarétt yfir íslenzku landi í því skyni að h'afa þar á friðar- tímum bækistöðvar fyrir flota sinn og flugher, og fá þar með einkaaðstöðu til að ráða hemaðarlega yfir öllu Norður- Atlantshafi, sem hingað til hefur verið talið „áhrifasvæði" Breta frekar en nokkurs annars stórveldis. Það er þvi mjög skiljanlegt, að marg- ir þingmenn hafi talið það næsta þýð- ingarmikið í þessu máli, hvaða afstöðu brezka stjómin tæki til þess. Hervemdarsamningarnir við Banda- ríkin frá 8. júlí 1941 vom gerðir fyrir milligöngu Breta. Þeir höfðu hernumið Island 10. maí 1940, vegna þess að þeir töldu sig hafa sannanir fyrir því, að innrás Þjóðverja í landið væri yfirvof- andi og yfirráð Þjóðverja hér væru ekki aðeins háskaleg með tilliti til innrásar í Bretland, sem þá vofði yfir, heldur gætu þau einnig orðið til þess, að sigl- ingaleiðin til Bandaríkjanna og Canada yrði ótrygg eða ófær, en hún var þá lífæð þeirra í baráttunni við Hitler, sem þá stóð á hátindi veldis síns með alla Vestur- og Mið-Evrópu á valdi sínu. Eftir eins árs hernám Breta tilkynntu þeir íslenzku ríkisstjórninni, „að þörf væri fyrir brezka herliðið á Islandi annars staðar,“ en forsetí Bandaríkj- anna, (en þá voru Bandaríkin ekki kom- in í ófriðinn), væri reiðubúinn til að senda hingað herlið „til þess að tryggja öryggi þjóðanna á vesturhvelinu“, en að hann áliti, að hann gæti ekki farið þessa Ieið, nenia samkvæmt tilmælum ís- lenzku ríkisstjórnarinnar." Brezka stjómin hafði milligöngu um það, að fá fram þessi tilmæli Islands um hervernd Bandaríkjanna, og er þvi í raun og veru eins konar vitundarvottur að herverndarsamningunum og skilyrð- um þeirra af Islands hálfu. En auk þess samþykkti brezka stjóm- in í sambandi við herverndarsamningana við Bandarikin eftirfarandi skilmála, sem settir vom fyrir þeim af Islands hálfu að því er Bretland snerti: „Bretland lofar að viðurkenna algert frelsi og fullveldi Isiands og að sjá til þess, að ekki verði gengið á rétt þess I friðarsamningunum né á nokkurn ann- an hátt að ófriðnum Ioknum.

x

Útsýn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útsýn
https://timarit.is/publication/1267

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.