Útsýn - 10.11.1945, Blaðsíða 8
neins styrks frá því opin-
bera. En ég finn hvergi í
sýningarskránni neinar upp-
lýsingar um húsaleigu. Síðar
kemst ég að því, að húsa-
leigan var enn ekki ákveðin-
Ég fer enn á kreik og
Verður reikað að sýningar-
skála samvinnufélaganna. 1
fimm herbergjum er hér
komið fyrir eingerðum hús-
gögnum. Hér bera fyrir augu
afburða smekkleg, fögur og
ódýr húsgögn, ekkert vantar
og engu er ofaukið og öll
þessi dýrð er fyrirhuguð
efnalitlu fólki. Fyrst skoða
ég íbúð, sem ætluð er nýgift-
um hjónum, tvö herbergi og
eldhús. Húsgögnin eru ó-
venju falleg, íburðarlaus en
smekkleg og sterk og auð-
velt að halda þeim hreinum,
Svefnlierbergið með tveim
rúmum, tveim náttborðum,
snyrtihorði og tveim stólum
kostar samtals 375 krónur
sænskar. Skápar eru í veggj-
um fyrir alls konar fatnað.
Pó að húsgögnin, eins og
áður segir, séu steypt í sama
mót, eru áklæði á þeim
margskonar og setur sinn
sérstaka svip á hverja sam-
stæðu.
í stofunni er borðstofu-
horð, fimm bólstraðir stólar,
skápur, bókahilla með skrif-
horði, stofuhorð og tveir
góðir hægindastólar. Þessi
húsgögn kosta samtals 935
sænskar krónur. .
Á næstu hæð er íbúð fyrir
hjón, sem nú hafa eignast
eitt harn. Þau hafa nú keypt
sér barnarúm, kommóðu og
sófa í stofuna, saumaborð
og tilheyrandi stól, allt fyrir
viðunandi verð. Stólarnir í
svefnherbergum og sauma-
borðsstóllinn eru eins og
boðstofustólarnir, svo að nú
hefir fjölskyldan átta stóla
til að færa að matborðinu,
ef þörf krefur-
Þessu næst skoða ég ibúð,
sem ætluð er hjónum, er
börnin eru orðin þrjú og
búa nú í fjórum herbergjum.
Svefnherhergin eru orðin
þrjú, hjónaherhergi og tvö
barnaherbergi. Fjórða lier-
bergið er rúmgóð stofa, með
útskoti, sem matast er i. Ým-
islegt hefir nú hjónunum á-
skotnast í viðhót við það,
sem áður er talið, enda er
verð húsgagnanna nú orðið
kr. 3.473,50. Allir eru stól-
arnir svo gerðir, að stafla
má þeim saman, þegar þeir
eru ekki í notkun og láta
þá fram á gang til þess að
rýmka í stofunni, ef þörf er
á. Fyrir því er séð, að þeir
geti ekki nuddast til
skemmda við þessa meðferð.
í öllum íhúðunum er inn-
ganga í baðherbergi úr for-
stofu. Handlaugar eru hvergi
nema í baðherbergi og eld-
húsi. Vatnssalerni er í bað-
herberginu.
Yfir dyrunum á einum
sýningarskálanna er letruð
þessi setning:
„Verður þetta ekki of
einliæft?"
og er þar átt við liúsgögnin,
sem alls staðar eru af sömu
gerð. í þessum skála sýnir
félag eitt (Nordiska kom-
paniet) þrjár íbúðir búnar
samskonar húsgögnum, sem,
klædd eru mismunandi lms-
gagnafóðri og raðað ólíkt
upp í stofunni- Auk þess er
veggfóður herhergjanna rétt
með hverri gerð og lit. Eng-
um, sem sér þessar íbúðir,
mundi detta í hug, að liús-
gögn þeirra væru ein gerð
(standardiseruð), ef ekki
væri vakin athygli hans á
því. Húsgögn þessi eru tals-
vert dýrari en hin eingerðu
amvinnufélagshúsgögn, en
þó gerir maður sér ekki
fyllilega ljóst, live ódýr þau
eru, fyrr en maður skoðar
lierbergi þau, er húsgagná-
kaupmenn hafa búið sam-
bærilegum húsgögnum. Verð-
múnurinn er hér svo geypi-
legur, að öllum hlýtur að
blöskra. Auk þess virtust
nér samvinnufélaga hús-
gögnin mun smekklegri og
lientugri.
Gert er ráð fyrir, að mað-
ir og kona vinni bæði úti
lijá sumuin fjölskyldum, sem
á Gullhæð eiga að húa. Þess-
ar fjölskyldur eiga kost á
að fá þvott sinn þveginn,
trokinn og viðgerðan. Mið-
degismatinn má annaðlivort
eta í matsölunni eða fá hann
borinn heim. Vinnukonur
búa í sérstöku liúsi, eins og
áður segir og hver húsfreyja
getur fengið aðstoð við liús-
störfin eftir því sem þörf
krefur.
Barnagarðinum verð ég
að gera noklcur sþil. Hann
virtist mér svo fullkominn,
að á betra yrði ekki kosið.
Enn sem komið er, er liann
þó ekki nærri fullgerður.
Sá hluti hans, sem sýndur
var, er einna liæðar hygg-
ing með 6 stórum herbergj-
um fyrir börn, stofu handa
starf'sfólki, eldhúsi og fata-
geymslu- Börnunum er skipl
í 3 hópa:
3%—5 ára og .5—7 ára, en
hver aldursflokkur hefir 2
lierbergi til umráða og er
inngengt á milli. — Handa
minnstu börnunum eru litl-
ir stólar og horð, smávagnar
til að aka í leikföngum og
mátulega háar hillur á veggj-
unum með allavega faHegum
leikföngum. í einu horninu
er eins konar hilla með
mörgum smáhvílum til mið-
degishvíldar fyrir börnin.
Hinir aldursflokkarnir
hafa leikföng við sitt hæfi.
Sérstaklega vöktu hornskáp-
ar fyrir telpur atliygli mína
og teborð á hjólum með
bollum á.
Stálpuðu drengirnir höfðu
þarna margskonar leikföng
við sitt hæfi.
Utan við gluggana var
leikvöllur með allskonar út-
búnaði til útileikja. í barna-
garðinum geta hörnin dval-
ist alla daga eða aðeins á-
kveðinn tíma dagsins eftir
vild . . .“
★
Héðan mun ein kona, frú
Rannveig Kristjánsdóttir,
hafa sótt þessa sýningu og
mun hún hafa hug á að
kynna hana rækilega í sam-
bandi við matvælasýningu
þá, sem mun verða á næst-
unni á vegum Kvenfélaga-
sambands íslands.
Háskólanámskeið í hús-
stjórnarfræðum.
Við háskólann í Arósum
er nú verið að undirhúa svo
nefnd sérnámskeið (Special-
kurser) í ýmiss konar hús-
stjórnarfræðum fyrir kennslu
konur hússtjórnar- og mat-
reiðsluskóla. Upphafsmaður
þeirrar nýbreytni mun vera
landi vor, Skúli Guðjónsson,
prófessor í heilbrigðisfræði
við Árósarháskóla, og verð-
ur hann, jafnframt því sem
hann gegnir prófessorsem-
bætti sínu, forstöðumaður
„hússtjórnardeildar háskól-
ans“, sem svo verður kölluð.
Sérnámskeið þessi verða
þrjú, sem hér greinir:
A. Manneldisfræðinámskeið.
6
ÚT SÝN