Útsýn - 10.11.1945, Síða 12

Útsýn - 10.11.1945, Síða 12
í byrjun september sagði hann meðal annars: „Eg hef aldrei getað skilið h'vers vegna ýmsir Danir hafa lastað ,, Islendinga fyrir það, að þeir sögðu upp sambandslagasamningnum áður en Danmörk varð frjáls. Skyldum við Danir ekki hafa gert hið sama, ef við hefðum verið í sporum íslendinga". Og um líkt leyti lielt hann rœðu í Oslóarháskóla, þegar hann, ásamt fleirum, var gerður heiðursdoktor við háskólann. f þeirri ræðu mælti hann gegn sér- stakri norrænni samvinnu, að svo miklu leyti, sem hún væri einskorðuð við Norðurlönd. Slík samvinna ætti enga framtíð. Og varnarbandalag Norðurlanda væri fjarstæða ein. Hins vegar mælti hann með norrænni sam- vinnu innan takmarka öryggisbanda- lags allra þjóða. Út af ummælum Möllers, _að ekki væri hægt að álasa íslendingum fyrir sambandsslitin við Dani, birtist þykkjuþung grein í Berlingske Tid- ende, og er Möller þar talinn eini maðurinn utan fslands, sem ekki skilji tilfinningar Dana. Svíar hafi verið eindregið á máli Dana. Svo hafi og verið um ísiendinga búsetta í Dan- mörku. Og blaðið barmar sér út af því, að íslenzka þjóðin skyldi einhuga segja upp aldagömlu ríkjasambandi- íslendingar geta að sjálfsögðu gert * Dönum það til þægðar að skilja það, að þeim liafi þótt súrt í broti að geta ekki lafað á yfirráðum sínum hér. En það ættu þeir þá líka að geta skil- ið, að hið aldagamla ríkjasamband hefir skilið eftir fleiri og meiri svöðu- sár í íslenzku þjóðlífi, en þetta hrufl á misskildu stærilæti Stór-Danaliyggj- unnar nú. En þá ætti líka íslenzka þjóðin að skilja það nú, þegar hún hefur öðlast fullt sjálfstæði, að vandfarið er með þann dýrgrip. Og þar sem hinLr ffið- sömu Danir hafa reynt að halda oss slíku steinbítstaki, þá muni þa? tak ekki verða ófastara, gæfum vér nú öðrum máttarmeiri þjóðum tök á oss. „Þjóðir, sem eiga sér sögu deyja ekki“. Til sanns vegar má færa, að þjóðir, sem átt hafa sér sögu, deyja ekki. En öruggari er þó sú staðreynd og frem- ur til frambúðar fyrir oss, að þjóðir, sem eiga sér sögu, deyja ekki. Og með því að gera Island að lýðríki, hafa ís- lendingar lýst því skýlaust yfir, að þeir ætli ekki að láta sér nægja að, hafa átt sér sögu, heldur ætli þeir og að skapa sér sína eigin sögu í fram- tíð. Hollast er þá að hafa víti for- tíðarinnar sér til varnaðar, en þjóð- þroskatímabilin að leiðarstjörnu. Samfara lýðræðistöku vorri hafa þeir atburðir gerst, að hin norræna einangrun, sem vér höfum átt við að búa, og oss alla jafna hefir orðið til lítils vegs né þroslca, hefir rofnað. Ný viðskipta og menningarsainbönd blasa við, og fáum vér að hagnýta oss þau í fullu frelsi, má vænta þess, að þann veg getum vér í framtíð skapað oss þá sögu, sem oss væri samboðin. Því að einmitt þá, þegar íslendingar voru frjálsir og óliáðir á allan liátt og hvert sem litið var um menningar- og við- skiptasambönd sín, varð þroski þjóð- arinnar mestur og vegur liennar glæsi- legastur. Þannig bendir reynsla lið- inna tíma, sagan sjálf, oss ólvírætt á það, með livaða hætti vér megum stuðla að þroska þjóðlífsins og bregða mestum ljóma yfir sjálfstæði vort: Ekki með þeim hætti að skipa hinn óæðra bekk í þrengslum norræns fé- lagsskapar; ekki með þeim hætti að afsala sér nokkurum réttindum í hendur stórveldanna, né gera ísland að bækistöð erlendra sérréttinda; heldur með þeim hætti, að íslenzka ríkið komi fram sem óháður og sjálf- stæður aðili á víðum vettvangi al- þjóðaviðskipta og alþjóðamenningar. Ástandið í Þýzkalandi Fréttuviiarar ensku blaðanna, Times og News Chronicle í Berlín, hafa ný- lega birt lýsingar á ástandinu í Mið- og Auslúr-Þýzkalandi, sem hafa vak- ið sterka .samúðaröldu enslcu þjóðar- innar ineð hinum fyrrverandi óvin- um. Nokkrir þjóðkunnir menn hafa sent frá sér ávarp til almennings með áskorun um að afsala sér hluta af matarskammti sínum til þess að „bjarga Evrópu“, eins og þeir kom- ast að orði. „Átta milljónir heimilislausra manna, að minnsta kosti“, segir annar þessara fréttaritara, „lifa flökkumanna- lífi í héruðunum kringum Berlín. Séu Súdeta-Þjóðverjar, sem hraktir v.oru úr Tékkóslóvákíu, og aðrir flótta- menn taldir með, hækkar tala lieirra, sem ekki er hægt að sjá fyrir neinum mat, upp í 13 milljónir að minnsta kosti. Þessi hluti þýzku þjóðarinnar hlýtur,'að deyja, dður en veturinn kemur, ef ekkert er að gert“. HimdriiS þúsunda erlendra verka- manna draga fram lífið á hernáms- svæði Breta. Meðal þeirra eru 500 þúsund Pólverjar, sem neita að hverfa lieim til föðurlands síns. 7.000.000 — sjö milljónir — Þjóðverjar hafa verið reknir frá lieimilum sínum í Austur-Þýzkalandi og Póllandi, marg- ir með 30 mínútna fyrirvara, matar- 'lausir, klæðlitlir og án þess að þeim sé séð fyrir nokkru farartæki. Tíu þúsundir slíkra flóttamanna koma daglega til Berlínar, þvert of- an í bann Rússa. Þeim er leyft að standa þar við í 24 klst. Meðan þeir eru þar, liafa þeir „frelsi lil að betla og sofa undir brúm“, en að þeim tíma liðnum eru þeir teknir með valdi og fluttir til Mecklenburg eða Brand- enburg, hernámssvæðis Rússa. „Hvað þar tekur við þeim, eða t. d. í Sax- landi, þar sem íbúafjöldinn hefur tvö- fáldast, með því að 4 milljónir flótta- manna liafa safnazt þar saman, það fær ekkert vestrænt auga að sjá“, segir enska blaðið „New Statesman and Nation“. „Það er aðeins vegna þess, að það hittist svo á, að aðsetur eftirlitsnefndar Bandamanna er á hernámssvæði Rússa, að við höfum nokkra minnstu hugmynd um þenn- an hræðilega harmleik“, bætir sama blað við. — Hernámssvæði Rússa, eins og öll lönd Austur-Evrópu, sem eru á valdi rauða hersins, eru með öllu lokuð blaðamönnum, öðrum en rússneskum. 10 ÚTSÝN

x

Útsýn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útsýn
https://timarit.is/publication/1267

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.