Útsýn - 10.11.1945, Page 10

Útsýn - 10.11.1945, Page 10
HiÖ nýja íslenzka IýSríki. Islendingar liafa myndað lýðríki að nýju. Þeir-hafa tekið þá-ákvörðun að skipa um sín eigin mál sjálfir, án íhlutunar annarra þjóða. Þeir hafa Icosið sér- sinn eiginn lýðríkis- stjóra, forseta, íslenzkan mann. Hann er að metorðum tignasti maður þjóð- arinnar, tákn þjóðareiningarinnar, þjóðernisins og þjóðrækninnar. Hon- um ber því öðrum fremur að vera sí- felt á verði um þjóðarviljann, skilja hann' og meta, og annast um að koma honum á framfæri ætíð og allsstaðar, þegar þörf krefur. En það er þá einn- ig skylda þjóðfélagsþegnanna að láta vilja sinn, þjóðarviljann, koma fram slcýrt og hispurslaust. Einkum má telja þá bráða nauðsyn, þegar ein- liver líætta er á ferðum um það, að sjálfstæði voru eigi að sníða þrengri stakk í utanríkismálum en samrýmst getur lýðræðishugsjón vorri. Því að stærstu sigrar vorir voru unnir á sviði utanríkismálanna við stofnun lýðríkisins 17. júní 1944, þegar við- urkenning fyrir fullveldi voru var lát- in í té af flestum þeim þjóðum, sem mestu máli skifti um, og áttu kost þess að gera þáð- Hið forna íslenzka lýSveldi. Norski sagnfræðingurinn Ernst Sars sagði eitt sinn: „Þjóðir, sem ált liafa sér sögu, deyja ekki“. Þessi ummæli eru að því leyti algild, að jafnvel þjóðir, sem horfið hafa af sjónarsviðinu, halda áfram að vera til í vitund mannkynsins, hafi þær skapað sér þá sögu, sem er minnis- verð og sagnfræðin liirðir um að halda til haga. Vér íslendingar miklumst oft af þeirri sögufrægð, sem vér eigum. Vér miklumst af hinni forníslenzku stjörnarskipán og því þroskatímabili þjóðlífsins, sem var henni samfara. Stjórnarskipanin tengdi þá þjóðina í fasta heild, án þess þó að skerða úr hófi frelsi og sjálfslséði einstakl- inganna. Hver maður fékk þá að njóta sín innan vébanda þjóðfélags- skipulagsins og var hvorki gert ráð fyrir, að hinn einstaki maður lúti þjóðfélagsheildinni skilyrðislaust, né að liún lúti í lægra haldi fyrir per- sónulegu sjálfstæði einstaklingsins. Þannig var jafnvægisins gætt, mun- dagshófið fengið. Og þann veg skap- aðist hagsæld með þjóðinni, öryggi og styrkleiki gagnvart umheiminum. Þjóðin kennir máttinn í sjálfri sér, treyslir á hann og lætur hann stjórna gerðum sínum. Af þessu sjálfstrausti 1 spretta allar framkvæmdir hennar. Á þessu blómaskeiði þjóðlífsins skapast forníslenzku hókmenntirnar, glæsi- legasti votturinn um þroska og snilli íslendinga og ágætasti arfur frá liðn- um öldum um allan norðurveg. Þenn- an arf hefir þjóðin varðveitt enn þá, þrátt fyrir þrálátar tilraunir annara þjóða -um að sölsa hann undir sig. Enn þá er þó nokkur hluti þessa bók- menntaarfs i höndum norrænna þjóða, sem farið hafa um harpi grip- deildar höndum, Qg er ekki við hlít- andi fyrr en hann er endurheimtur Islendingum til handa. Hefði sú við- skiftatilraun verið samboðnari sjálf- stæði voru og lieilbrigðum metnaði hins unga lýðríkis, en sum þau við- skiftasambönd, sem stofnað hefur ver- ið til nýlega við frændþjóðir vorar á' Norðurlöndum- NiSuirlægingartímabiIiS. En um leið og vér miklumst yfir þroska- og blómaskeiði sögu vorrar (930—1202) er þess einnig að minn- ast, að um langt skeið er saga vor saga rauna og liörmunga. Á tímabil- inu 1262—1550 er liún saga mikillar hnignunar. Erlent konungsvald og kirkjuvald þjarmar svo að frjálsri liugsun og sjálfsákvörðunarrétti með þjóðinni, að hún fær enga rönd við reist. Viðnámsþrótturinn lamast og framkvæmdarþrekið hverfur. Þegar málum var þannig komið hefst niður- lægingartímahilið í lífi þjóðarinnar og sögu, og um verulega endurreisn var ekki að ræða fyrr en á síðustu öld. í kjölfar siðaskiftanna siglir kon- * ÍSLAND < ungsvaldið danska hraðbyri inn að' ströndum landsins, reisir sér öndvegi og vígi í landinu sjálfu og treður réttindi landsiris fótum. Bændaánauð og verzlunareinokun koma þjóðinni ú kaldan klaka. Svarnætti hinnar mestu áþjánar og örbirgðar grúfir yfir lan'di og lýð. Svo hatrömm voru hin crlendu áhrif, að hagsældin lagðist í rústir. En í öllu þessu myrkri skein þó ein stjarna í skýjaþykkni, stjarna sjálfstæðisins horfna, er varð að von- arstjörnu á draumahimni framtíðar- innar. Svo fer smátt og smátt að rofa til. Endui-reisn hefst og aukið sjálfstæði öðlast hægt og bítandi fyrir látlausa baráttu íslands beztu sona. Og að lokum höfum vér nú slitið konungs- sambandinu við Dani, sem var liinn eðlilegi og sjálfsagði lokaþáttur við- •skifta vorra við þá- Með þeim hætti þurkuðum vér burt síðustu menjar frá niðurtægingaröld vorri. Persónu- lega erum vér Ivristjáni konungi X. þakklátir fyrir allt það, er hann hefur vel til vor gert. sinni eigin þjóð hefur hann reynzt glæsilegur og göf- ugur leiðtogi á erfiðum tímum. En vér íslendingar höfum kjörið oss for- seta að þjóðhöfðingja. Vonum vér, að sá forsetadómur verði hinn höfðing- legasti, svo að eigi þurfi að afla hon- um vegsauka frá Danmörku né neinu öðru framandi landi. MinaisverS atri'ði. Allt er þetta, sem nú liefur sagt verið, er íslendingum að sjálfsögðu kunnugt. En ekki virðist þó ástæðu- laust að víkja að þessu einmitt nú, þegar íslenzka þjóðin þarf hæði að sýna háttvísi og einurð um allt það, sem snertir sambúð hennar við aðrar þjóðir, og endurskipun fer fram um ÚT SÝN 8

x

Útsýn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útsýn
https://timarit.is/publication/1267

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.