Útsýn - 10.11.1945, Qupperneq 6

Útsýn - 10.11.1945, Qupperneq 6
INNLENDARFRÉTTIK byggingarráð hefur heimtað að ráðstafa öllum innflutningi, sem kæmi undir hug- takið nýsköþun og hefur viljað túlka það mjög víðtækt, þannig að það hefur t. d. veitt innflutning á prentvélum og vélum til að framleiða rjómaís o. s. frv. Ofan á þetta hefur bætzt, að formað- ur Nýbyggingarráðs, Jóhann Þ. Jósefs- son, hefur átt í stöðugum erjum við Við- skiptaráðið út af ýmsum málum, sem fyrirtæki hans hafa verið viðriðin, en þau munu hafa gerzt brotleg við flest ákvæði viðskipta- og verðlagslaganna. Sérstaklega hafa orðið hörð átök út af máli S. Árnason & Co. Gerði dómsmála- ráðherrann réttarsætt í málinu, en eftir að hún var gerð, kom í ljós, að innflutn- ingsbrotið var miklu stærra en fram hafði komið i málinu. Viðskiptaráði hafði verið falið að ráð- stafa hinum óleyfilega innflutningi S. Árnason & Co., en ekkert hefur enn verið gert i þvi, þar sem dómsmálaráð- herrann hefur enn ekki tekið ákvörðun um það, hvort höfða skuli mál fyrir þau brot fyrirtækisins, sem uppvíst varð um, eftir að réttarsættin var gerð. # Mikil átök munu hafa átt sér stað i nefnd þeirri, sem áður var getið. Hefur Jóhann Jósefsson lagt fram tillögu í samráði við ríkisstjórnina og flokka þá, sem að henni standa. Samkvæmt henni eiga framvegis einungis 4 menn að eiga sæti í Viðskiptaráði, en verðlagsstjóri á þó að hafa atkvæðisrétt sem fimmti maður, þegar ákvörðun er tekin um verðlagsmál. Munu stjórnarflokkarnir hafa samið um, að i Viðskiptaráði verði 1 maður frá hverjum flokki. Má telja víst, að þingmeirihluti sé fyrir þessari lausn málsins. Svanbjörn Frímannsson hefur nú sótt um og fengið starfið sem aðalbókari Landsbankans, sem losnaði við bankastjóraskiptin, Aðalbreytingin, sem yrði á skipan Við- skiptaráðs við þetta, væri sú, að formað- ur ráðsins. Svanbjörn Frímannsson, hyrfi úr því og sömuleiðis Gylfi Þ. Gíslason og Ólafur Björnsson dósent, sem hafa haft atkvæðisrétt um verðlagsmálin. Meiri hluti nefndarinnar mun hins vegar leggja til, að Viðskiptaráð verði framvegis skipað 5 mönnum, en að fækkað verði um þá tvo menn, sem greitt hafa atkvæði um verðlagsmálin, þ. e. þá Gylfa og Ólaf. Munu fulltrúar Verzlunarráðsins og Sambandsins báðir telja það heppilegt, að þessir aðilar fái á ný atkvæðisrétt um verðlagsmálin, en munu' hins vegar ekki lausir við tor- tryggni gagnvart Jóhanni Jósefssyni og þeirri lausn, sem hann hefur lagt fram. Þegar þetta er ritað er helzt útlit fyrir gð lögin verði framlengd til bráðabirgða, þar sem ekki mun enn hafa náðst fullt samkomulag um málið á milli stjómar- flokkanna. Landsbankinn á móti Nýbyggingaráði. DAGBLAÐIÐ VlSIR skýrði fyrir nokkru frá því, að Nýbyggingarráð hefði samið frumvarp um breytingar á lögum um Fiskveiðasjóð Islands, sem leggja ætti fyrir næsta Alþingi. Skýrði blaðið frá aðalefni frumvarpsins, og spunnust út af því nokkrar umræður á milli þess og formanns Nýbyggingar- ráðs, Jóhanns Þ. Jósefssonar. Síðar hef- ur svo Þjóðviljinn birt grein um málið. Aðaltilgangur þessa frumvarps er að greiða fyrir nýsköpunaráformum ríkis- stjórnarinnar á sviði sjávarútvegsins. Skal Fiskveiðasjóður veita stofnlán til skipakaupa og ýmissa annarra fram- kvæmda, sem Nýbyggingarráð hyggst að gangast fyrir, og er ætlazt til, að vext- ir af þessum lánum verði í engu tilfelli yfir 2,5%. Út á ný skip má lána allt að % af virðingar- eða kostnaðarverði og út á aðrar eignir allt að % af verðinu.' Verulegur hluti lánanna á að greiðast í erlendum gjaldeyri, sem nota á til að kaupa hin nýju framleiðslutæki, og er Landsbankanum gert að skyldu að selja Fiskveiðasjóði þennan gjaldeyri úr Ný- byggingarsjóði, en hann á að geymast hjá Landsbankanum. Var það, sem kunn- ugt er, eitt af stefnuskrármálum ríkis- stjórnarinnar að leggja til hliðar 300 milljónir króna á sérstakan reikning, sem síðan yrði notaður til nýsköpunar- innar. Enn þá hefur þetta ekki komizt í framkvæmd. # Það hefur vakið nokkra furðu, að þessi frumvörp Nýbyggingarráðs, sem þannig höfðu verið boðuð, hafa ekki enn kom- ið fram, þótt Alþingi hafi nú setið mánaðartima. Ástæðan mun vera sú, að frumvarpið hefur sætt mjög eindreginni mótstöðu af hálfu Landsbankans. Hefur þess verið getið til, að bankastjóraskiptin. við Landsbankann, sem urðu nýlega, er Pét- ur Magnússon fjármálaráðherra sagði af sér bankastjóraembættinu, hafi stað- ið í sambandi við þau átök, sem orðið hafa um þetta mál bak við tjöldin. Er sennilegt, að Pétri hafi þótt aðstaða sín í rikisstjórninni ósamrýmanleg stefnu stjómar Landsbankans og því sagt af sér. Stjóm Landsbankans mun þykja gengið mjög á vald bankastjórnarinnar með frumvörpum Nýbyggingarráðs, þar sem hún sé svipt umráðum yfir veru- legum hluta af fé bankans, en vaxta- kjör ákveðin af öðrum aðilum. Að öðru leyti er blaðinu ókunnugt um, hvað á milli ber. # Það er augljöst/mál, að almenn vaxta- lækkun er mikið nauðsynjamál, ef hægt á að vera að veita öllum atvinnu fram- vegis. Bankamir hafa hins vegar haldið útlánsvöxtum mjög liáum, þrátt fyrir lækkun innlánsvaxtanna niður i sama sem ekki neitt. Hafa bankamir grætt tugi milljóna á þessari vaxtapólitík á stríðsárunum. Hins vegar er alls ekki nægilegt að lækka vexti eingöngu á lán- um til útgerðarinnar. Einnig aðrir vext- ir þurfa að lækka, eklci sist vextir á byggingalánum. Með því væri hægt að stuðla að lausn tveggja mestu vanda- málanna, sem nú þarf að leysa: Að bæta úr húsnæðisskortinum og að koma í veg fyrir atvinnuleysi. Hjá þvi verður ekki komizt, að vaxta- málið verði tekið föstum tökum sem allra fyrst og gæti deila Nýbyggingar- ráðs og Landsbankans orðið upphaf að aðgerðum i þessu máli. Sennilega líður ekki á löngu, þar til farið verður að ræða þetta mál fyrir opnum tjöldum. NÝJASTA dýrtíðarráðstöfun ríkis- stjórnarinnar er sú að setja á markað- inn í Reykjavík einhvern litinn slatta af molasykri, núna rétt fyrir mánaða- mótin. Verðið á þessum sykri er greitt niður úr ríkissjóði og á því lækkunin að koma fram í vísitölunni fyrir nóvem- bermánuð. Talið mun vist, að síðan komi ekki meiri molasykur á markaðinn fyrst um sinn. Verður þá reiknað með verðinu á hinum niðurgreidda molasykri í vísi- tölunni, meðan enginn molasykur er á markaðinum, á samá hátt og nú er gert með ameríska smjörið, sem ekki hefur verið til síðan fyrst í september og verður ekki 'til aftur fyrr en einhvern tíma í nóvember. 4 ÚTSÝN

x

Útsýn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útsýn
https://timarit.is/publication/1267

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.