Útsýn - 10.11.1945, Page 14

Útsýn - 10.11.1945, Page 14
Menning og sjúkdómar. Nýlega hefir mér borist í hendur merkileg bók. Höfundur hennar er stór- lærður maður, doktor í lækn- isfræði, doktor í bókmennta- fræði og doktor í lögum. Hann er kennari í sögu læknisfræðinnar við Johns Iiopkins University Bók þessi fjallar um þró- un menningarinnar. En sjúkdómar hafa átt hlut að máli um þá þróun. Engin tvö fyrirbæri geta verið; andstæðari en sjúkdómar, hreytingar eða sjúklegur þróunarferill í líkömum dýra og manna, og hins veg- ar menningin, hin háleit-< asta sköpun mannshugans. Og samt eru tengsli þeirra glögg. Eins og litið er á 5júk- dóma nú á tímum eru þeir liffræðilegar breytingar. Þeg- ar likaminn er í Íagi, lífeðlis- fræðilegt ástand hans með, venjulegum hætti, þá vinn- ur hann lilutverk sín þegj- andi og hljóðalaust, leikandi létt og fagnandi. Og hann á, mikla hæfni til að laga sig eftir liinum ólíkustu skil- yrðum. Fyrir hvern einstakling er sjúkdómur þá ekki aðeins Jíffræðileg breyting, heldur einnig reynsla, og getur ver- ið þannig háttað, að hann, hafi hin gagngerðustu og djúptækustu áhrif á líf mannsins. Og þar sem mað- urinn er skapari eða höf- undur menningarinnar, þá liafa sjúkdómar, með því aði trufia og tefja starf hans og lífsferil, haft einnig áhrif á afköst hans eða skapandi starf. Sjúkdómar þjá ekki aðeins einstaka menn, heldur og oft og einatt fjölda manna, annað hvort á vissum tíma- bilum, landfarsóttir, eða á löngum samfelldum tíma- skeiðum, landlægir sjúk- dómar, þegar sjúkdómar hafa herjað á hóp manna, eða heil héruð. Rannsókn sögulegra minja, ýmissa fornleifa, hafa leitt í ljós að sjúkdómar. voru al- gengir ekki aðeins á tíma- skeiðum menningarinnar, heldur og áður en maðurinn kom til sögunnar. Sjúkdóm- ar eru jafngamlir lífinu sjálfu. Þegar farið var að semja og setja lög, varð ekki hjá því komizt að taka tillit lil þeirra ma,nna, cr sjúkir voru. Án þess að nálgast þau vandamál, sem sjúkdómar og þjáningar ollu, gat hvorki heimspekin né trúarhrögðin gefið skýringar á tilverunni. Bókmenntir og listir gátu heldur ekki skotið sér und- an þessu, ef þær áttu að geta gefið sínar lýsingar á henni. Og í tilraunum manna til þess að sigrast á sjúk- dómum varð að styðjast við vísindin, gera náttúruna mönnunum undirgefna, ef vonir áttu að vera um ár- angur. Þá kemur og nýtt til. Tvennt kemur ætíð til greina, þegar um uppruna sjúkdóma er að_ ræða: maðurinn og umhverfi hans. Fósturfræð- in vísar veginn til erfða- fræðinnar. En talið er, að erfðir liafi mikil áhrif um útlit manna, langlífi, gáfna- far, skapgerð og tilhneiging- ar. Þá er og talið samband milli erfðalögmálanna óg þeirra' sjúkdóma. sem ein- staklingar þjást af, jafnvel alla ævi. Erfðirnar eru þó ekki ör- lög. Manninum er gefin sér- stök hæfni, en hann getur notað hana vel eða illa, aukið hana og margfaldað, cða skaðað hana. Hann gel- ur innan vissra takmarka breytt útliti sínu. Ef liann e~r mikill að vallarsýn sam- kvæmt erfðalögmálinu getur hann með mataræði og lík- amsæfingum komizt hjá að verða of þungur. Hann get- ur þroskað hvers konar gáf- ur sínar og tilhneigingar, en hann getur og lagt þetta allt í auðn. Hann getur lengt líf sitt með reglusömu líferni, en Jíka stytt það með ó- reglu og misbeitingu. Hann getur unnið bug á ýmsum skapgerðargöllum. Af þessu er bert, að sjúkdómar eiga ekki eingöngu ræhir að rekja til erfða, heldur einn- ig til lífshátta og lífernis. Á þessu stigi málsins koma aðilar menningarinnar fram á sjónarsviðið. Trúar- hrögð, heimspeki, uppeldis- fræði, félagsfræðilegar og hagfræðilegar aðstæður, alit það, sem ákvarðar um við- horf manna gagnvart lífinu, hefur og mikil áhrif á kvellni manna; og þessir að- ilar menningarinnar koma skýrar fram og áhrif þeirra verða greinilegri, þegar at- hugaðar eru orsakir um- hverfisins að sjúkdóinum. Frá augnabliki getnaðar- ins þroskast mannlegt líf innan takmarka, sem ætíð eru bæði'líkamleg og félags- leg. Fóstrið, sem er vel verndað í þröngum heimi og stöðugt háð líkamlegum skilyrðum, þroskast frá upp- hafi vega í félagslegri af- stöðu til annars einstaklings, móður sinnar. Við þessar nánu samvistir getur fóstrið orðið fyrir áverkum eða smitun, og þegar það kem- ur fyrir, l'æðist barnið með þjáningar að vöggugjöf, sem, stafa af meðfæddum (ekki ,,arfgengum“) sjúkdómi. —• Þegar barnið stækkar, stækk- ar og umhverfi þess. Fyrst er það heimilið, annað hvort í borginni, með strætum og öðrum borgareinkennum, eða á bændabýli í umhverfi sveitalífsins. Þá taka við skólaárin og nýr heimur opnast. Hægt og hægt losnar um fjölskylduböndin, fyrstu félagslegu teúgslin, og ný álirif taka að verka á ein- staklinginn. Umhverfið fær- ir enn út kvíarnar, þegar hann fer aö vinna fyrir sér, tekur á sig ábyrgð sem þjóð- félagsþegn og tengist nýjum félagsböndum. Hin félagslegu og efnis- legu umhverfi, sem sök eiga á flestum sjúkdómum, hafa mótazt af menningunni, sem gerbreytt liefur lífi mann- anna. Menn fylgjast eklci lengur með hrynjandi nátt- úrunnar, vakna ekki við ■sól- aruppkomu og nátta sig ekki við sólarlag. Menn hafa skapað skilyrðf til þess að gera myrkrið bjart, hitað í- húðir sínar, svo að sumar- h'iti sé þar um hávetur. Við kunnum slcil á að framleiða matvæli, stundum jafnvel í trássi við árstíðirnar. Við höfum gríðarlega aukið hraðfleygi samgöngutækja okkar, og aukið minnishæfni okkar með því að rita og prenta. Við höfum ekki að- eins öðlazt þekkingu á sjálf- um okkur, lieldur og á sögu okkar. Helgi heimilisins er viðurkennd og ættartengsli metin, oft ævilangt. Og menn reyna að lifa í einingu and- ans og bandi friðarins inn- an stórra félagslegra sviða — þótt misbrestur vilji oft verða þar allmikill á. Menningin hefur á þróun- arbraut sinni oft skapað skilyrði, sem heilsu manna var skaðleg. Samfara koát- um hennar hafa skotið upp kollinum margvíslegar hætt- ur, sem orsakað liafa fjöl- marga sjúkdóma. Eldurinn, sem vermir okkur og sýður matinn brennir líka og eyð- ir; sérhvert nýtt verkfæri var hættulegt, þar til leikni hafði náðst um að fara með það. Og sérhvert verkfæri má nota til- ills eða góðs. Menningin hefir líka skap- að læknavísindin og stuðlað að almennri heilbrigði og heilsuvernd. Þegar menn kunnu full skil á að notfæra sér frjósemi jarðvega'rins, hófst landbúnaður. Og þeg- ar menn kunnu skil á að notfæra sér lækningamátt líffæraheildarinnar, líkam- ans, hófst læknisfræðin. — Landbúnaðurinn var fyrst reistur á almennri reynslu, síðar var hann grundvallað- ur á vísindalegri þekkingu, og læknislistin varð að lækn- isfræðilegum vísindum. — Menningin útrýmdi margvís- legri áhættu, sem heilbrigði manna gat stafað hætta af, og reyndist megnug þess aðl rýra verulega atvik þau og ástand, er valda sjúkdómum, sða ryðja þeim braut, og þann veg lengja meðalævi mannanna. í stuttu máli hefur nú verið gerð grein fyrir meg- inmáli bókarinnar: hinu núna sambandi milli menn- ingarinnar og sjúkdóma. — Höfundur hennar skýrir all- ítarlega ýmis lielztu atriði bessa sambands, tekur til at- hugunar mörg markverðustu sjónarmiðin, er þá koma fram og ræðir mörg hinna fjölþættu vandamála, sem þá, verða á vegi. „Bók þessi er mikilvægt sögurit og töfrandi eins og helgisaga“. Bókin hefur nú þegar ver- ið þýdd á íslenzku og kem- ur út á næsta ári. Eiríkur Albertsson■ 12 ÚT SÝN

x

Útsýn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útsýn
https://timarit.is/publication/1267

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.